Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1932, Side 27
25
rannsólcn hjá öllum syfilissjúklingum, þar sem sjúkdómurinn er
orðinn ársgamall eða eldri. Stundum sem mænuvökvinn er +, þó
að blóðið sé -f-.
NB. Til syfilisrannsókna þarf að senda a. m. k. 10 ccm af
blóði, sem tekið er úr venu i hreint, þurt glas. Þarf ekki að
vera sterilt, nema ef sendingin tekur langan tíma.
Taugaveiki. í fyrstu viku sjúkdómsins þýðir venjulega ekki
að gera Widals-próf, en þá má oft rækta sýklana úr blóðinu.
Til þess þarf að taka blóðið sterilt úr venu í gallglas, sem fæst
i rannsóknastofunni. í 2.—3. viku verður Widalspróf oftast já-
kvætt. Til að gera það, nægir 1 ccm af blóði, sem ekki þarf að
vera sterilt tekið, og má taka úr eyra, ef erfiðleiltar eru á að
ná í venu/ Stundum finnast sýklarnir í saur eða þvagi, áður
■en Widal verður +, en þótt taugaveikissýklar finnist ekki, má
ekki af því draga þá álvktun, að sjúkl. hafi ekki taugaveiki, því
•nð stundum þarf margítrekaða rannsókn til að finna sýklana
i saur eða þvagi.
Eftir að taugaveikissjúklingur er orðinn hitalaus, verður að
rannsaka tvívegis — með nokkurra daga millibili — saur og
Í>vag (fyrir smitburði).
Sérstök hylki undir saur og þvag til taugaveikisrannsókna, fást
i rannsóknastofunni.
Barnaveiki. Ef greinileg skán er inynduð, má taka úr sár-
barminum ögn af exsudati og smyrja út á gler og lita fyrir B.D.
Alltaf ættu menn þó að iáta rækta frá hálsinum, og fá til þess
serumglös i rannsóknastofunni. Svar eftir l(i—24 klst.
Gonorrhoe. Ofurlitil ögn af exsudati er smurt þunnt á gler.
Frá konum þarf að taka bæði frá urthra og cervix uteri. F.kki
treystandi að sjúkl. sé batnað, fyrr en rannsóknin hefir verið nei-
kvæð þrisvar sinnum í röð með viku millibili.
Blóðsótt (dysenteri). Sýklana má rækta, ef saurinn kemur
alveg ferskur til rannsóknar. Til blóðsóttarrannsóknanna þarf
nokkurn undirbúning, svo að nauðsynlegt er að gera rannsókna-
atofunni viðvart degi áður en hægt er að setja sýklaræktunina
i gang.
Meningitis epidemica. Nauðsynlegt að gera rannsóknastofunni
viðvart, áður en unnt er að rækta sýklana úr, mænuvökvanum.
Ekki við að búast, að ræktunin takist, ef ekki er hægt að sá
i’it á sama sólarhringnum og mænuvökvinn er tekinn frá sjúkl.
Ýmsar rannsóknir. Stykki, sem send eru til vefjarannsókna,
verður að láta í 4% formalin. sem er búið þannig til, að formal-
dehydum officinale er þynnt með einum hluta móti 9 hlutum
vatns. Um að gera, að vefsstykkið sé ekki látið spillast, áður