Sendiboðinn - 18.12.1945, Blaðsíða 3
3
SENDIBOÐINN
GOTT UPPELDI HEIMTAR
REGIUBUNDIB IIF
Allir, sem við uppeldi barna fást, verða að gera
sér þess fulla grein, að heilbrigt og gott uppeldi
heimtar reglubundið líf, réttlátan aga og fastar
Ufsvenjur, sem ekki má kvika frá. Sé þetta þrennt
ekki fyrir hendi, er hætt við, að uppeldið verði í
molum.
Þvi verður ekki neitað, að uppeldi barna og ungl-
inga, hér í Siglufirði er all misjafnt og virðist vera
allmikið ábótavant. — Það er þó sérstaklega eitt,
sem ég vil gera að umtalsefni hér og það er sú
óregla og stjói’nleysi í daglegum lífsvenjum barna,
sem svo mjög ber á.
tjTTVERUR BARNA
Það er ekki óalgeng sjón, og það nú í svartasta
skammdeginu, að sjá börn á öllum aldri, 5—12 ára,
úti að leikjum og allskonar ærsluin fram eftir öllu
kvöldi, til kl. 22—23.
1 myrkum húsasundum eða illa lýstum götum eru
þau með óhljóðum og klúryrðum að kallast á og
elta hvert annað.
Ég er alveg viss um, að ef foreldrar gerðu sér
yfirleitt fulla grein fyrir því, hvað þessar kvöld-
útiverur barnanna eru skaðlegar, og beint stór-
hættulegar, myndi niargur ekki leyfa börnum sín-
um að vera úti eftir að orðið er mj'rkt af nóttu. Það
er og víst, að ekki ósjaldan eru fyrstu ógæfusporin
einmitt stigin í slæmum félagsskap í skjóli myrk-
ursins. Auk þessa eru slíkar útiverur á síðkvöldum
beint brot á lögreglusamþykkt bæjarins.
I 19. gr. lögreglusamþ. Siglufjarðarkaupstaðar
segir svo:
„Foreldrum og öðrum hlutaðeigendum er skylt
að annast um, að tilhlýðilegt eftirlit sé haft með
óstálpuðum börnum, sem eru á þeirra vegum, þegar
þau eru á almannafæri. Börn yngri en 12 ára mega
ekki vera á almannafæri seinna en kl. 20 á tíma-
bilinu frá 1. sept. til 14. maí, og ekki seinna en kl.
22 frá 15. maí til 31. ág., nema þau séu í fylgd með
fullorðnum. Lögreglan getur bannað börnum að
vera á bryggjum og bryggjupöllum, ef þau ganga
þar ekki að vinnu, né eiga þangað brýnt erindi að
dómi Iögreglunnar.“
Samkvæmt þessu mega börn, innan 12 ára aldurs,
alls ekki vera úti eftir kl. átta á kvöldin, að vetr-
inum, nema þau séu í fylgd með fullorðnum. Þetta
ættu foreldrar vel að atliuga. Því miður fylgja for-
eldrar ekki þessum fyrirmælum lögreglusamþykkt-
arinnar. Lögreglan á auðvitað að sjá um, að þessar
reglur séu haldnar, en slíkt mun verða erfitt, nema
þeir, sem börn hafa í umsjá, leggi sig alla fram um
að sjá um, að börnin fari ekki út eftir að dimmt er
orðið að kvöldinu. Sjálfsagt er fyrir þá foreldra,
sem ekki ráða við útiveru barna sinna að leita til
lögreglunnar um aðstoð við að fá barnið til að
halda settar reglur og fara ekki út eftir seftan
tíma. Það er með öllu óverjandi, að nokkur hluti
barna fái að vera úti á þeim tíma, sem öðrum er
ekki leyft það. Þeir foreldrar, sem leyfa börnum
sínum slíkt, eru ekki eingöngu að brjóta lögreglu-
samþykkt bæjarins, heldur og einnig auka þeir á
erfiðleika þeirra barna, sem halda vilja settar
reglur. Börn, sem inni eru eftir kl. átta að kvöldi
vegna þess, að foreldrar banna þeim að fara út,
skilja ekki réttmæli þeirrar ráðstöfunar, ef þau sjé
jafnaldra sína að vera að leikjum úti á sama tíma
og þau fá ekki að fara út; þeim finnst þau órétti
beitt með sliku, og það getur valdið ýmsum erfið-
leikum. Hér verða allir að leggjast á eitt og stuðla
að því, að engin börn séu úti eftir þann tíma sem
lögreglusamþ. bannar. ^
Lögreglan þarf að ganga um bæinn um átta
leytið á kvöldin og minna þau börn, sem úti sjást
á það, að nú megi þau ekki vera úti lengur.
Ef tiltal dugar ekki verður lögreglan að fylgja þeim
heim, þar verða foreldrar að taka við þeim og sjá
um, að þau fari ekki út aftur.
HÁTTATÍMI OG SVEFN
Börnin þurfa mikið að sofa. Börn á aldrinum
5—12 ára þurfa 10 tíma svefn á sólarhring. Eitt af
því, sem nauðsynlegt er, að sé höfð fullkomin regla
á er háttatími barna. Það er um að gera að byrjað
sé nógu snemma að skapa góðan vana í þessum
efnum, vana, sem ekki má kvika frá.
Atvikin og annríkið mega ekki ráða því, hvenær
börnin eru látin hátta. Háttatíminn verður alltaf
að vera hinn sami, það er réttur barnanna, sem
annað verður að víkja fyrir. Börn á fyrrnefndum
aldri ættu ekki að fara að sofa seinna en kl. 9 á
kvöldin.
Óheppilegt er, að börn borði mikið rétt áður en
þau leggjast til svefns. Bezt er að þau borði 1—2
tímum, áður en þau fara að sofa. Þá verður svefninn
rórri og hvílir barnið betur. Börn, sem þurfa að
fara í skóla kl. 8,30 að morgninum verða þá að vera
búin að fá nógan svefn auk þess nægan tíma til að
klæða sig og matast áður en farið er í skólann.
Því miður er það algengt, að börn komi of seint í
skólann, og sum af þeim, sem rétt sleppa inn áður
en lokað er (en skólanum er lokað 5 mínútum eftir
að hringt er inn í tíma) hafa ekki haft nægan tíma
til að klæða sig og snyrta til og ekki tíma til að fá
neitt að borða. Ekki mun það óþekkt, að enginn sé
kominn á fætur á heimilinu þegar barnið þarf að
vera komið í skóla. Skólabarnið verður að fá nægan
svefn, nógan tíma til að klæða sig og borða, áður en
það fer í skólann. Börn, sem úti eru fram eftir öllu
kvöldi, koma of seint í skólann á morgnana og geta
ekki fylgst með í námi, slíkt skapar aftur ýmsa aðra
óreglu og lítilsvirðingu fyrir settum reglum, en
ekkert er hættulegra góðu uppeldi en virðingarleysi
barna fyrir að halda settar reglur, hverjar sem þær
eru.
Ef við viljum sjá um, að börn okkar fá gott upp-
(Framhald á 4. síðu).
\