Baldur - 31.07.1957, Blaðsíða 1

Baldur - 31.07.1957, Blaðsíða 1
iáti®® BLAÐ SÖSlALISTA Á VESTFJÖRÐUM 12. tölublað. Isafjörður, 31. júlí 1957. XXm. árg. I boði Flugíélags Islands: Komið í fjögur lönd á fimmtíu og sjö klukkustundum Flugfélag íslands 20 ára Framhald. 1 síðasta blaði var þessum ferða- þáttum þar komið, að „vér blaða- menn“ vorum lentir á flugvellin- um í Glasgow. Varla gat það þó talist meira en að stinga við stafni á þeim bæ, því að viðdvöl þar var aðeins hálf klukkustund, við sett- ir í girðingu, eins og stekkjarlömb, og máttum engin viðskipti eiga við innfædda. Ferðin frá Glasgow til Kaup- mannahafnar gekk að óskum. Veð- ur á leiðinni var mjög gott. Flogið var í 21500 feta hæð þar til komið var yfir vesturströnd Jótlands, þá var flug lækkað í 19000 fet, og um kl. hálf þrjú (ísl. tími) settist Gullfaxi á Kastrupflugvöll. Birgir Þórhallsson, umboðsmað- ur Flugfélagsins í Kaupmannahöfn tók þar á móti okkur. Eftir toll- skoðun og annað tilheyrandi, var ekið til borgarinnar og beint á hótel Kosmopolite, sem er eitt af betri gistihúsum Kaupmannahafn- ar, en þar var okkur búin nætur- gisting. Þegar við ferðafélagamir höfð- um snyrt okkur eftir beztu föng- um, fórum við út í borgina að verzla. Lá leið okkar flestra í Magasin du Nord, en þar fæst allt, eins og forðum daga í Thomsens- magasín. Ekki er ástæða til að segja hér frá viðskiptum okkar við þetta volduga vöruhús, en þar var sannarlega hægt að fá „sitt af hverju tæi“. Tveir týnast úr lijörðinni. Svo hafði verið umtalað, áður en lagt var í þennan „verzlunar- leiðangur“, að á ákveðnum tíma skyldu allir mæta á skrifstofu Flugfélagsins, Vesterbrogade 6 C. Þetta tókst þó ekki betur til en það, að tveir okkar komumst aldrei á þennan ákvörðunarstað. Voru margar tilraunir gerðar til að finna þessa týndu sauði, en árangurs- laust. Hittum við þá ekki fyr en morguninn eftir, og sögðu þeir sín- ar farir ekki sléttar. Höfðu þeir tekið leigubíl til að komast á skrif- stofuna, en bílstjórinn fann ekki húsið þrátt fyrir mikið hringsól. Gáfust þeir þá upp að leita, héldu heim í gistihúsið, og eyddu kvöld- inu eftir því sem þeim þótti bezt við eiga. M. a. lögðu þeir leið sína í Nýhöfnina, og hafði annar þeirra, sem þar hafði komið áður, orð á því að sá frægi staður væri nú svipur hjá sjón við það, sem þá var. Mátti helst á honum skilja, að skemmtanalífið þarna minnti nú einna helzt á kvenfélagsball í sveit, þar sem engir bílvegir liggja að samkomuhúsinu. Kvöld í Kaupmannahöfn. Víkur nú sögunni aftur til skrif- stofu Flugfelagsins. Þegar þangað kom tóku Birgir Þórhallsson og Anna Snorradóttir, kona hans, þar á móti okkur. Skrifstofan er að öllu leyti hin vistlegasta á mjög góðum stað í borginni. Þarna var velkomandaminni drukkið og ljúf- feng dönsk jarðaber borðuð. Gest- gjafar skýrðu okkur frá ýmsu er viðkom starfsemi Flugfélagsins á Framhald á 2. síðu. Flutt úr Bjöm H. Jónsson, skólastjóri, og kona hans, Jónína Þórhallsdótt- ir, kennari, eru alflutt úr bænum með fjölskyldu sína. Frú Jónína flutti héðan í júnímánuði, en Björn fór fyrir nokkrum dögum. Hið nýja heimili þeirra er í Garða- hréppi. Fræðsluráð ísafjarðar hélt þeim hjónum kveðjusamsæti að Uppsöl- um 14. júní s.l. og afhenti þeim við það tækifæri heiðursgjöf. Að- alræðuna í samsætinu flutti for- maður fræðsluráðs, Björgvin Sig- hvatsson, en auk þess talaði heið- ursgesturinn, Björn H. Jónsson og fjöldi annara veizlugesta. Þau hjón komu hingað til ísa- fjarðar 1924. Var Björn kennari við Barnaskóla Isafjarðar fyrstu sex árin, en skólastjóri síðan 1930. Frú Jónína hefur kennt því nær óslitið við skólann síðan hún kom hingað. Það er því þriðjungur ald- ar, sem þau hafa kennt ísfirzkum börnum. Auk þess hafa ísfirzkir iðnnemar og önnur ungmenni not- Baldri hefur borist í hendur fróðleg greinargerð um starfsemi Flugfélags Islands þau 20 ár, sem það hefur starfað, en það var stofnað 3. júní 1937 á Akureyri og hét þá Flugfélag Akureyrar. Á aðalfundi félagsins 5. apríl 1940 var samþykkt að breyta nafni þess í Flugfélag Islands og flytja jafn- framt heimili og varnarþing þess til Reykjavíkur. Hér fara á eftir nokkur atriði úr starfssögu félagsins, byggð á áð- urnefndri greinargerð. Fyrsta flugvélin, sem F. í. eign aðist, var 4 farþega flugbátur af Vaco-gerð. Kom hann til landsins í aprílmánuði 1938, en 2. maí þ. á. hófust flugferðir, og var í fyrstu aðallega flogið milli Akureyrar og Reykjavíkur. Þetta sama sumar var önnur Vaco-flugvél tekin í notkun. Vorið 1942 festi félagið kaup á flugvél af Beechraftgerð, en það var fyrsta tveggja hreyfla flug- vélin, sem Islendingar eignuðust. Tók hún 8 farþega. Árið 1944 keypti félagið tvær flugvélar af gerðinni De Havilland bænum ið kennslu Bjöms, því að hann var skólastjóri Iðnskóla ísafjarðar í 27—28 ár og kenndi þar einnig. Þó að skólastjóm og kennsla hafi verið aðalstarf Björns, hefur hann lagt margt annað á gjörva hönd, enda er hann manna fjöl- hæfastur bæði í bóklegri og verk- legri menningu. Hann er t. d. ágætur smiður og bókbindari, hef- ur réttindi sem húsasmiður og vann lengi í þeirri iðn á sumrin. Af félags- og menningarmálum, sem Bjöm hefur látið sig varða og lagt lið, má nefna iðnaðarmál, skógrækt, barnavemd, Sögufélag Isfirðinga og Byggðasafn Vest- fjarða. Hann hefur átt sæti í yf- irskattanefnd ísafjarðar síðan 1928, verið héraðssáttasemjari í vinnudeilum frá 1939 og margt fleira, sem hér verður ekki talið. Af þeim hjónum er mikil eftir- .-.ión fyrir þetta bæjarfélag, og þeim fyigja góðar kveðjur og árn- aðaróskir allra, sem ky.untust þeim. Rapides, og í október sama ár fékk það sinn fyrsta Katalína- flugbát. Hann var fyrsta íslenzka flugvélin, sem flogið var yfir Atl- anzhaf. Félagið eignaðist fyrstu Douglas Dakota flugvél sína árið 1946, en með komu þessara flug- vélategundar jókst starfsemin að miklum mun. Nú á F. 1. 9 flugvélar: 2 Vis- count-vélar, 1 Skymaster, 3 Douglas Dakota, 2 Katalina-flug- báta og 1 Grumman-flugbát. Geta vélar þessar flutt samtals 286 far- þega. Sumarið 1945 hófst nýr þáttur í starfsemi F. 1., en þá hófust flug- ferðir milli íslands og útlanda. Fyrsta ferðin, sem jafnframt var fyrsta ferð íslenzkrar flugvélar með póst og farþega milli landa, var farin 11. júlí 1945. Næsta ár samdi félagið um leigu á Libera- tion-flugvélum hjá Skottish-Air- lines, og 27. maí það ár hófust reglubundnar flugferðir milli Reykjavíkur, Prestvíkur og Kaup- mannahafnar — fyrstu áætlunar- fiugferðirnar milli Islands og ann- ara landa. Flugvélar þessar voru leigðar til tveggja ára, eða þar til F. 1. eignaðist Skymaster-flugvél- ina Gullfaxa, sem kom til lands- ins 8. júlí 1948. Með komu Gullfaxa til Islands má segja, að enn sé brotið blað í þróunarsögu F. 1. íslenzkar flug- áhafnir voru nú þjálfaðar og taka við störfum af útlendingum, og brátt tók Gullfaxi að fljúga milli fjarlægra landa undir íslenzkum fána og íslenzkri stjórn. Farþega- tala milli landa fór stöðugt vax- andi. Árið 1948 voru farþegar 2868 en 1954 var tala þeirra kom- in upp í 7528. S.l. ár var algjört metár, en þá fór farþegatalan í millilandaflugi yfir 15000. Auk ferðanna til Prestvíkur og Kaup- mannahafnar, var nú farið til Lundúna og Oslóar, þar að auki mikill fjöldi leiguferða, og mátti sjá Gullfaxa skarta íslenzkum fána á ólíklegustu stöðum, allt frá Sýrlandi til Venezuela. Eftir að F. í. eignaðist aðra Skymasterflugvélina, Sólfaxa, í árslok 1954 og Viscount-flugvél- arnar, Gullfaxa og Hrímfaxa, s.l. vor, hefir viðkomustöðum enn ver- ið f jölgað. Til viðbótar þeim stöðum, Framhald á 3. síðu.

x

Baldur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.