Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1932, Page 9
7
ára. Landlæknir er hinn þriðji. Hann er formaður dómsins. Þá
kýs hver málspartur einn lækni úr flokki þeirra, er hafa undir-
skrifað reglur þessar.
Læknafélag Reykjavíkur og læknadeild Háskólans kjósa tvo
varamenn í gerðardóm til tveggja ára. Þeir taka sæti í dómn-
um, ef dómara er rutt eSa hann er forfallaSur.
Allar kærur og erindi til gerSardóms sendist formanni.
Fari annarhvor málspartur fram á þaS, hefir hann rétt til
aS rySja einum hinna föstu dómenda úr dómnum. Tekur þá
sá varamaSur sæti i hans staS, er dómurinn kveSur til þess.
Nú er landlækni rutt, og er þá sá dómsforseti, er læknadeild
Háskólans hefir kosiS.
GerSardómur hefir rétt til þess aS stefna báSum málspörtum
fyrir sig. Þeir geta og krafist þess, aS þaS sé gert. FerSir sín-
ar kosta þeir sjálfir, svo og þeirra dómenda, sem þeir hafa
kosið, ef þeir búa utan Reykjavíkur.
GerSardómur hefir rétt til aS vísa þeim málum frá sér, sem
hann telur aS leggja skuli fyrir dómstóla. Hann skal hafa lagt
dóm á hvert mál, er hann tekur til meðferðar, innan misseris
frá því málspartar höfðu ltosið dómendur.
Nú kýs annar málspartur engan í dóm og skulu þá hinir
dómendurnir tilnefna dómara fyrir hans hönd.
Allir, sem ritað hafa undir reglur þessar skulu skyldir að
hlýta úrskurði gerðardóms.
11. gr. Þeir læknar, sem i nokkru verulegu brjóta reglur þess-
ar, fara á mis við þau hlunnindi, sem talin eru í 7. og 8. gr.
Læknafélag íslands.
Svo fámenn og aflvana var íslenzka læknastéttin á síSastlið-
inni öld, að heita mátti að enginn félagsskapur þrifist meðal
lækna. Aftur höfðu gömlu læknarnir það til síns ágætis, að oft-
ast var bezta samkomulag milli nágrannalækna, og dyggilega
unnu þeir störf sín, þó litið kæmi í aðra hönd.
Rétt fyrir aldamótin (1899) rumska læknarnir og stofna til
almenns læknafundar i Reykjavík. Mættu þar ekki allfáir lækn-
ar og voru fjörugar umræður um ýms mál. Eitt þeirra var
stofnun íslenzks læknafélags, og var nefnd kosin til þess að
undirbúa það mál. Þetta fór þó í handaskolum, og eina málið,
sem komst i framkvæmd, var stofnun „Eirar“, alþýðlegs tíma-
rits fyrir heilbrigðismál. Kom það út í 2 ár, en borgaði sig
ekki og veslaðist upp.