Stormur - 09.06.1941, Blaðsíða 4
4
STORMUlt
I dag er sfðasti sðludagur í 4. flokki
inu til. Vald Alþingis er komið í hendur ríkisstjórnarinnar
og fámennrar klíku innan hvers hinna ráðandi stjórnmála-
flokka. Allur þorri þingmannanna hlýðir í auðmýkt þeim á-
kvörðunum, sem innan þessarar klíku eru teknar, en þeir
sem sannfæringu hafá, eru ofurliði bornir og jafnvel
reynt að bola þeim út úr stjórnmálunum. Um lýðræðið
gildir það sama, kjósendurnir ráða engu, heldur sú fámenna
klílca sem hrifsað hefir völdin til sín. — Þessi klíka velur
þeim þingmennina og þessi klíka hefir !agt slík bönd á allt
athafnafrelsi þjóðarinnar, að hún er orðin um mjög fátt
sjálfri sér ráðandi. Svo mikið er einræðið orðið að í pólitísk-
um, fjölmennum félögum, má jafnvel ekki gera samþykktir
um mál, ef þessari valda klíku kannn að koma það illa að
vilji fundarmanna komi í ljós. Og þeir menn, sem einhverja
gagnrýni vilja hafa og beygja sig ekki flatmagandi og skríð-
andi fyrir þessum Mússolinum og Hitierum eru stimplaðir
sem ótrúir flokksmenn, sem fari með róg og baknag um
bestu menn ílokksins. Jafnframt þessu eru svo blöð flokk-
anna vendilega lokuð fyrir allri gagnrýni og ritstjórarnir
álgerlega í vasanum á þessum klíkum. Síðan er þögnin og
yfirhylmingin varin með því, að ekki megi ræða málin opin-
berlega vegna „ástandsins."
Þér finst nú ef til vill kunningi að ég hafi verið nokkuo
stórorður og það getur jafnan verið að þú haldir, að ég fari
með ýkjur, og að þetta séu að miklu leyti tilhæfulausar get-
sakir og aðdróttanir á löggjafarþing vort. En því miður er
þetta alt saman satt og þeir sem best þekkja tíl og klýju-
lausasta hafa andlegu sjónina munu staðfesta að þetta sé
alt saman rétt. Engan þarf því að furða þótt þingið njóti
lítillar virðingar hjá þjóðinni, því að þótt margir góðir menn
og vel gefnir eigi þar sadi og þótt margt nýtilegt komi frá
því á ári hverju, þá eru samt þeir galíar á því, sem lýst hefir
verið hér að framan, svo stórvægilegir, að það væri blátt á-
fram um siðferðilegan sljóleika og blindu að ræða hjá kjós-
endunum ef þeir sæu þá ekki. — Og þessir gallar eru svo
stórháskalegir að þeir geta auðveldlega. leitf til fulls ein-
ræðis einhverra æfintýramanna ef ekki verður úr þeim bætt.
En þótt svo yrði ekki þá er spilt og sjúkt lýðræði litlu betra
en einræði ef það er þá nokkru betra. Það er hárrétt, sem
Sigurður Guðmundsson skólameistari segir í grein sinni:
Kraftúð og samúð, sem kafli var birtur úr í 12. tbl. Storms:
„Lýðræðið verður endalaust að gagnrýna sjálft sig, vinnu-
brögð sín og ráð. Æðstu trúnaðarmenn lýðræðisins verða að
kunna þá list, sem oss Islendingum er mörgum tornumin,
að taka gagnrýni með beiskjulausri ró. Hver mikill trúnað-
armaður lýðræðisins verður að letra á minnisskjöld sinn þau
Hávaorð, að „esa sá vinur, er vilt eitt segir.“ — Þeir menn,
sem eru með sífelt frelsis og lýðræðisgaspur á vörunum,
en vinna að því að leggja alt einstaklingsfrelsi, bæði athafna
og skoðanafrelsi í fjötra, eru sönnu lýðræði margfalt hættu-
legri en ógrímuklæddir andstæðingar þess. — Foringjar
jafnaðarmanna og framsóknarfloksins hafa sífelt þóst vera
að berjast fyrir lýðræði og frelsi, en það eru samt þeir, sem
mest hafa unnið að því að eyðileggja hvorutveggja á undan-
fömum 15 árum. — Þeir hafa verið grímuklæddu fjand-
mennirnir.
Nú vilja framsóknarmenn og jafnaðar hafa æðsta valds-
Tilkyrming.
Með því að þegar hafa verið gerðar ráðstafanir-
til innflutnings á þeim notuðu bifreiðum frá Bret-
landi, sem leyft verður að flytja til landsins á þessu
ári, eru menn alvarlega varaðir við því að gera;.
nokkrar ráðstafanir til slíkra innkaupa.
Nær þetta til allra bifreiða, sem ekki eru þegar-
komnar til landsins.
Jafnframt skal það tekið fram að þeir, sem kynnu
að gera slíkt í heimildarleysi, verða látnir sæta á-
byrgð, samkvæmt lögum.
Reykjavík, 30. maí 1941.
Bifreiðaeinkasala ríkisins.'
Kol og koks
Nægar birgðir ávallt fyrirliggjandi.
Verð og gæði hvergi betra.
Kolasalan s.í.
Reykiavík,
Símar: 4514 & 1845.
fflélvoses
Tea
RIO-kaffi
altaf fytirliggjandi.
Þórður Sveinsson & Co. H.f
manninn á Bessastöðum. Er þá ekki rétt til samræmingar
að flytja þingið í Kópavog. — Allur þorri þingmanna hefir
hvort sem er unnið ófrelsinu, klíkuskapnum og fámennis-
harðstjórninni sinn hyllingareið. Þinn einlægur
Jeremías.
ísafoldarprc-ntsmiSja h.f.