Alþýðuhelgin - 11.03.1950, Síða 5

Alþýðuhelgin - 11.03.1950, Síða 5
ALÞÝÐUHELGIN ----------------S að.“ Og ég lokaði dyrunum hljóð- lega og reikaði inn í myrkrið. Eg rakst á eitthvað hart: legu- kekkinn minn. Ég fleygði mér þegar endilöngum ofan á sængurfötin. Eins og komið var fyrir mér var ðg ekki fær um að leita að eldspýt- um og kerti á náttborðinu. Það hefði tekið mig tvo tíma að minnsta kosti. Það hefði tekið mig jafn langan tíma að hátta; og kannski hefði mér aldrei tekizt það. Ég lét það eiga sig. Ég fór bara úr stígvélunum, ég hneppti UPP vestinu af því það var heldur Pröngt, ég losaði um buxurnar, og ég féll í djúpan svefn. Ég hafði áreiðanlega sofið lengi. Eg vaknaði með andfælum við það, að karlmannsrödd sagði rétt hjá mér: ~~~ Sefurðu enn þá, litli letinginn þinn? Veiztu, að klukkan er tíu? Kvenmannsrödd svarði: — Orðin tíu! Ég var svo eftir mig eftir gærdaginn. Furðu lóstinn spurði ég sjálían mig hváð þetta samtal merkti. Hvar var ég? Hvað hafði ég gert? Sál mín var ennþá umvúíin óimmri þoku. Kai'lmannsröddin sagði: •— Ég skal draga gluggatjöldin frá. Og ég heyrði fótatak hans nálgast mig. Ég spratt upp í ofboði. Þá var hönd lögð á höfuð mér. Ég kippti til höfðinu. Röddin spurði með þunga: '— Hver er þar? Ég gætti þess að sýára engu. Tvær krumlur gripu mig heljartökum. Ég greip líka í eitthvað, °g æðisgengin áflog byrjuðu. Við llltum hvor um annan, veltum hús- gögnum og rákum okkur óþyrmilega í Veggina. Kvenmaðurinn æpti í tryllingi: — Hjálp, hjálp! Þjónustufólkið kom hlaupandi, og siðan hneykslaðar pjparkerlingar. Gluggahlerunum var skotið opnum °g tjöldin dregin frá. Ég hélt um kverkarnar á Dumoulin ofursta! Ég hafði sofið á næsta leiti við rúm dóttur hans. Þegar tekizt hafði að skilja okkur, óljóp ég til herbergis míns, ringlað- ui’ og skelfdur. Ég læsti dyrunum og lagði fæturna upp á stól, því stíg- vélin mín höfðu orðið eftir inni hjá Ur>gfrúnni. Allt lék á reiðiskjálfi í höllinni. óurðum var skeilt, hvískur og hratt ■^étatak. Að þálftíma liðnum var kvatt dyra á herbergi mínu. Ég hrópaði: — Hvér er það? Það var frændi minn, faðir ungu stúlkunnar, sem gifti sig í gær. Ég opnaði. Hann var náfölur af bræoi. — Þú hefur komið fram eins og bóndadurg- ur hér á heimili mínu, skilurðu það? Svo bætti hann við mildari: — Bölv- aður kjáni ertu að láta koma þér á óvart klukkan tíu á morgnana! Þú leggst til svefns inni í herberginu í stað þess að hypja þig strax . . . strax á eftir. Ég æpti: — En frændi minn góð- ur, ég fullvissa þig um að það gerð- ist ekkert . . . Ég var fullur og fór dyravillt. Hann yppti^ öxlum: — Vertu ekki með kjánaskap. Ég lyfti hendinni: — Ég sver við drengskap minn. Frændi sagði: Já, það er ágætt. Það er skvlda þín. • Nú varð ég reiður, og ég sagði honum alla söguna. Hann glápti á mig steinhissa og vissi ekki hverju hann ætti að trúa. Svo fór hann út til að rágðast við ofurstann. Mér var sagt, að myndað- ur hefði verið einskonar mæðradóm- stóll, sem taka átti málið til meðferð- ar. Hann kom aftur eftir góða stund, settist andspænis mér með dómara- svip, og sagði: -— Ég get ekki komið auga á ann- að úrræði til að iosa þig úr þessari klípu, en að þú giftist ungfrú Dumoulin. Ég hoppaði upp af stólnum í ör- væntingu: — Aldrei! Nei, aldrei meðan ég ræð! — Hvað ætlastu þá fyrir? » Ég svarði blátt áfram: — Hypja mig héðan undir eins og ég hef fengið stígvélin mín. Frændi minn sagði: — Má ég biðja þig um að tala um þettá í alvöru. Ofurstinn hefur heit- ið því að skjóta þig undir eins og hann kemst í færi. Og bú mátt reiða sig á að það er ekki innantóm hót- un. Ég minntist á einvígi, og hann svaraði: — Nei, ég hef sagt þér að ég skýt hann eins og hund. — Við skulum athuga.málið rólega. Annað- hvort hefurðu flekað barnið, og þá stendurðu illa að vígi, drengur minn, því maður leggst ekki með kornungum stúlkum. Eða þú heíur ' 81 farið dyravillt í fylliríi, eins og þú segir. Og þá stendurðu enn hallara fæti. Sérhver karlmaður hlýtur að forðast að gera sig að athlægi. Eitt er víst: unga stúlkan hefur glatað heiðri sínum, því skýringu þinni verður aldrei trúað. Allt bitnar þetta á henni. Hugsaðu um það. Hann fór, og ég hrópaði á eftir honum: — Segðu hvað sem þér þókn- ast! Ég gifti mig ekki. Ég hélt kyrru fyrir í herberginu góða stund enn. Svo kom frænska mín. Hún grét. Hún gerði. allt til að fá mig á sitt mál. Enginn myndi trúa því, að ég hefði farið dyravillt. Stúlkunni yrði álasað fyrir að læsa ekki herbergis- dyrunum, þegar höllin var troðfull af gestum. Ofurstin hafði barið hana. Hún hafði grátið allan fyrri hluta dagsins. Þetta var hræðilegt hneyksli, sem aldrei yrði bætt fyrir. Og frænka mín bætti við: — Þú getur þó alltaf beðið hepnar; það verður kannski hægt að finna ein- hverja átyllu til að bjarga þér úr klóm hennar, þegar byrjað verður að ræða hjónabandsskilmálana. Þeíta hughreysti mig. Og ég sam- þykkti að biðja hennar bréflega. Klukkustund síðar var ég á leiðinni heim til Parísar. Daginn eftir var mér tilkynnt, að stúlkan hefði tekið mér. Þrjár vikur liðu'án þess ég gæti fundið mér nógu slóttuga átyllu til að draga mig í hlé; það var lýst með okkur, boðskort voru ' send til væntanlegra brúðkaupsgesta, hjóna- bandssamningurinn var undirskrifað- ur, og mánudagsmorgun einn stóð ég við hlið brúðurinnar í uppljómaðri kirkju, og brúðurin grét, þegar ég sagði prestinum að ég samþykkti að ganga að eiga hana . . . þar til dauð- inn aðtklldi okkur. Ég haíði ekki séð hana síðan í höllinni, og ég blimskakkaði til henn- ar augunum með illviljaðri undrun. Hún var.reyndar ekki ljót, nei, þvert á móti. Ég hugsaði: — Hér sjáið þið stúlku, sem ekki mun hlægja sig í hel. Hún virti mig ekki viðlits þar til um kvöldið, og sagði ekki við mig stakt orð. Undir miðnættið fór ég inn í brúðarherbergið í því skyni að gefa henni til kynna vilja minn, því nú var ég’ húsbóndinn á heimilinu.

x

Alþýðuhelgin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðuhelgin
https://timarit.is/publication/1050

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.