Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1932, Side 15
13
Læknar eru alvarlega áminntir um að greiða þessi gjöld sem
fyrst. Sérstaklega eru héraðslæknar og aðrir læknar i fjarliggj-
andi héruðum beðnir að gefa fjárreiðumönnum sínum hér um-
boð til þess að greiða þessi gjöld fyrir sig. Að öðrum kosti verð-
ur erfitt að vita hverja ber að telja meðlimi og hverja ekki;
hverjir vilja styrkja L. í. i viðleitni þess til að skapa ísl. lækn-
um viðunanleg kjör, stéttinni og almennum heilhrigðismálum
eðlilega þróun og koma fram réttlæti í embættaveitingum.
Allir íslenzkir læknar (eiga að vera í Læknafélagi íslands.
Lög Læknafélags Reykjavíkur.
1. gr. — Félagið heitir Læknafélag Reykjavíkur (L. R.). Lög-
heimili þess og varnarþing er i Reykjavik.
Félagar geta þeir einir orðið, sem lokið hafa embættisprófi
i læknisfræði, eru búsettir í Reykjavík eða nágrenni og eru með-
liinir Læknafélags íslands.
2. gr. — Tilgangur félagsins er:
a. Að starfa að allskonar lækna- og heilbrigðismálum og vekja
áhuga á þeim, bæði hjá félagsmönnum og almenningi.
b. Að gæta fjárhagslegra hagsmuna félagsmanna, auka viðkynn-
ingu þeirra og efla samúð þeirra og stéttartilfinningu.
c. Að stuðla að vísindastarfsemi og framhaldsmentun í læknis-
fræði og því er að henni lýtur.
3. gr. — Stjórn félagsins skipa 3 menn: forseti, ritari og gjald-
keri. Skulu þeir kosnir á aðalfundi til eins árs i senn. Þeir eru
skyldir að taka á móti endurkosningu að minnsta kosti einu sinni,
nema forföll hamli, er fundurinn tekur gild. Stjórnin annast all-
ar framkvæmdir félagsins, nema öðruvísi sé ákveðið.
4. gr. — Félagið heldur fundi annan mánudag hvers mánað-
ar, í mánuðunum október til maí, og aukafundi þegar stjórnin
telur þess þörf eða að minnsta kosti 4 félagsmenn óska þess.
Fundarefni reglulegra funda skal auglýsa félagsmönnum með
minnst 3ja daga fyrirvara, en aukafunda eftir þvi sem ástæður
leyfa.
Fundurinn er því að eins lögmætur, að hann sé löglega boð-
aður, og ályktunarfær ef % félagsmanna eru á fundi.
Nú reynist fundur ekki ályktunarfær, og getur þá stjórnin
kvatt til aukafundar, þó ekki fyrr en eftir viku, og skulu þá að
eins hin sömu mál á dagskrá. Sá fundur er ætíð ályktunarfær.
5. gr. — Aðalfundur skal haldinn i mars ár hvert. — Þessi
eru skyldustörf hans: