Stormur - 16.08.1940, Side 1

Stormur - 16.08.1940, Side 1
STORMUR Ritstjóri: Magnús Magnússon XVI. árjf. Föstudaginn 16. ágúst 1940. 18. tölublað. „Að ári liðnu” í þeirri lognmollu samábyrgðarinnar, yfirdrepsskapar- | ins og lítilmenskunnar, sem ríkt hefir í blöðunum og stjórn- málalífinu síðan hinn fimmhöfðaði Mökkurkálfi fæddist L í þenna heim, má það teljast til viðburða, ef einarðleg og hispurslaus grein birtist í blöðum eða tímaritum vorum. -— Það var því ekki að furða, þótt grein Björns Ólafssonar stórkaupmanns: Að ári liðnu, í hinu myndarlega mánaðar- riti Verslunarmánnafélags Reykjavíkur, „Frjáls verslun“, vekti eftirtekt, og án efa fyrirfinnast þeir menn innan Sjálfstæðisflokksins, sem hafa fengið skjálfta, er þeir lásu hana, líkan þeim, sem svikarinn fær stundum, þegar hann er leiddur fram fyrir glöggan og skarpskygnan dómara. Vegna þess, að allur þorrinn af þeim, sem „Storm“ lesa, einkum utan Reykjavíkur, munu ekki sjá „Frjálsa versl- un“, nema þá ef til vill með höppum og glöppum, vill Stormur leyfa sér að taka fáeinar glepsur úr þessari skor- inorðu grein Björns Ólafssonar, en hann er eins og kuhn- ugt er flestum mönnum kunnugri öllu, sem að verslunar- málum vorum lýtur. Björn víkur fyrst að því, að kosningar muni fara fram á næsta ári, og þá þurfi ekki að efa, að forvígismenn Fram- sóknarflokksins muni ákveðnir í því, ef þéir fái nógu sterka pólitíska afstöðu, að „láta til skarar skríða gegn verslun- arstéttinni“. Verslunarstéttin þurfi því ekki að ganga þess dulin, hvað bíði hennar, ef hún geti ekki sfeð sjálfri sér far- borða, því annarsstaðar frá þurfi hún ekki að vænta sér mikillar hjálpar. Svo segir Björn: „Síðasta missirið hefir leitt það í ljós, að hún hefir lítils trausts að vænta hjá Sjálfstæðisflokknum eins og hann er nú skipaður. Flokk- urinn, sem fyrir einu ári var nærri klofnaður á verslunar- málunum, hefir síðan haldið á þeim með hálfvelgju, sem litlu hefir komið fram. Meðferð málanna út af fyrir sig hefir ge.rt verslunarstéttina að óánægðri heild innan flokks- ins. Loforð hafa verið gefin, stór orð hafa verið sögð og ákvarðanir hafa verið samþyktar, sem hjaðnað hafa niður, bráðnað eins og mjöll á vordegi í sóls'kini stjórnarsamvinn- unnar“. — Og ástæðan til þess að svona hefir farið er sú, að áliti Björns, „að Framsóknarflokkurinn vissi frá önd- verðu, að bak við hin stóru orð Sjálfstæðisflokksins var aldrei sú alvara, er með þurfti“. Og svo heldur Björn áfram og segir: „Ef stjórnarsamvinnan hefði komið aðalbaráttumálum flokksins í höfn, að undanteknum verslunarmálunum, þá mætti segja, að flokkurinn þyrfti ekki að kvarta, og versl- unarstéttin mætti eftir atvikum sætta sig við sitt hlutskifti í svipinn. En þeir munu nú margir kjósendur flokksins, sem spyrja sjálfa sig, hvað áunnist hafi í sambúðinni. Og um þessar mundir hlakka andstæðingarnir yfir því, í blöð- um sínum, að flokkurinn hafi engu komið fram. Hann hef- ir barist fyrir lækkun ríkisgjalda, afnámi óþarfra embætta og ríkisstofnana. Hann hefir barist fyrir lagfæring skatta- kerfisins, sem komið er út í hinar svörtustu öfgar. Hann heí'ir kvartað undan misrétti núverandi kjördæmaskjpun- ar, og hann hefir efst á stefnuskrá sinni athafnafrelsi ein- staklingsins og frjálsa verslun. Engu af þessu hefir flokk- uriiin komið áleiðis með stjórnarsamvinnunni, svo teljandi sé......“ Og enn segir Björn: „Friður, sem keyptur er með samvinnu allra flokka, skapar ábyrgðarleysi í stjórnmálunum, þegar til lengdar lætur, opnar leiðina fyrir sinnuleysi og móki vegna þess skjóls, sem samábyrgðin gefur, og þeirra þæginda, að ekk- ert er gagnrýnt opinberlega af því, sem stjórnin gerir.“ Og loks skulu svo að síðustu þessi stór athyglisverðu ummæli Björns tilfærð: „Hlutverk Sjálfstæðisflokksins er að vera í sókn. Helm- ingur af kjósendum landsins ætlast til þess, býst við því, gerir kröfu til þess. Hvar sem stefnumál flokksins eru vel og öflugt skýrð fyrir almenningi, þar hefir flokkurinn yfir- gnæfandi meiri hluta kjósenda. Við hinu er ekki að búast, að honum vaxi fylgi, þar sem málafærsla flokksins kemur aldrei fyrir augu eða eyru almennings. En svo er það í mörgum sveitum landsins. Þar sést aldrei annað blað en Tíminn. Hann hefir ekki til þessa lagt sig í framkróka til þess að láta lesendur sína vita hið rétta í þeim málum, er snerta Sjálfstæðisflokkinn“. II. Það kom ekki svo sjaldan fyrir, að persónulegir vinir Tryggva heitins Þórhallssonar reyndu að bera, í bætiflák- ann fyrir stjórn þeirri, sem hann veitti forstöðu á árunum 1927—1930 með því, að enda þótt margt óhæfuverkið hefði verið unnið, þá hefði hann þó mörgu afstýrt, og jafn- vel þeim verstu. — Má vel vera, að það hafi verið rétt, að Tryggva hafi tekist að afstýra verstu óhæfuverkunum, sem Jónas hafði þá í huga að vinna, en flestum, sem kunnugir eru þessu versta stjórnartímabili í sögu íslands, mun þó finnast, að tæpast hafi verið hægt lengra að komast í spiltu stjórnarfari en þeim Framsóknarmönnum tókst þá. Það má líka ef til vill segja það, eða geta þess til, að verr mundi nú hafa ýmislegt farið, ef Sjálfstæðismanna hefði ekki notið við í stjórn landsins, en hinu verður ekki neitað, að það er sáralítið eins og Björn Ólafsson segir, sem þeim hefir tekist að koma í framkvæmd, eða fá lagfær- ingu á, af því, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefir á stefnu- skrá sinni. Og þótt öll sanngirni sé viðhöfð, þá er ekki hægt að-neita því, að forystumennirnir hafa ekki v.erið eins skel- eggir sem skyldi og því miður vir&ist svo sem þá hafi brost- ið bæði kjark og harðfengi á móts við andstæðinginn, og því

x

Stormur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stormur
https://timarit.is/publication/1027

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.