Stormur - 09.04.1932, Page 2
2
STORMUR
Magnúsar Torfasonar. — Gifta þjóðarinnar er, að slíkar
súlur standa dreifðar og lítið traust borið til burðarmagns
þeirra.
Þungur dómur.
I einni eldhúsdagsræðu sinni hafði Ólafur Thors þessi
ummæli um Jónas Jónsson, og kvaðst tilfæra þau orðrétt
eftir Jóni Þorlákssyni: „Dómsmálaráðherrann gerir þær
siðferðiskröfur til sjálfs sín, að vera ávalt skör lægri en
sá versti, sem hann þekkir“.
Þegar þess er gætt, að Jón Þorláksson er allra manna
óáreitnastur og grandvarastur af öllum stjórnmálamönn-
um vórum í dómum sínum um andstæðingana, þá er þetta
þungur dómur um Jónas Jónsson. En enn þyngri er hann
þó í raun og veru um þá, sem ábyrgð bera á þessum manni
og öllum stjórnarathöfnum hans.
„ósköp eru þeir eitthvað mæðulegir og bognir í bak-
inu, framsóknarþingmennirnir", sagði frú, sem var stödd
inni í herberginu innar af efri deild, þegar stjórnarskrár-
umræðan fór fram. — Konuna hefði í raun og veru ekki
þurft að furða á þessu, því að svo mikla sómatilfinningu
hafa þó sumir framsóknarþingmennirnir haft, að þeir hafa
blygðast sín fyrir ýmsa framkomu Jónasar, enda þótt þá
hafi brostið þrek og manndóm til þess að losa sig við
ósómann.
Töpin hjá íslandsbanka.
Eitt ráðið, sem Jónas Jónsson greip til, til þess að
verja gripdeildir sínar á fé ríkissjóðsins var það, að romsa
upp úr sér öllum töpunum, sem íslandsbanki hafði orðið
fyrir á Gísla Johnsen, Sæmundi Halldórssyni, Stefáni Th.
og Copland. — Hefir hann mörgum sinnum áður komið
með þessa romsu alla í Tímanum, og var hún nú í engu
frábrugðin, nema því, að hann rakti hvernig skuldir þess-
ara manna hefðu aukist frá ári til árs. — En hann gætti
þess ekki, að við þennan upplestur varð ýmsum það ljóst,
sem ekki vissu það áður, að skuldir þessara. manna við
bankann höfðu aðallega myndast eftir að framsóknar-
stjórnin tók við völdum og Tryggvi Þófhallsson varð for-
maður bankaráðsins. — Vopnið snerist því algerlega við
í höndum hans og sýndi, að jafnt bankaráðsformanns-
stöðunni, sem annarsstaðar hafði Tryggvi verið sama eft-
irlitslausa og gagnslausa druslan. — Benti Magnús Guð-
mundsson á þetta og gat hvorugur ráðherrann nokkru
svarað.
Lofið um Jóhannes.
Þegar Tryggvi Þórhallsson reyndi að verja hina gíf-
urlegu fjáreyðslu 1931, er gjöldin samkvæmt landsreikn-
ingnum fyrir þetta ár komust upp í röskar 26 milj. kr. og
urðu 16 milj. kr. meiri en áætluð voru á fjárlögunum, kom
hann aðallega með þá afsökun, að mest af þessu fé hefði
eyðst vegna hátíðahaldanna 1930, en jafnframt lauk hann
hinu mesta lofsorði á, hvernig hátíðin hefði farið oss úr hendi
og kvað það einna mest að þakka hinum ágæta formanni
hennar Jóhannesi Jóhannessyni.
f svarræðu sinni sýndi Magnús Guðmundsson fram á,
með óhrekjandi tölum, að eyðslan vegna Alþingishátíðar-
innar, hefði aðeins numið tæpri miljón króna og væri því
að eins örlítill hluti af hinni óhæfilegu eyðslu þessa árs.
En viðvíkjandi lofinu um Jóhannes sagði hann, að það
kæmi nokkuð seint, því að eins og öllum væri kunnugt,
hefði Tíminn og starfsbróðir Tryggva Þórhallssonar, eng-
ann mann ofsótt með meira rógi en Jóhannes Jóhannesson.
NEÐHNTflLOHR
ÍSLIISHBH VðRDR
Trawlbuxur
Trawldoppur
Vinnuskyrtur
Oliusiðstakkar
Oliubuxur
Oliupils
Olíusvuntur
Sióliattar
Nankinsfatnaður
Sjóvetlingar
Leóuraxlabönd
Madressur
Kústar og burstar
allskonar
Botnvörpur
og hlutar í þær
Þorskanet 16, 18,
20 og 22 möskva
Uppsettar lóðir
Lóðarstokkar
Smokkönglar
Snurpinótasigur-
naglar
Snurpinótablakkir
Fiskigoggar
Grunnloð
Blýlóð,
3 stærðir
fyrirliggjandi:
Carbidlugtir
ásamt framleiðara
Bárufleygar
(lýsispokar)
Bjarghringsdufl
Drifakkeri, 3 stærðir
Segl fyrir skip og báta
Fiskábreiður
Bifreiðaábreiður
Lúgupressingar
Tjold, allar stærðir
og gerðir
Stangabaujur
Lúgufleygar
IFLIB ISLEHSKHH IBDHB!
0. ELIIHRSEH.
i Sióklæðagerð
• íslands.
• FranleiAir:
•
® Síðstakka, tvöfalda, úr
© Talkumstakka, tvöfalda, úr lérefti. a
® Drengjastakka, tvöfalda, úr lérefti.
® Hálfbuxur, tvöfaldar, úr striga. @
® Kvenpils, tvöföld, með tveimur smekkjum. ©
® Kvenpils, tvöföld, úr striga. ©
? Kvenkjólar (síldarstakkar). ®
^ Svuntur, tvöfaldar, úr striga. ®
Svuntur, einfaldar úr lérefti.
£ Kventreyjur, tvöfaldar, úr lérefti.
^ Karlmannatreyjur, tvöfaldar, úr lérefti.
© Karlmannabuxur, tvöfaldar, úr lérefti. g*.
© Drengjabuxur, tvöfaldar, úr lérefti. a
© Sjóhatta (enska lagið).
© Ermar, einfaldar, úr sterku lérefti. g
© Vinnuskyrtur (,,Bullur“), úr striga. ©
# Ullar-síðstakkar (,,Doppur“). ©
® Ullar-buxur (,,Trawl“-buxur). ©
® Blá Nankins Vinnuföt („Overalls"). ©
• H.f. Sjóklæðagerð íslands. ©
Reykjavík. ---- Sími 1085. ©
Brunalyktin af óþverranum.
Magnús Jónsson hóf hina snjöllu ræðu sína með því,
að fagna yfir, að menn í tugþúsunda tali út um land gæti
nú hlustað á ádeilurnar á stjórnina fyrir alla stjórnar-
háttu hennar. — Kvað hann, að ef þess hefði verið kostur
á undanförnum árum, að sýna þjóðinni til fulls, hvernig
umhorfs væri í þessu stjórnareldhúsi, þá mundi þessa eld-
hússdags ekki hafa verið þörf, því þá mundi stjórnin hafa
verið brunnin upp til ösku í sínu eigin eldhúsi og ekkert
annað eftir, en ólyktin, sem ávalt kemur, þegar óþverra
er brent.