Stormur


Stormur - 08.08.1939, Síða 4

Stormur - 08.08.1939, Síða 4
4 STORMUR Eg hafði mjög lítið að gera og lá í bókum. Las eg nú mikið ljóðmæli Einars Benediktssonar og fekk þá flugu í mig, að nauðsynlegt væri vegna alþýðumenning- arinnar, að eg héldi fyrirlestur um skáldskap Einars, bæði á Blönduósi og fram um sveitir. — Fékk eg leyfi til þessa fyrirlestrahalds hjá sýslumanni, sem brosti að, og kallaði mig „prófessorinn". Ekki vildi eg eiga það á hættunni, að birta nú þessar skýringar mínar á kvæðum Einars, en allmikið barg það við heiðri mínum, og aflaði mér jafn vel mikils hróðurs hjá sumum, að eg hafði lesið ritgerð um skáldskap Einars eftir Guðmund Finnbogason, sem birtist í „Skírni“, og stal eg þaðan svo sem ég mátti, en reyndi þó að breyta dálítið til um orðalag. En þetta fyrir- lestrahald mitt vakti hina mestu eftirtekt, og stóðu sumir í þeirri meiningu, að eg væri einhverjum undragáfum gæddur. Frú Lucinda, kona Gísla, var mesta ágætiskona. Hún var mjög vinnusöm og sat við tóvinnu alla daga. Nú kom henni það til hugar, þar sem hún vissi, að eg hafði mjög lítið að gera, að láta mig hjálpa sér til við tóskapinn, og átti eg að kemba fyrir hana. Eg kveið þessu ákaflega, því að eg var orðinn vanur frjálsræðinu, en þorði ekki í móti að mæla. — Ekki bætti það úr skák, að stúlkurnar stríddu mér mjög á þessu, og „gottuðu" sig yfir, að eg skyldi settur á kvennapallinn. Nokkra daga hafði eg mig undan þessu með því, að vera dunda úti, en loks komu sterngileg boð frá frá frúnni, um að eg ætti að byrja. — Þorði eg nú ekki að óhlýðnast, og var eg settur á stól við hlið frúarinnar og fengin ull og kambar. — Sýslumaður gekk framhjá í þessu, leit til mín glottandi og sagði: „Eruð þið nú búnar að gera kvennmann úr prófessorn- um“. — Skammaðist eg mín nú hálfu meira en áður og braut heilann um, hvernig eg fengi mig leystan úr þess- ari prísund. Alt í einu datt mér ráð í hug: — Eg byrjaði að kemba, en ýtti kambinum alltaf til baka aftur, svo að ullin kembdist ekkert og lét svo þenna lopa, eða hvað það var, við hliðina á stólnum, og hrúgaðist þetta mjög upp. — Frúin var mjög nærsýn og sá því ekki vinnu- brögðin. Þegar eg hafði kembt nokkra stund, gekk Gísli aftur um og leit á hrúguna. Honum mun hafa þótt hún grunsamlega há, því að hann þreifaði á henni, og sagði svo við konu síná: „Mikinn afbragðs kembingarmann hefir þú fengið þarna góða mín“, og gekk svo burtu. — Þegar frúin var búin með sínar kembur, ætlaði hún að byrja á mínum, og þreif eftir einni, en þá varð aðeins fyrir henni einhver flókahrúga, en engin kemba. Frúin varð alveg orðlaus dálitla stund en sagði síðan, að eg mætti fara, hún hefði séð, að eg vildi gera þetta, en eg væri sá dæmalaus klaufi, að það væri ómögulegt að nota mig til þess. — Hefi eg ekkert hrós fengið um dagana, sem hefir glatt mig meira en þessi áfellisdómur frúar- innar, en þegar Gísli sá mig, hvíslaði hann: „Þarna varstu brögðóttur Maggi“. Gísli sýslumaður var hið mesta ljúfmenni og gleði- maður, enda mjög vinsæll af héraðsbúum. — Hann var starfsmaður mikill, manna gestrisnastur og hinn mesti höfðingi heim að sækja. — Hann og kona hans urðu fyrir þeirri sáru raun að missa fjögur börn á unga aldri, sem voru einhver þau fríðustu og yndislegustu börn, sem eg hefi þekt, en þetta mótlæti og annað, báru þau með hinni mestu karlmennsku. í síðasta tbl. misprentaðist í greininni um Vatnsdalinn, að Jón á Hofi hafi verið tíu ár gangnastjóri, en hann var það í fimmtíu ár. Næst síðasti söludagur í 6. flokki er í dag, þriðjudag. Gleymið ekki miðum yðar. HAPPDRÆTTIÐ. Hið íslenska Fornritafélag. Nýtt bindi er komið út: Vatnsdælasaga Hallfreðar saga, Kormáks saga, Hrómundar þáttr halta, Hrafns þáttr Guðrúnarsonar. EINAR ÓL. SVEINSSON gaf út. • Verð kr. 9,00 og kr. 16,00 í skinnbandi. Fæst hjá bóksölum. Aðalútsala: Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar. Kol og koks Nægar birgðir ávallt fyrirliggjandi. Verð og gæði hvergi betra. Kolasalan s.f. Reykjavík, Símar: 4514 & 1845. Ríó-katfi aíltaf fyrirliggjandi. Þórður Sveinsson & Co. Isafoldarprentsmltlja h.t.

x

Stormur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stormur
https://timarit.is/publication/1027

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.