Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1932, Síða 19
17
Útborganir á styrk fara fram í byrjun septembermánaðar ár
hvert.
7. gr. Stofnféð skal varðveitt í bankavaxtabréfum Landsbank-
ans, Ræktunarsjóðsbréfum eða öðrum jafntryggum verðbréfum.
— Annað fé sjóðsins skal ávaxtast í Landsbankanum sem venju-
legt sparisjóðsfé.
8. gr. Skipulagi sjóðsins má breyta eftir 2 umræður á reglu-
legum fundum Læknafélags Reykjavíkur, enda sé breytingarinn-
ar getið í fundarboðinu. Nær breytingin gildi sé hún samþykkt
með % greiddra atkvæða, að fengnu áliti sjóðsstjórnarinnar.
Reglur um sérfræðinga.
1. gr. Enginn læknir, sem er í Læknafélagi Íslands, má
kalla sig sérfræðing, nema hann fullnægi skilyrðum þeim, er
hér fara á eftir.
Hann verður, að afloknu embættisprófi, að hafa stundað al-
mennar lækningar í 2 ár eða gegnt kandidatsstörfum í 1 ár í
spítaladeildum fyrir kírúrgiska og medicinska sjúkdóma.
Ef sérfræðigreinin er kirurgi eða medicin, skal hann liafa
gegnt spítalastörfum í sérdeildum í þeirri grein í 3 ár (og geng-
ið á poliklinik í eitt misseri af þessum tíma).
í yfirgripsminni sérfræðigreinum nægir tveggja ára nám í
sérdeildum. Til tannlækinga sltal þó að eins krafist eins árs.
sérnáms og ekki annars.
2. gr. Sérhver læknir, er vill hljóta viðurkenningu sem sér-
fræðingur, skal sanna fyrir stjórn Læknafélags íslands og tveim
læknum, sem hún velur sér til aðstoðar, að hann hafi fullnægt
skilyrðum þeim, sem sett eru í 1. gr. Stjórnin metur eftir föng-
Um, hvort sérnámið muni vera svo víðtækt og rækilegt, sem
burfa þykir. Stjórnin tekur til athugunar, hvort umsækjandi
hefir að einhverju leyti iðkað lækningar í sérgrein sinni, áður
en hann tók að búa sig undir sérfræðinám sitt (t. d. ophthalmo-
skopi, aðstoð við skurðlækningar o. s. frv.), og ennfremur, hvort
Umsækjandi hefir starfað að einhverju leyti sem fastur spítala-
læknir, meðan á sérnáminu stóð, eða einungis sem framandi
læknir á spítalanum. Ef slíkar ástæður eru fyrir hendi, skal
stjórnin taka tillit til þess, og má þá stytta námstimann.
3. gr. Læknar þeir, sem starfað hafa að sérlækningum, áður
en þessar reglur ganga i gildi, skulu á sama hátt og aðrir senda
nmsókn til viðurkenningar, til stjórnar Læltnafélags íslands. En
begar dæmt er um þá, skal eigi aðeins taka tillit til þess tíma„
2*