Ný dagsbrún - 01.01.1976, Blaðsíða 2

Ný dagsbrún - 01.01.1976, Blaðsíða 2
2 NÝ DAGSBRÚN Janúar 1976 NÝ DAGSBRÚN Ctgefandi Sósíalistafélag Reykjavíkur Ábyrgðarmaður Runólfur Björnsson. Ritstjórn og afgreiðsla Tryggvagötu 10, Reykjavík. Sími 17510. Pósthólf 314. Verð blaðsins er kr. 40,00 eintakið. Setning: Prentiðjan, Skipholti 9. Prentun: Prentsmiðja Pjóðviljans. Gö&nirt á boröiö! Fátt hefur vakið meiri athygli síðustu vikur árs- ins sem leið en Alþýðubankamálið. Það er enn sem komið er að mjög litlu leyti upplýst, en staðreyndir þær sem fyrir liggja gefa grun um alveg sérstak- lega illkynjaðan vef einkahagsmuna og fjármála- brasks, þar sem hinn langi armur Seðlabankans á efalítið einhvern þátt í. Því er ekki að leyna að mál- ið vekur meiri athygli alþýðu vegna þess að bankinn er við hana kenndur, er meirihlutaeign verkalýðs- samtaka og félagsmanna þeirra og er a.m.k. í orði kveðnu, ætlað að styðja verkalýðssamtökin og al- þýðu manna. Nú er það að vísu svo, að frumtilgangur bank- anna í fjármálakerfi auðvaldsins er sá, að vera sá milliliður sem dreifir fjármagni til kapítalistanna, sem gera það ,,arðbært“, þ.e. skapar þeim gróða. Allir bankarnir og helstu lánastofnanir eru bundnir þessu lögmáli og þjóna því undir ægishjálmi Seðla- bankans. Innan þessara marka geta bankar sér- hæft starfsemi sína, en þess er enginn kostur að reka banka á þeim grundvelli að stefna hans sé í andstöðu við meginatriði fjármálakerfis auðvalds- ins. Bankarekstur er því af þeim ástæðum einum vafasamur hagnaður fyrir verkalýðssamtökin, enda mun tilgangur forvígismanna með stofnun Alþýðu- bankans hafa verið sá, að „gera sig gildandi" í fjár- málakerfi auðvaldsins, en ekki að brjóta það nið- ur. En fyrr má nú rota en dauðrota. Alþýðubank- inn hefur rekið lánapólitík sem á enga afsökun í hinum almennu skilyrðum sem bankarekstur er háður í auðvaldsskipulagi. Rúmur helmingur af öllu ráðstöfunarfé bankans er í lánum til örfárra — átta — aðila og talið að miljónatugir af þeim lánum sé án nægilegra trygginga. Afglöp bankastjórnarinnar verða á engan hátt skilin né skýrð með „aðgæslu- leysi“ bankastjóranna einu saman. Gegnum stað- reyndir þær sem þegar eru kunnar grillir inn í skúmaskot fjármálaspillingar. sem almenningur í verkalýðssamtökunum hefur fram að þessu verið grunlaus um. Verkalýðssamtökin og félagsmenn þeirra hljóta, á þessu stigi málsins, að krefjast þess fyrst og fremst að málið sé rannsakað og upplýst undandráttarlaust og að hinir ótrúu ráðsmenn bankaráð og bankastjórar víki fyrir fullt og allt. Fyr en það er gert kemur ekki til greina að sinna að einu eða neinu leyti kröfu ASÍ-miðstjórn- ar (þar sem bankaráðsmenn allir nema einn eiga setu) um aukinn fjáraustur til bankans úr sjóðum verkalýðsfélaga eða vösum félagsmanna. Verkamenn! Hreinsum til í Alþýðubankanum! Gögnin á borðið! — R. B. Möguleiki fprir þig, fyrir SÍBS Nú eru melrl möguleikar en nokkru sinni fyrr á fví aö hljóta einhvern af hinum veglegu vinn- ingum happdmttis okkar. En þah eru ekki dbeins þínir möguleikar til vinnings sem aukr ast, möguleikar SIBS til þess ab halda áfrani uppbyggingu á Reykjalundr aukast til múna, og þar meb aukast einnig möguleik- ar á hjálp, fyrir alla þá sem þurfa á endurhœfmgu ab halda. Happdrœtti SÍBS Auknir ntöguleikar allra Allt til útgerðar Utgflöfí' Sjófatnaður Vinnufatnaður Kuldafatnaður Regnfatnaður Gúmmístígvél \3ga2iJDa ANANAUSTUM Elsta og stærsta veiðarfæraverslun landsins. VERKAMENN: Kaupið Nýja Dagsbrún —Lesið Nýja Dagsbrún.

x

Ný dagsbrún

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný dagsbrún
https://timarit.is/publication/1026

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.