Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1932, Side 14
12
11. gr. Nú telur stjórnin, að einhver félagi hafi gert sig
sekan í brotum gegn codex etkicus, eða öðru athæfi, sem ósæmi-
legt þykir fyrir stéttina, og skal hún þá, að athuguðu máli,.
skýra honum frá því og leita umsagnar hans og málsbóta. Telji
nú stjórnin, að ekki sé um mjög alvarlegt brot að ræða, en hins-
vegar sannað, að framkoma læknisins hafi verið ósæmileg, skal
hún í kyrþey gefa honum áminningu og benda honum bróður-
lega á, hversu komast mætti hjá slíku framvegis. Endurtaka
má slika áminningu. Sé brotið talið svo alvarlegt, að stjórnin
telji það með öllu ósæmilegt fyrir félaga í Læknafél. ísl., skal
hún víkja lækninum um stundarsakir úr félaginu og tilkynna
honum það með bréfi. Brottreksturinn telst frá dagsetningu til-
kynningarinnar. Þó skal þess hvergi getið opinberlega að sva
stöddu.
Telji nú læknirinn brottreksturinn ranglátan, skal honurn
heimilt að skjóta málinu til gerðardóms, og er úrskurður hans
úrslitadómur.
Nú telur læknir, sem vísað hefir verið úr félaginu, að hann
hafi síðar bætt fyrir brot sitt, eða ágreiningsefnið sé á annan
hátt úr sögunni, þá getur hann, eftir 2 ár frá brottrekstri, snúið
sér til stjórnarinnar með tilmælum um, að hún beri það upp á
aðalfundi, að hann fái fulla uppreisn mála sinna, og getur það
orðið samþykkt nieð % atkvæða.
12. gr. Hafi stjórnin synjað lækni, sem ekki hefir verið vísað
burtu, um upptöku í félagið (sbr. 6. gr.), getur hann krrafist
þess, að málið sé lagt fyrir aðalfund, og ræður þá afl atkvæða
hvort umsóknin er samþykkt eða ekki.
Læknafélag íslands.
Félagsgjöld.
Á Læknaþinginu 1931 var ársgjaldið fyrir 1932 ákveðið 75 kr..
og 40 kr. fyrir unga lækna, kandidata. Af þessu gjaldi renna 25
kr. til Ekknasjóðs, en Læknablaðið hefur framvegis sérstakan
reikning og verður gjald fyrir það ekki framvegis innifalið i
ársgjaldinu.
Þetta er þó eigi svo að skilja, að læknar, sem ekki treysta sér
til að greiða svo há gjöld, geti ekki verið i félaginu. Þeir verða.
þá að segja til, og hvað þeir treysta sér til að greiða.