Stormur

Ataaseq assigiiaat ilaat

Stormur - 21.10.1925, Qupperneq 3

Stormur - 21.10.1925, Qupperneq 3
STORMUR 3 hugsa með mér, að eg skuli vera varkár, því að »oft fái á heimskan, es á horskan ei fá, lostfagrir litir«. En nú fara gestirnir að tínast inn. Einna fyrstir koma þeir Ágúst prófessor og landlæknir, svo koma alþm. og ritstj. Jón Kjartansson, ritstj. ' bændablaðsins »Varðar« Kristján Albertson, dr. Guð- brandur Jónsson, meðritstjóri »Alþýðu- blaðsins«, bankastjóri Landsbankans Magnús Sigurðsson, og síðast (ekki fyr en átið var byrjað, sennilega vegna hugleiðinga um »stýfinguna«) Tryggvi Pórhallsson, ritstj. bændablaðsins »Tím- ans«, andstöðublaðs »Varðar«. Nú kveður formaður fjelagsins, Gisli J. Ólafsson, simastjóri, sér hljóðs. Skýrir hann frá því, að félag þetta sé nýstofnað og skipi stjórn þess: hann sjálfur, Sigurður B. Runólfsson kaupmaður og Bernhard Petersen. Aöal- tilgangur fé.lagsins sé að kenna íslend- ingum, hvað sem það kosti, að eta sild, en auk þess fáist það einnig við niðursuðu á karfa og kjötmeti. Formaðurinn segist ekki ganga að því gruflandi, að erfiðleikarnir verði miklir, því að almenningur sé vana- fastur og seinn til breytinga, en hann hafi þó þá trú á skynsemi og hagsýni manna og sérstaklega húsmæðranna, að ekki líði mjög langur tími þar til menn sannfærist um, hversu ágætur matur sildin sé, ef hún er rétt með farin, og hve ódýr hún er, ef miðað er við kostagildi. Pá getur hann um það, að félagið hafi tekið upp þá nýbreytni, sem hann voni að allir sjái, að sé til bóta, að hafa niðursuðuna og síldina í glerílát- um, en ekki í blikkdósum. — Kostirnir við þetta séu þrir, i fyrsta lagi megi nota glerílátið í það endalausa, og verði það því miklu ódýrari umbúðir en blikkið, þegar þess er gætt, að blikk- dósina er ekki hægt að nota nema einu- sinni; í ööru lagi sé geymslan miklu öruggari 1 gleríláti, því að því megi ávalt loka; og í þriðja lagi sé engin hætta á því, að matvælin geti orðið eitruð í þeim, en það geti þau auðveld- lega orðið í blikkdósum. Auk þessa eru svo glerílátin borð- prýði, og kaupandinn getur séð vöruna, sem hann getur ekki f blikkílátinu. Að svo stöddu kvaðst formaður fé- lagsins einvörðungu hyggja á innlendan markað. Að lokinni ræðu formanns settust menn að snæðingi. Fékk hver maður sinn disk, og mátti svo vera sjálfráður um valið. í fyrstu fóru menn varlega og tóku lítið á diskana, því að þetta voru alt hinir kurteisustu menn, og vildu því ekki fara að eins og írafells-móri, að ganga frá leyfðu. En diskarnir voru fljótt hroðnir og flestir voru það, sem fjórum og fimm sinnum fyltu diska sína, enda spilti það ekki fyrir matarlystinni, að bjór var á borðum, frá Tómasi, og auk þess allra viðfeldnasta »cocktail«. — Sá eini sem borðaði hóglega var Tryggvi ritstj. Pórhallsson. Var þaö hvorutveggja, að hann mátti ekki bragða cocktailið, og svo voruáhyggjur hans fyrir kjötmarkaði bænda og krónuskrattanum, sem sífelt fór hækkandi. Pegar gestirnir höfðu lengi vel etið síldina, voru Ingólfs-bollurnar bornar fram. — Þurfti enginn að kvarta um sult, eftir að hann hafði gætt sér á þeim. — Verður hér ekki sagt frá því, úr hverju þær eru til búnar, en ráð- leggja vill »Stormur« hverri hagsýnni húsmóður, að fá sér þær í miðdegis- matinn, svo framarlega sem hún á ekki fisksölunum hér eða bændunum austan- fjalls neitt sérstaklega gott upp að unna. Pegar menn höfðu setið um tvo tíma að borðum, var loks upp' staðið. Pökk- uðu gestirnir góðan beina, og óskuðu þessu þarfa fyrirtæki allra heilla. — Bar öllum saman um það, ritstjórunum líka, að þessi síld stæði fyllilega á sporði erlendri síld, sem hingað flyst. Er það meiri en meðalskömm, hve illa vér höfum hagnýtt síldina, jafn hollur og kraftgöður matur og hún er, og auk þess ódýr. En nú er vonandi, landsmanna sjálfra vegna, að skynsam- ari háttur verði upp tekinn. Ileimskringla. Má treysta íramburði ritnaf Oft er það, að vitni eru leidd til að að bera um eitthvað, sem ekki hefir borið fyrir þau sjálf, heldur fyrir eín- hverja aðra, sem hafa svo skýrt frá at- burðinum, svo vitnin heyrðu. Til þess að komast að raun um, hversu öruggur slíkur vitnaframburður væri, gerði Stern eftirfarandi tilraun: Hann valdi fjóra stúdenta, A., B., C. og D., alla greinda og athugula menn, til þess að gera tilraunina á. — Siðan tók hann A. afsíðis og las upp fyrir honum, hægt og greinilega, glæpasögu, sem hann hafði fundið í gömlu blaöi. Nokkrum stundum síðar skrifaði A. sög- una niður eftir minni. Næsta dag var svo þessi endursögn A. lesin upp fyrir B, sem einnig skrifaði hana niður eftir minni, örlitlum tíma eftir, að hún hafði verið lesin upp fyrir honum. — Og sama aðferðin var höfð við C. og D. — Sagan, eins og D. segir hana, sýnir því hverjar breytingar hafa orðið á frum- textanum við það að ganga á millum þessara fjögra manna, sem höfðu það eitt fyrir augum, að taka vel eftir og skýra svo satt frá, sem þeim var unt. Birtist nú hér sagan, eins og hún var í blaðinu og enduisögn D. Sagan. I þorpi einu litlu, 6 mílur frá Lyon, hefir fyrir nokkru síðan, einkennilegt atvik orðið heyrin kunnugt. í fallegu húsi í þorpinu bjó ekkja Nýkomið: Stórt úrval af vetrarhúfnm úr skinni fyrir karlmenn og drengi. Allskonar regnhattar fyrir fullorðna og börn, og enskar liúfar af öllum stærðum. iso. G. Gttfliilaupson £ Co. eftir embættismann. — Með manni sín- um hafði hún átt tvö börn, son og dóttur, en soninn hafði hún„ mist skömmu eítir andlát föðursins, og stuttu eftir, að sonurinn lést, hvarf dóttirin, sem hafði mikið orð á sér fyrir fríð- leik, skyndilega. Móðirin varð alveg frávita af örvænt- iDgu. þegar ekki hafðist upp á dóttur hennar, þrátt fyrir allar eftirgrenslanir. — Árin liðu, og smám saman fyrntist yfir sorg hennar, enda reyndi hún að gleyma henni, með því að sökkva sér í samkvæmislífið jafnframt þvi, sem hún tók mikinn þátt í ýmiskonar líkn- arstarfsemi. En eftir 31/* ár, tilkynti ónafngreind- ur maður lögregiunni það, að dóttirin væri í raun og veru ekki horfin, heldur hefði móðir hennar haft hana í haldi og falið hana, allan þenna tíma. — Lögregl£(n gerði þegar húsleit og fann leynidyr, sem lágu inn í lítið og óvist- legt herbergi og þar lá dóttir hennar á heyfleti, mjög lasburða. — Móðirin var þegar sett í gæsluvarðhald og yfirheyrð, en neitaði að gera nokkra grein fyrir þessum verknaði sínum. — Ótal ágiskanir eru um, hversvegna konan hefir gert þetta, og meöal ann- ars sú tilgáta, sem vér leggjum þó ekki neinn sérstakan trúnað á, . að ekkjan hafi drepið son sinn, lil þess að svæla undir sig arfahluta hans, en dóttir henn- ar hafi orðið áskynja um glæpinn og til þess, að hún ljóstraði honum ekki upp, hafi móðir hennar framið þelta ódæðisverk. Endursögn D. í þorpi, 6 mílur frá Lyon, var þessi glæpur framinn: Sonur ekkju, sem bjó með honum og dóttur sinni, fanst- myrt- ur og ómögulegt reyndist aö liafa upp á morðingjanum. Litlu á eftir hvarf dóttir ekkjunnar. Var öll ástœða til að œlla, að liér vœri einnig um glœp að rœða, sem stœði, að einhverju leyti í samhandi við ftann fyrri. Eftir mikla eftirgrenslan og erfiði, fundust leynidyr í húsi ekkjunnar, sem lágu inn í dimt og óvistlegt herbergi og

x

Stormur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stormur
https://timarit.is/publication/1027

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.