Baldur - 02.11.1935, Blaðsíða 4

Baldur - 02.11.1935, Blaðsíða 4
BALDUR *2#%2#%2«2*V2«2tt2«2*V2W2í%2«2«Stt8#*2«2«2«2« ,‘S , $* Islenzk «i» @ O Í2Í* O *3 Í?S BRAIINS vrnna: KVEHSLQPPAR, hv. og misl. - RE6HKÁPUR (oliukápuc). VJHHUFHTHAfltR, karlm. og drg. - >TRJIWL<-D0PPUR og BUXUR. - RXLIBðND. - SOXKRBÖHO. - ERMIBÖID. - w «*» 4»* WOAS HÚFURNAR, viðurkenndu, ávallt fyrirliggjandi. — Eflið © ;a islenzkan iðnað. VERZLUN Páll Sitíurfícirsson. n» »04 ___ w n» ► O « »05 ►.O « ►.O < ►.O < 0,0 < ► O « ►04 ► OJ ».04 ► O 41 OJ »04 ►04 ► O 4 >04IÞ O Hl »*» *4* n» **» »á* «4» «4® «4* «4» «á» «*» *4* «4* «4* «4* «4» «4* *4* ast ungmennastúkurnar líklegri en nokkur önnur æskulýðsfélög til eþss að verða til gagns og bless- unar, er það að þær ráðast á rót- ina að ómennskunni — óhollum og skaðlegum nautnum — en berj- ast fyrir fögrum hugsjónum og frjálslegu og skemmtilegu félags- lífi. Því ég veit það, að unglingur sem hvorki reykir eða bragðar á- fengi, þrýfst ekki t vondum fé- lagsskap. — Hann getur aldrei átt þar heima.' Ungmennastúkumar eru alhliða menningarfélög, þar sem æskan getur unnið að áhugamálum sín- um í starfi og leik. Innan þeirra ríkir áhugi og eldmóður æskunn- ar, göfugmennska og glaðværð. Slík æskulýðsfélög hafa meira uppeldis- og menningargildi,, en almenningur gerir sér ljóst. Ungmennastúkan hér á Akur- eyri telur um 100 félaga og er sennilega starfsmesta og öflug- asta æskulýðsfélag í þessum bæ, þó hún sé aðeins tveggja ára gömul. í fyrra starfrækti hún vikivakaflokk og gaf út fjölritað blað auk margskonar annara fé- lagsstarfa. Leitast er við að haga félagsstarfinu þannig, að sem flestir taki þátt í því eftir hæfi- leikum sínum, og að það geti ver- ið hvorttveggja í senn, göfgandi og til skemmtunar fyrir ungling- ana. En væri ekki ástæða til að fleiri unglingar en þetta fylktu sér’um þetta æskulýðsfélag? Er ekki einmitt sérstök knýjandi á- stæða til þess núna, að foreldrar hvetji börn sín, til þess að vera í göfugum félagsskap,, sem berst gegn eiturnautnum? Árið 1934 seldi áfengisverzlunin hér á Ak- ureyri frá 1. febr.—1. júlí áfengi fyrir kr. 19.500. En á sama tíma 1935 hefir hún selt áfengi fyrir k r. 7 1.0 0 0. E ð a m e ð ö ð r- um orðum: kr. 51.5 00 meira en á sáma tíma í fyrra yfir þessa 5 mán- u ð i. Þetta eru tölur, sem tala sínu máli. Og þetta skeður á sama tíma og það er mjög þröngt fyr- ir dyrum hjá fjölda fólks. Það er 200 þýzk Yerzlunarbréf komin í Bókaverzlun P. Thorlacins. því ekki út í bláinn, þó mörgum þeim, sem láta sér ekki á sama standa um framtíð hinna mörgu efnilegu unglinga hér í bænum, beini því til foreldranna og þeirra sjálfra, hvort nú sé ekki tími til kominn að gera eitthvað, til að vernda þá fyrir hinu nýja áfeng- isflóði, áður en það vex enn meira en orðið er. Dýrmætasti fjársjóður hverrar þjóðar er andlega og líkamlega heilbrigð æska. Þó mönnum finn- ist stundum illt útlit með efna- lega afkomu, er þó í rauninni ekki nein ástæða til að tapa trúnni á framtíðina, ef til er á ö 11- u m t í m u m s t a r f s ö m, he i 1- brigð og göfug æska, sem hefir geymt sak- 1 e y s i o g g ö f g i b a r n s- 1 u n d a r i n n a r, þó hún haf i öðlazt nokkuð af reynslu hins fulltíða manns. En þá er fyrst á- stæða til að örvænta um framtíð- ina, ef ekki er hægt að vernda æskuna fyrir þeirri siðspillingu er þrýfst í skjóli við áfengis- nautn,. og leitast við að draga hvern heilbrigðan ungling sið- ferðilega niður í sorpið. — Og ég fæ ekki betur séð, en að bezta ráðið, til að forðast að svo geti farið, sé það, að stofna heilbrigð- an félagsskap fyrir æskuna, þar sem hún getur fullnægt skemmt- anaþrá sinni og starfað saman að áhugamálum sínum. Þessvegna eiga ungmennastúkur að rísa upp í öllum kaúpstöðum og kauptún- um. Og vonandi á Góðtemplara- reglan víða svo skyggna liðs- menn, að þeir sjái þörfina, og svo fómfúsa fyrir gott málefni, að þeir vilji leggja eitthvað á sig í þessu efni. Eg vil þá að lokum beina því til allra þeirra foreldra, er þessar línur lesa, að við bindindismenn treystum því, að allir foreldrar vilji styðja viðleitni okkar, til að vernda viðkvæmar barnssálirnar frá siðspillingu, en gefa ungling- um tækifæri til að starfa saman í fjölbreyttum félagsskap sjálfum þeim til gagns og glaðværðar. Eiríkur Sigurðsson. Karlmannafataefni 09 Kjfilaeíni fást i Kaupfélaoi Verkaaanna Vefnaðarvörudeildinni. Ábyi'gðarmaður: Snorri Sigfússon. Prent Odds Björnssonar. — 2. póv. ’35, Það fyrirbrigði hefir gerzt með þjóð vorri, að á þessu ári, þegar viðskipta- kreppan heldur öllu athafnalífi í helj- arklóm, talað er opinberlega og upp- skátt um yfirvofandi hungur meðal verklýðsstéttarinnar, og allir bjargálna- menn þykjast vera að sligast undan á- íögum, hefir eyðsla þjóðarinnar í á- fengi margfaldast. Þetta er svo áber- andi að fullkomin smán er að, eins og t. d. hér á Akuréyri, sem stendur efst alh-a bæja í landinu á þessum svarta lista. Hvaö veldur þéssum ósköpum? Er fólkið svona siðspillt? Lætur það öinn síðasta eyri fyrir áfengi, með greiðsluþrotin og' máske skort á al- mennustu lífsnauðsynjum hangandi yf- ir höfði sér? Svo spyrja margir, og' svörin eru Jíka margskonar. En á hvern liátt sem um þetta er rætt verður niðurstaðan alltaf sú sama: Framferði þjóðarinnar er og v&r&wr henni til vansicmdar í i augwrn allra viðaðra þjóða. Þegar örfáum undantekningum er sleppt, virðast allir vera sammála um að eitthvað þurfi að gera til að kippa þessu i lag. En hvað þetta eitthvað er og hverjir eigi að hafa forgöngu í mál- inu, til hverra sé að leita um liðveizlu, um allt þetta ríkir fyllsta ráðaleysi enn sem komið er, Það er kannske af því að ég er al- þýðumaður að ég’ hygg, að hjá henni sé helzt að leita fulltingis í þessu 'vandamáli. Eg hefi þá trú, að það verði alþýðufólkið, sem fyrst áttar sig á þessu ófremdarástandi, sem vér erum að sökkva í, og taki til þeirra bjarg- ráða-, sem að gagni koma. Reynsla annarra þjóða er sú, að bindindissemin og aðrir góðir siðir þró- ast bezt og' blessast meðal aipýðunnar. Eg hefi þá trú að ekki þurn annað en öflugt starf okkar bindindismanna meðal alþýðu þessa lands, til sjávar og sveita, til að mynda varanleg samtök gegn vaxandi gengi Bakkusar. Alþýðan á víða öflugan félagsskap, sem hún getur tekið í þarfir þessa málefnis. Það hlýtur hvort sem er að liggja fyr- ir alþýðusamtökunum í landinu nú á næstunni að taka opinbera afstöðu til áfengismálanna. Þar er um svo stór- vægilegt mál að ræða; mál sem snertlr svo mjög hagsmuni almennings, að ekki er hægt að láta það afskiptalaust. Það sem mér finnst liggja beinast fyrir er þetta: 1) Við bindindismenn í alþýðufélög- Skólatöskur Bakpokar Skrifbækur Stílabækur Giósubækur Reikningshefti Litblýantar Litakassar Sjálfblekungar Skrúfbiýantar Pennastokkar Pennaveski Pennar Pennasköft Blýantsyddarar Strokleður Teikniblýantar Teiknipappír Teikniblokkir Teiknibækur Teiknibólur Teiknibestik Teiknikol Horn Reglustikur Fixatif Fixatif-sprautur Tusch Kennslubœkur fyrir alla skóla. Apoteks-byggingunni. — Sími ÍOO. um göngumst fyrir samtökum innan alþýðufélaganna um afneitun áfengis. Það má vafalaust óorka miklu á því ísviði, ef vel og hyggilega er að því unnið. 2) Stórstúka Islands, Bindindisfélög í skólum landsins, Alþýðusamband Is- lands og máske fl. efna til samvinnu um þessi mál, og er þá engum vafa bundið, að fljótt myndi koma í Ijós ein- lægur áhugi og starf meðal alþýðunnar í þarfir bindindismálsins, en það er hin almenna þátttaka, sem allt veltur á. 3) Koma sem fyrst á fót alþýðlegri fræðslustarfsemi, sem þefði bindindis- málið á dagskrá með öðrum hagsmuna- og siðbótarmálum dagsins. Með stofn- un Alþýðuskólans í Reykjavík er þegar stigið spor í þessa átt. Með þátttöku forgöngumanna Stórstúkunnar í rekstri þessarar stofnunar er tryggt, að bind- indismálið verður þar til meðferðar, og þó þetta sé enn í bernsku, er von til að það þróist með tímanum. Þessu líkt samstarf bindindismanna og alþýðufélaganna í Svíþjóð hefir gef- ið hina beztu feynslu, og á þegar drjúg- an þátt í menningarlegu uppeldi þjóð- arinnar. Hví skyldum' við ekki frekar læra gott af öðrum, en sökkva mót- spyrnulaust í ómenningardýkið, sem vaxandi áfengisnautn leiðir þjóðina út í? Alþýðumaður. KAMBGARNIÐ frá Gefjun, sem er búið til í ótal litum og gerðum, hefir nú þegar hlotið einróma lof allra, sem reynt hafa. Gef|unar>Kambgarn er algerðnýungiislenzkribandíramleiðslu, og ætti enginn að láta undir höfuð leggjast að kynna sér og reyna þessa merkilegu nýung i íslenzkum iðnaði. Klæðaverksmiðjan GEFJUN Akureyri. Sími: 85. ELEKTRO CO

x

Baldur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Baldur
https://timarit.is/publication/1039

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.