Baldur - 28.08.1953, Síða 2

Baldur - 28.08.1953, Síða 2
2 BÁLDUR BALDÚR Ritstjóri og ábyrgðarm.: Halldór Ólafsson frá Gjögri. Árgangurinn kostar 20 krónur. Lausasöluverð 75 aurar. Afgreiðsla Pólgötu 8. Erfið stjórnar- fsðing. Nú eru liðnir tveir mánuðir frá kosningum, en stjórn hefur enn ekki verið mynduð. Eftir kosningaúrslitunum að dæma var talið fullvíst að núver- andi stjórnarflokkar, Sjálfstæðis- flokkurinn og Framsóknarflokkur- inn héldu samstarfinu áfram o’g hölluðu sér aftur í stjórnarflat- sængina, án þess að viðhafa sér- stök látalæti. Þetta hefur þó ekki reynst svo. Framsókn beið veru- legt afhroð í kosningunum og kann það að vera orsök þess, að hún hefur virst ófús til áfram- haldandi hvílubragða við íhaldið. Framsókn sagði sig þó ekki úr ríkisstjórn eins og hún hafði lof- að fyrir kosningar, og það var ekki fyrr en fullur mánuður var liðinn frá kjördegi, að forsætis- ráðherra gekk á fund forseta og tjáði honum „að í samræmi við á- lyktanir flokksþings Framsóknar- manna í vetur, myndi hann biðj- ast lausnar fyrir ráðuneyti sitt mjög bráðlega“. Forseti óskaði þá að stjórnin sæti áfram og vitan- lega varð hún við þeirri ósk. Nokkru áður en þetta gerðist voru þingmenn stjórnarflokkanna kallaðir til Reykjavíkur, en ekki var Alþingi kvatt saman til að ráða fram úr stjórnarkreppunni. Þessir tveir „lýðræðisflokkar“ töldu sig upp úr því vaxna, að við hafa svo sjálfsagða lýðræðis- aðferð. Um líkt leyti byrjuðu flokkarn- ir að skrifast á um væntanlegt stjómarsamstarf. Framsóknar- flokkurinn vildi ákaft að mynduð yrði stjórn þriggja flokka, þ.e.a.s. Alþýðuflokkurinn yrði hafður með. Hefur sjálfsagt álitið að það styrkti aðstöðu sína í samstarf- inu. fhaldið neitaði þegar öllu samstarfi við þennan flokk, nema hann æti ofan í sig allt sem hann hafði um núverandi stjórn sagt og samþykkti stefnu hennar óbreytta í öllum verulegum atriðum. Til þessa mun Alþýðuflokkurinn ekki hafa treyst sér, svona rétt eftir kosningar, enda þótt stefna hans og stjómarflokkanna hafi farið saman í jafn þýðingarmiklu atriði og utanríkismálum og hann hafi starfað og starfi enn með þessum flokkum í verkalýðssamtökunum. Minnsta kosti er talið víst að Al- þýðuflokkurinn verði ekki með í BÆRINN og NÁGRENNIÐ. Framhald af 4. síðu. urþingum, ungfrú Bára Jónsdóttir og Sigurður Hjartarson, bakari, ísafirði. Hjónaefni. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína: Ungfrú Málfríður Finnsdóttir, yfirhjúkrunarkona og Marías Þ. Guðmundsson, skrifstofumaður. Ungfrú Anna Bjarnadóttir og Kári Samúelsson, smiður. Ungfrú Steingerður Gunnars- dóttir og Jón Karl Sigurðsson, skrifstofumaður. Ungfrú Sigríður Friðbertsdóttir frá Súgandafirði og Albert Karl Sanders, skrifstofumaður. Ungfrú Arndís ólafsdóttir og Sigurður Th. Ingvarsson, járn- smiður. Ungfrú Fríða Gísladóttir og Pét- ur Blöndal, járnsmiður. Togararnir. Sólborg og Isborg eru nýkomn- ir af Grænlandsmiðum. Lögðu þeir báðir afla sinn upp hér. Sólborg 274 tonn og ísborg 236 tonn af væntanlegu stjórnarsamstarfi. Árangur af bréfaskriftum fram- sóknar og íhalds varð sá einn, svo vitað sé, að þeir komu sér saman um að talast við. Hafa þær við- ræður farið fram undanfarið, en stjórn er ómynduð ennþá. Ágrein- ingur um stefnumál milli flokks- foringjanna mun þó ekki ástæðan, heldur deilur um valdaaðstöðu innan væntanlegrar stjórnar og andstaða kjósenda Framsóknar- flokksins gegn áframhaldandi íhaldssamvinnu. Þrátt fyrir allt eru foringjarnir alltaf dálítið hræddir við háttvirta kjósendur, ekki sízt þegar þeir sjá, að þeir eru að snúa við þeim bakinu. Ástæðurnar fyrir því, að þess- ir flokkar hófu ekki viðræður fyr en raun varð á, geta verið ýmsar. Sennilega hafa þeir hugsað sem svo, að landinu væri hvort sem er stjórnað af Bandaríkjunum og þvi lægi. ekki á að mynda nýja lepp- stjóm. Almenning skiptir það vissu- lega litlu máli hvort ný stjórn verður mynduð eða ekki. Stefna hennar verður sú sama og núver- andi stjórnar, þ.e. áframhaldandi þjónusta við erlent vald og svik við málstað Islendinga. Jafnvel þótt einhver mannaskipti kunni að verða, sem ekki er líklegt, breytir það engu. Það, sem alþýðu nú ríður mest á er að treysta sem bezt fylking- ar sínar og mæta sameinuð þeim árásum, sem í vændum eru. KARLAKÓRSFÉLAGAR! Munið eftir fundinum í Gagn- fræðaskólanum í kvöld kl. 6. Aríð- andi að allir mæti. saltfiski. Skipin halda bæði áfram veiðum við Grænland. Andlát. Guðrún Friðriksdóttir, ekkja, Sundstræti 21. ísaf., andaðist á Isafirði 2. júlí s.l. Hún var fædd 23. maí 1868 að Rafnseyri í Arn- arfirði. Elísabet Jasína Guðleifsdóttir, Hnífsdalsveg 10, ísaf., andaðist í Sjúkrahúsi ísafjarðar 24. júlí s.l. Hún var fædd 14. júlí 1895 í Bol- ungarvík í Grunnavíkurhr., N.-ls. Guðmundína ólafsdóttir, gamal- menni, Rauðamýri í Nauteyrarhr., N.-ls., andaðist í Sjúkrahúsi Isa- fjarðar 24. júlí s.l. Hún var fædd 17. janúar 1874. Jón Hákon Sigmundsson, húsa- smíðameistari, Túngötu 15, ísa- firði, andaðist á heimili sínu 24. júlí s.l. Hann var fæddur 22. apríl 1880 að Mýrum í Dýrafirði. Bjarnfríður Jónsdóttir, Sólhjalla, ísafirði, andaðist á Sandeyri í Snæ fjallahreppi 18. þ.m. Hún var fædd 10. febrúar á Þingeyri í Dýrafirði. Síldarskipin að koma heim. Síldveiðin fyrir Norðurlandi er nú orðin treg og eru flest skipin hætt og komin heim eða væntan- leg næstu daga. Hefur afli vest- firzku skipana verið yfirleitt lítill og sum koma heim af þessum veið um án þess að hafa lagt á land nokkurn afla. LOFTÁRASIR A ISLAND... Framhald af 1. síðu. mikilvirkustu drápstækjum þeirra, í að beita þeim gegn Islandi og þá auðvitað íslendingum. Ekki er hætt við öðru en að þessir „leikir á Atlantshafi", en svo nefnir bandaríski hermála- fréttaritarinn fyrirhugaðar her- æfingar, heppnist vel. Verður þá ekki horft í þótt ein íslenzk ey hverfi af yfirborðinu, íslenzk verðmæti eyðileggist og jafnvel íslenzk mannslíf týnist. Banda- ríkjamenn hafa verið í þjálfun undanfarin ár í Kóreu og gert þar stórfeldustu tilraun, sem sagan getur um, til að murka lífið úr heilli þjóð. Ilitt er aftur á móti ósennilegt, að íslendingar yfirleitt, verði á- nægðir með, að slíkir „leikir“ séu iðkaðir á landi þeirra eða um- hverfis það, þó að ríkisstjórnin láti sér það vel líka. Vestmanna- eyingar hafa þegar mótmælt, og fleiri þurfa að fara að dæmi þeirra. Minnsta kosti verður að gera þá kröfu til íslenzkra stjórn- arvalda, að þau láti vita á hvaða eyju á að skjóta hlöðnum sprengj- um og hvaða skotmörk á að hæfa á landi. . TIL SÖLU vönduð svefnherbergis- húsgögn. Seljast ódýrt. Upplýsingar í síma 178. Frá Bókasafni ísafjarðar. Bókasafn Isafjarðar verður opnað til útlána 1. september n.k. og verður til næstu mánaöarmóta opið sem liér segir: Máudaga kl. 5—6,30 e.h. Þriðjudaga kl. 5—6,30 e.h. Fimmtudaga kl. 8—10 e.li. Föstudaga kl. 5—6,30 e.h. Sú breyting verður á frá í fyrra, að opið verður eftir kvöldmat á fimmtudögum, vegna þeirra, sem óhægt eiga með að koma á öðrum tírna, sökum atvinnu sinnar. BÓKAVÖRÐUR. AUGLYSING. Starf fastráðins manns við slökkvistöð og slökkvilið ísaf jarðar er liér með auglýst til umsóknar. Þekking á vélum er nauðsynleg og sömu- leiðis kunnátta í viðhaldi og viðgerðum véla og tækja. Nánari upplýsingar fást á bæjarskrifstofunni. Umsóknarfrestur er til 15. september. ísafirði, 20. ágúst 1953. , V BÆJARSTJÓRI. Hér með færi ég hjartans þakkir öllum þeim góðu mönnum, § I sem tóku höndum saman og færðu mér að gjöf nýtt viðtæki fyr- | = ir Hvítasunnuna í vor, en mér er sagt að upphafsmenn að því | | hafi verið Ágúst Vígfússon og Gunnar Sigtryggsson, enda | 1 færðu þeir mér gjöfina. Bið ég góðan Guð að launa þeim, því | | að ég et það ekki sjálfur. | | Guðmundur Steinsson, Bolungarvík.- | lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllll

x

Baldur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.