Stormur - 06.08.1940, Side 3
STORMUR
3
starfsmenn stjörnardeildanna hér séu sama sinnis og hinir er-
lendu starfsbræður þeirra, um það er þeim, sem þetta ritar
ekki kunnugt, en hvort sem svo er eða ekki, þá er það víst,
að þeirra hefir ekki þurft með síðustu árin til þess að ota
fram tota sósíalismans hér á landi. Þeir flokkar, sem með
stjórn landsins hafa farið frá 1927—1939 hafa gert það sem
þeir hafa getað til þess að koma þessari stefnu í framkvæmd
hér á landi. — Hafa Framsóknarmenn engu síður en hinir
yfirlýstu sósíalistar gengið að þessu með hinum mesta dugn-
aði. Er hér ekki rúm til þess að rekja allar aðgerðir þeirra í
þessum efnum, en á það raá aðeins minna, að þeir stofnuðu
hverja einkasöluna af annari, heftu einstaklingsfrelsið á alla
lund, gerðu ríkið að einskonar meðeiganda eða ítakshafa í öll-
um eða því nær öllum jörðum í einkaeign, drógu bæði það
vald, sem að réttu lagi heyrði undir Alþingi og dómstólana
undir framkvæmdavaldið, og unnu sleitulaust að því, að ríkis-
valdið hefði afskipti af því nær öllum hlutum, enda er nú svo
komið, að fáir geta um frjálst höfuð strokið, og jafnvel þung
refsing liggur við því að selja sína eigin eign, sbr. mjólkur-
og kjötlögin.
Um leið og þetta ríkisvald hefár færst svo mjög í auk-
ana, hefir lögum og reglugerðum rignt niður um alla skapaóa
hluti. Fáir eða engir fylgjast með öllum þessum lagamýgrút,
og því geta flestir orðið sekir við lög eða reglugerðarákvæði,
þótt þeir viti ekki betur en þeir séu heiðarlegir og grandvarir
borgarar. Hið mesta hrákasmíði er á sumum þessum lögum,
og oft og einatt stangast lögin og reglugerðirnar sem settar
eru samkvæmt þeim, á. Altítt er líka að lögin sjálf eru aðeins
grind eða rammi, sem svo á að fylla út í með reglugerðar-
ákvæðum og er með þessu gerð lævís tilraun til þess að draga
löggjafarvaldið úr höndum þingsins í hendur stjómarinnar.
Er þeim, sem þetta ritar ekki kunnugt um, að á þetta hafi
verið bent, eða a. m. k. ekki svo sem þörf væri á, en hér er
stór hætta á ferðum, a. m. k. í augum allra þeirra, sem vilja
aftra því að ráðuneytin eða stjórnardeildirnar hrifsi til sín
meira vald en þeim ber.
Jafnframt því, sem afskifti ríkisvaldsins hafa aukist stór-
lega og alt stefnt í þjóðnýtingaráttina, hefir svo skrifstofu-
bákn þess opinbera aukist að sama skapi. — Skrifstofudeild-
ir stjórnarráðsins eru nú komnar út um allan bæ og skrif-
stofumannafjöldinn vex óðum með ári hverju, jafnvel svo að
mörgum tugum þúsunda skiftir. Þá er og afarmikið og dýrt
skiúfstofuhald hjá einokarverslununum og stofnunum þeim,
sem ríkið hefir sett á fót. Eru skrifstofustjórar þessara stofn-
ana með helmingi hærri laun en prófessorar Háskólans, en
tappatogarar Áfengisverslunarinnar hafa svipuð laun og
æðstu embættismenn íslensku ríkisins. I sumum þessum ríkis-
stofnunum hefir starfsmannafjöldinn svo lítið að gera, að
svefnþungir menn geta varla haldið sér vakandi í vinnutím-
anum. Mjög fer orð af því að afgreiðslan í sumum þessum
ríkisstofnunum og ríkisverslunum sé mjög silaleg og sein.
Hvað lítið sem er, verður að ganga í gegnum hendur fjölda
manna og oft ýtir hver af sér og telur að afgreiðslan heyri
undir annan starfsmann eða aðra deikl.
Sumir þessara opinberu starfsmanna hafa ótal störf með
höndum og sinna því öllum illa en taka stór laun fyrir. Má
óhætt segja, að fátt sé nauðsynlegra, margra hluta vegna, en
að rækileg endurskoðun væri gerð á öllu þessu skriffinsku-
fargani, en enginn þarf að ætla, að það verði gert á meðan þeir
ráða mestu í stjórn landsins og á þingi, sem hafa slegið þessa
skjaldborg málaliðsins umhverfis sig.
Jerimíasarbréf
Reykjavík í júlí 1940.
Gamli kunningi!
Enn hefir „vondi maðurinn" eins og Útvarpið segir að
Halifax hinn breski hafi kallað Hitler, ekki sent ára sína
hingað svo að enn erum vér frjálsir þegnar Hennanns og
Georgs VI. Bretakonungs.
Illa fór það með úlfhundana og svo er að sjá sem Hitler
verði alt til gæfu, því að ekki er ólíklegt að honum hefði orð-
ið torsótt landið, ef þeir hefðu lifað. Hafa sum blöðin verið
að fleipra um það, að þeir hafi verið fengnir hingað til þess
að eyðileggja bölvaða minkana, sem alt útlit er fyrir að bi’áð-
um verði skæðari æðarvarpinu okkar en lögreglustjórinn okk-
ar fyrrverandi, en þetta er hinn mesti misskilningur, þeim
var ætlað miklu göfugra hlutverk því að landvarnarráðherr-
ann okkar ætlaði að láta þá fara glefsandi og froðufellandi
móti þýsku hermönnunum, svo að þeim féllust hendur eða
ærðust af óttanum. Var það gamalt herbragð fyrrum að
magna kýr sem fóru beljandi og ragnandi á móti óvinalið-
inu. — Að sjálfsögðu hafa hundarnir verið grafnir á ríkis-
ins kostnað og auðvitað borgar ríkið líka skaðabætur þeim
sem fyrir fjármissinum urðu, en hvort uppihaldskostnaður
þeirra verður færður gjaldamegin hjá Vífilstaðahælinu eða
sérstök fjárveiting kemur á aukafjárlögunum, er enn ekki
vitað um. En mælt er, að Bretinn hafi farið að búast betur
um síðan hundana misti við, og heldur er sagt aðráðherrun-
um hafi orðið tíðförult úr bænum síðan.
Ekki er alveg örgrant að það bóli ósköp lítið fyrir því
nú síðustu dagana, að Morgunblaðið sé farið að efast um að
handleiðsla Jónasar og Kai’akulsliðs hans muni leiða okkur
inn í Paradís velsældar og hamingju. Mátti jafnvel ráða það
af einum ieiðara þess að rétt mundi að bera fram frumvarp
um kjördæmabreytingu á næsta þingi. Þjóðv. greip Moggann
undir eins á orðinu og lét á sér skilja,að þingmenn sínirmundu
bera frumvai-pið fram svo að það kæmi í ljós hver hugur
fylgdi máli hjá þeim sem að Morgunblaðinu standa. Hefir
Morgunblaðið ekki farið inn á málið síðan, en enginn þarf
þar fyrir að ætla að það hafi snúist í málið, því að þá væri
Bleik brugðið ef það hvarflaði frá stefnumálum sínum eða
fylgdi þeim ekki fram með vitsmunum og festu.
Mikið kvarta blessaðar húsmæðurnar um hina síauknu
dýrtíð, en fleiri mega kvarta en þær, t. d. þeir sem olíuna
kaupa. Hún mun nú vera seld á 34 aura, en að því er fullyrt
er mun hún ekki kosta nema 16—18 aura hingað komin og
er þetta því mjög viðunandi álagning fyrir seljendurna. En
stríðskostnaður Bretans er mikill og agentinn þeirra Héðinn
er dýr svo að von er, að þeir þurfi að fá það einhversstaðar
frá.
Nú fara blessuð berin að koma en viðskiftamálaráðherr-
ann mun vera alveg ákveðinn í því að svipta ekki moldina þess
um ávexti sínum. Hinsvegar leyfir hann að sykrinum sé mok-
að í bakaríiskökur, enda er sagt að honum þyki glacerað vín-
arbrauð óhóflega gott eins og mörgum börnum þykir. —
Ef ég verð ekki kominn i fangabúðir í ágúst sendi ég
þér línu.
Beiddu með Halifax.
Þinn einlægur
Jerimías
Efnalaug Reykjavíkur
Kemisk fatahreinsun og litun
Laugaveg 34 • Sími 1300 • Reykjavík
Höfum aftur fengið alla Iiti.
LITU M svart á mánudögum.
— dökkblátt á þriðjudögum.
— dökkbrúnt á miðvikudögum.
Aðra liti seinnipart vikunnar.
Sent um alt land gegn póstkröfu.
Snkjum. Sendum.