Baldur - 07.04.1952, Blaðsíða 3

Baldur - 07.04.1952, Blaðsíða 3
B A L D U R 8 vélar og tæki voru tekin í notkun með þeim árangri að afkastageta vinnuaflsins jókst um 10 af hundr- aði. Niðurstöður skýrslanna í ein- stökum liðum verða ekki raktar hér. Þess skal þó getið að byggð voru íbúðarhús er námu að gólf- fleti 27 milj. fermetrar saman- lagt, auk 400 000 íbúða í sveitum landsins. Byggðir voru 5000 skól- arog sjúkrahús, 8000 verzlanir o.fl. í sveitum landsins jókst ræktað land um 6,7 milj. hektara miðað við 1950. Á samyrkjubúunum fjölgaði nautgripum um 12%, þar af kúm um 15%, svínum um 26%, kindum, geitum og hrossum um 8%. Alifuglum fjölgaði um 50%. Á ríkisbúum fjölgaði búpeningi aftur á móti sem hér segir: Naut- gripum um 15%, þar af kúm um 14%, svínum um 21%, kindum og geitum um 11% og hrossum um 14%. Alifuglum fjölgaði um 27%. Þegar talin er saman búpenings- fjölgunin bæði á samyrkjubúum, ríkisbúum og hjá einstaklingum, nam hún alls, nautgripir, kindur, geitur, svín og hross 14 milj. og alifuglum fjölgaði um 60 milj. Almenn kauphækkun átti sér stað á árinu og nam hún 10 af hundraði. Þrír fjórðuhlutar þjóðartekn- anna féllu í hlut Sovétborgaranna, sem kaupgreiðslur. Eftirstöðvar þjóðarteknanna féllu til ríkisins, samyrkjubúanna og samvinnu- hreyfingarinnar. Þessu fé var m.a. varið til bygginga hinna miklu raforkuvera og til annara þeirra stórframkvæmda, sem á döfinni eru, enn fremur til bygginga í sambandi við vísindastofnanir, til sjúkrahúsa og heilsuhæla, leikhúsa o.s.frv. Á sama tíma og allt kapp er lagt á aukna framleiðslu í Ráðstjórn- arríkjunum veldur aukning fram- leiðslunnar stjórnarvöldunum í háborg kapítalismans, Bandaríkj- unum, mestu áhyggjum. Ástæðan er sú, að framleiðslutækin eru þar eign kapitalistanna ,sem hirða bróðurpartinn af gróðanum. Kaup- geta almennings minnkar hlut- fallslega með aukinni framleiðslu í stað þess að í Ráðstjómarríkjun- um vex kaupgeta almennings með aukinni framleiðslu. MÁLIÐ MEIRA! Nýkomið veggfóður, málningar- vörur, vélalökk o.fl. Finnbjörn málari. t" .............i.—— ■« Þökkum öllum fjær og nær fyrir auðsýnda samúð og hlut- tekningu við andlát og jarðarför konunnar minnar og fóstur- móður KRISTÍNAR MAGNÚSDÓTTUR. Haraldur Kristjánsson. Ásta Dóra Egilsdóttir Happdrætti ríkissjóðs. Enn hefur ekki verið vitjað eftirtalinna vinninga, sem út voru dregnir í A-flokki Happdrættisláns ríkissjóðs þann 15. apríl 1949: 10.000 krónur : 66051. 5.000 krónur: 110303. 1.000 krónur: 29127, 30267, 76279,142926,147652 500 krónur: 7292, 10168, 21404, 29157, 33474, 46551, 73958, 79759, 81758, 85308, 93256,101499, 104948, 119624, 138265, 140379, 141834. 250 krónur: 2838, 2976, 3412, 6107, 8117,8720, 11345, 12835, 13660, 14184, 17289, 20458, 22454, 43797, 44783, 46639, 51555, 57593, 59100, 59893, 66120, 66288, 67474, 73693, 77420, 79911, 85181, 87548, 87838, 93122, 94808, 99089, 100893, 112139, 118672, 147179, 147654,148332. Sé vinninga þessara ekki vitjað fyrir 15. apríl n.k., verða þeir eign rOdssjóðs. 17. marz 1952. F j ár málar áðuney tið, MlR tímarit Menningartengsl ís- lands og Ráðstjómarríkjanna er nýkomið út. Er þetta 1. tbl. 3. árgangs og flytur m.a.: Vladimir Ilitsj Lenin, minning- arkvæði, eftir V. Majakavski í þýð- ingu Geirs Kristjánssonar, rit- stjóra. Grein um alþjóðlega efna- hagsráðstefnuna í Moskvu, sem þar hófst 1. þ.m. Grein um rúss- neska skáldið Gogol í tilefni af hundmðustu ártíð hans 4. marz s.l. Bréf frá Aram Katsjatúrjan til 12 ára reykvískrar telpu, sem um þriggja ára skeið hefur legið rúm- föst vegna lömunar. Katsjatúrjan var einn í sovét-sendinefndinni er kom til Reykjavíkur s.l. vor. Hann er frá Sovét-Ameníu og víðfrægt tónskáld. Meðan hann dvaldi hér kynnist hann þessari telpu og for- eldrum hennar. Þá er í þessu hefti löng og fróðleg grein um vatns- virkjanirnar nýju í Sovétríkjun- um, en þær eru án efa stórkostleg- asta afrekið, sem nokkru sinni hefur verið unnið á verklegu sviði. Loks má nefna grein um fram- kvæmd fyrstu 5 ára áætlunarinnar eftir lok stríðsins, framhald sög- unnar Tuttugu og sex menn og ein kona, eftir Maxim Gorki, grein um úthlutun hinna alþjóðlegu friðar- verðlauna Stalins árið 1951 o.fl. Ritið er prýtt fjölda mynda. MIR kemur út sex sinnum á ári. Árgangurinn kostar 30 krónur. Ritstjóri er Geir Kristjánsson. Þeir, sem vilja gerast áskrifend- ur, snúi sér til ritstjóra Baldurs. Tilkynning um bótagreiðslur almanna- trygginganna árið 1952. Yfirstandandi bótatímabil almannatrygginganna hófst 1. janúar s.l. og er nú almanaksárið, í stað þess, sem áður var, frá 1. júlí til 30. júní árið eftir. Lífeyrisupphæðir þær, sem greiddar eru á fyrra helmingi ársins 1952, eru ákveðnar til bráðabirgða með hliðsjón af bótum síðasta árs og upplýsingum bótaþega. Sé um tekjur að ræða, sem áhrif geta haft til skerðingar á lífeyri, verður skerðingin miðuð við tekjur ársins 1951 og endanlegur úrskurður um upphæð lífeyrisins 1952 felldur, þegar framtöl til skatts liggja fyrir. Þeir, sem nú njóta lögboðins ellilífeyris, örorkulífeyris, barnalífeyris eða fjölskyldubóta, þurfa ekki, að þessu sinni, að sækja um fram- lengingu lífeyrisins. Hins vegar ber öllum þeim, sem nú njóta bóta sam- kvæmt heimildarákvæðum almannatryggingalaganna, að sækja á ný um bætur þessar, vilji þeir áfram njóta þeirra. Hér er um að ræða örorkustyrki, ekkjulífeyri, makabætur, bætur til ekkla vegna barna, svo og lífeyris hækkanir. Umsóknir um endurnýjun bóta þessara, skulu ritaðar á viðeigandi eyðublöð Tryggingastofnunarinnar, útfyllt rétt og greinilega eftir því, sem eyðublöðin segja fyrir um, og afhent umboðsmanni ekki síðar en fyrir 15. maí næstkomandi. Áríðandi er að örorkustyrkþegar, sem misst hafa 50—75% starfs- orku, sæki á tilsettum tíma, þar sem ella er með öllu óvíst að hægt sé að taka umsóknimar til greina, vegna þess að fjárhæð sú, er verja má í þessu skyni, er takmörkuð. Fæðingarvottorð og önnur tilskilin vottorð skulu fylgja umsóknum, hafi þau eigi verið lögð fram áður. Þeir umsækjendur, sem gjaldskyldir eru til tryggingasjóðs, skulu sanna með tryggingaskírteini sínu eða á annan hátt, að þeir hafi greitt iðgjöld sín skilvíslega. Vanskil varða skerðingu eða missi bótaréttar. Umsóknir um aðrar tegundir bóta en þær, sem hér að ofan eru nefndar, svo sem fæðingarstyrki, sjúkradagpeninga og ekknabætur, svo og allar nýjar umsóknir um lífeyri eða fjölskyldubætur verða af- greiddar af umboðsmönnum á venjulegan hátt, enda hafi umsækjandi skilvíslega greitt iðgjöld sín til tryggingasjóðs. Athygli er vakin á, að bætur úrsskurðast frá 1. degi þess mánaðar, sem umsókn berst umboðsmanni, enda hafi réttur til bótanna þá verið fyrir hendi. Þeir, sem telja sig eiga bótarétt, dragi ekki að senda um- sóknir sínar, þar sem bótaréttur getur fymst að öðrum kosti. Reykjavík, 15. marz 1952. TRYGGINGASTOFNUN RIKISINS.

x

Baldur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.