Baldursbrá - 06.11.1937, Qupperneq 1
4. Ár Winnipeg, Manitoba 6. nóvember, 1937 Nr.4
Stefán og Steini
Hami Stefán var stuttur og cligur,
en Steini var langur og mjór;
og skrautlega skrifaði Steini,
en skriftin lians Stefáns var klór.
Stefán og Steini
Þessir tveir strákar voru saman
í skóla; þeir voru ósköp ólíkir og
stríddu hvor öðrum, en samt voru
þeir altaf saman; þeim þótti í raun
og veru vænt hvorum um annan,
þó þeir yrði oft ósáttir.
Það eru til margar skrítnar sög-
ur um Stefán og Steina. Eg ætla
að segja ykkur eina þeirra í næsta
blaði Baldursbrár. En svo liafið
þið kannske heyrt sumar þessar
sögur; ef svo er, þá skrifið þær upp
og sendið mér þær. Eða ef þið get-
ið búið til sög-ur um Stefán og
Steina, þá er það ennþá betra.
Hugsið ykkur að tveir drengir lík-
ir þeim væru í skólanum ykkar;
iiugsið ykkur hvernig þeim mundi
koma saman, skrifið sög-ur um það
og sendið Baldursbrá.
Baddi stóð á hleri
Baddi var hann kallaður. Eigin-
lega hét hann Bjarni. Hann átti
litla 'Systur, sem Anna hét og var
hún yngri en hann. Þegar hún var
að byrja að tala, sagði hún altaf
“Baddi” í staðinn fyrir Bjarni.
Og þetta nafn festist við hann.
Bjarni var í rauninni allra bezti
piltur; en hann var stundum ó-
þekkur og stökk út til þess að' leika
sér, þegar hann átti að vera að
læra.
Hann kunni þess vegna aldrei
það, sem kennarinn setti honum
fyrir, hvorki í barnaskólanum né
sunnudagaskólanum.
Kennarinn hélt að hann væri ó-
sköp ónýtur að læra — reglulegur
tossi.
Einu sinni hafði Baddi stolist
burt úr skólanum og verið að leika