Alþýðuhelgin - 11.03.1950, Side 2

Alþýðuhelgin - 11.03.1950, Side 2
73 ALÞÝÐUHELGIN þessu í tíð Einars bónda Jónssonar, er síðar getur. í máldaga kirkiunnar, hinum fyrsta, sem birtur er á prenti, er Jón biskup Halldórsson setti 1327, segir: „Péturskirkja í Ögri á 23 kú- gildi og 300 fríð, . Péturslíkneski, Maríulíkneski, altarisklæði. Þangað liggja bæir að tíundum milli Þernu- víkur og Hvítaness. Kirkjan á Strandsel,.fjórðung selveiði í Þernu- vík og áttung hvalreka að Látrum í Mjóafirði. Geldneytishagar á Fjall- eyrum í Skötufirði. Þar skal vera heimilisprestur og l.úka thonum) 4 merkur (silfurs?)“. Ögursókn hefur hví verið hin sama frá öndvei'ðu sem enn í dag. Kirkjujörðunum fjölgaði síðar. Garðsstaðir hafa vafalaust á þessum árum verið hjáleiga frá Ögri. Síðar var sú jörð gerð að sérstöðu býli með afskiptum slægjum og bithaga. Skarð í Skötufirði, næsti bær við Ögur að vestan, er ekki heldur nefnt til kirkjujarða þarna. — Rúmri öld eft- ir þessa vísitazíu Jóns biskups, bætt- ist Smiðjuvík á Hornströndum við kirkjujarðir Ögurs. Þá jörðgaf Guðni Oddsson, móðurfaðir Björns Guðna- sonar, fyiir sál konu sinnar, Þor- bjargar Guðmundsdóttur, með gjafabréfi útgefnu í Ögri 8. des. 1431. Guðni gaf þá líka til Mýra- kirkju í Dýrafirði jörðina Rekavík bak Höfn, einnig fyrir sálu Þor- bjargar, svo að gamla l.onan sú hef- ur gefið ríflega fyrir sálu sinni. Ekki hefnr verið getið selveiði í Þernuvík 'k seinrii áratugum eða öldum, og eigi cr kunnugt um hval- reka á Láírum, svo langt sem menn muna, svo að tekjur Öt;uvlx ;vla af þeim hlujinindurn haía meiri verið í orði e.a á ivorði. MARKÖS BERGSSO.V. Markús Bergsson var fæddur RiíiS, sonur Bergs lögrc-ttumanns Bene- diktssonar rð Hjaila í Ölfusi og konu hans, Guðrúr.ar Bergsdóttur frá Stokkseyri. Markús iðkaðí skolanám að venjulegum hartti. Var hanr. Jal- inn lærður vel. Har.n gerðist brátt aðsúgsmikill sem yfirvald og harð- snúinn málafylgjumaður. Kvað hann upp fjölda dóma, suma ærið þunga, og lét víst fá tækifæri ónotuð til þess að koma fram hörðum refsidómum. Varð því mjög róstusamt í ísafjarð- arsýslu um hans daga. Um þessar jrmndir kemur út fimmta hefti vestfirzkra sagna- þátta, er Gils Guðmundsson gef- ur út undir nafninu „Frá yztu nesjum“. Veigamesta ritgcrð þcssa hcftis nefnist „Frá Ögur- bændum“. Hefur Kristján Jóns- son frá- Garðsstöðum tckið liana saman. Fara.hér á eftir tveir smá- kaflar úr ritgerð lums. Segir hinn fyrri nokkuð frá jörðinni Ögri, en liinn síðari er um Magnús sýslumann Bergsson, annan síðasta valdsmanninn, sem í Ögri hefur setið. Hiiui síðasti var Erlendur Ólafsson, hróðir Grunnavíkur-Jóns. Einar Jónsson í Meiri-H!íð kærði eitt sinn fyrir amtmanni, að sýslu- maður hefði tekið eins ríkisdals toll af fiskibát hans í Bolungarvík. Út af þeirri kæru ritaði Fuhrmann amt- maður Markúsi sýslumanni harðort bréf. Kveðst amtmaður ekki fa jafn- margar kærur úr öllum öðrum sýsl- um landsins samanlagt eins og hann fái úr ísafjarðarsýslu einni, og hann hafi meira erfiði af Markusi sýslu- manni en öllum hinum sýslumönn- um landsins. Ræður hann Markúsi til að sjá að sér og veita kævendunum bætur, ella muni hann sjálfan sig fyrir hitta. Á þingi að Hóli í Bolungarvík dæmdi Markús Bjarna nokkurn Jónsson til þrælkunar á Brimar- hólmi og til að missa arf eftir Jón föður sinn fyrir að hafa tekizt á við hann út af heygogg, er Jón átti, en Bjarni hafði tekið úr liöndum hans, og Jón við það dottið. — Þessi undarlega harði dómur sýslumanns var ónýttur á Alþingi. Bjarni dæmdur til 3 ára erfiðis, cn Jón faðir hans til að greiða 1 hundrað á landsvísu til fátælcra, eu honum hafði sýslumaður sleppt. Langvinnt og illvígt var mála- stapp Markúsar ge.gn Snæbirni Pálssyni lögréttumanni (Mála-Snæ- birni). Óvild þeirra hófst með því, að Markús sýslumaður var staddur á Mýrum í Dýrafirði 30. maí 1722. Var Snæbjörn þá ölvaður, og þóttist ekki finria kirkjulykilinn, en þar hafði sýslumaður geymt töskur sín- ar. Þá var það, að Snæbjörn hafði i frammi ærumeiðandi ummæli um P. Arvfedsön, undirkaupmann á Þing- eyri. Stefndi Arvfesön Snæbirni, en fyrir réttinum viðhafði Snæbjörn meiðandi orð um dómarann, Mark- ús sýslumann. — Var Ormur sýslu- maður Daðason í Fagradal settur dómari í málum þessum. Hann dæmdi Snæbjörn til að greiða Markúsi 20 hundruð á landsvísu, 20 rd. sekt til konungs og 40 rd. í méls- kostnað. Snæbjörn greiddi Markúsi sýslumanni haustið 1722 140 rd. 1 sekt og málskostnað. Var þetta stór uDohæð á þeirra tíma vísu. Talið er þó, að afdrifaríkust hafi orðið málaferlin út af kæru síra Bjarna Jónssonar, sóknarprests Snæbjarnar. Var það talið um al- varlegar ávirðingar af hálfu Snæ- bjarnar að ræðá. Höfðu þeir prestur átt í deilum, og eitt sinn gekk Sn®" björn að presti í messugerð og rykkti í rykkilín hans, svo að þaii hefur víst rifnað. Mál þetta kostaði mikil réttarhöld. Meðan á yfirhevrzl- unum í máli þessu stóð, haíði Markús Snæbjöm í haldi í Ögru ef til vill eitthvað í járnum, sem þa var óspart beitt við sakborning3- Slapp Snæbjörn tvisvar eða þrisvar úr haldi hjá Markúsi, og varð ékki náð til hans síðast. Á Alþingi 1724 las Markús upP lýsingu af Snæbirni í því skyndi að sér yrði gert aðvart, ef hans ýrði vart. Lýsingin af Snæbirni var a þessa leið: „Karlmannlcgur og harðgerður 1 framgöngu, hávaxinn og flatvax- inn, herðabreiður og mittismjór, fof' grannur, þykkhendur og þó eJg1 harðhendur. Dökkari á hár og brun og brá en jarpurf hefur mikið har, sem hrokkir neðan, í’akar skegg' stæði, gi-annleitur og kinnbeinaha1 með þunnt nef og hátt framan; ha- leitur og langhálsaður; lesandi v'e og skrifandi. Heldur sér til gild,s sem heldri merin til klæða. Hátalað- ur, hraðmæltur, hrokafullur: bítuv a vör og sýgur í nefnið, þá illu er a skipta. Tekur ákaft neftóbak, og el þá nefnmæltur, og hið mesta drykkjusvín“. Snæbjörn var viðstaddur á ÁJ' þingi, sennilega án þcss að MarkÚ3 yrði hans var. Þótti honum óvinsa111' leg lýsingin, og bað um afskrifl a henni. Markús hafði dæmt Snæbjörn ú eitthvað 6 ára Brimarhólmsviscai-

x

Alþýðuhelgin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðuhelgin
https://timarit.is/publication/1050

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.