Alþýðuhelgin - 06.04.1950, Side 2

Alþýðuhelgin - 06.04.1950, Side 2
110 ALÞÝÐUHELGIN hann dósent og fimmtán árin hin næstu prófessor í grískum bók- menntum. Hann var virtur og elsk- aður hvarveína, bæði í hinum litla bæ og fyrir utan hann. Þegar hann var skipaður prófessor, varð hann um leið prestur í nokkrum sóknum nálægt Lundi, eins og þá var títt með prófessora í Svíaríki. Líkams- fýsnir hans voru miklar 'af náttúr- unni, andastefna hans heiðingleg. Hann var manna fyndnastur í orð- um og fyndnin gáfuleg, mjög hneigð- ur fyrir sællífi og djörfungin mikil. Hann giftist ungur, 23 ára að aldri. Hann hafði í æsku fengið ást á konu sinni og voru þau lofuð í þrjú ár, en aldrei varð hann nein fyrirmynd giftra manna. í Lundi var altalað, að hann væri gagnkunnugur kven- manni eipum göfugum, og þeir, sem kunnugastir voru, töldu engan efa vera á því, að ungmær ein væri dótt- ir Tegnérs. Hún var eigi kölluð dótt- ir hans, én svo var hún lík honum, að allir undruðust stórum. Hún fæddist 1821 og varð seinna vitstola á sama aldri og Tegnér. Frá því 1824 tók að bera á því, nð Tegnér væri lifrarveikur. Ágerðist sjúkdómur sá með aldrinum og hafði ill áhrif á skap hans. Um sömu mundir vaknaði hjá honum ótti fyr- ir geðveiki og varð hann oft og mörgum sinnum alveg utan við sig af þeirri húgsun. ,Hann hafði átt bróður, sem var eldri en hann og hafði verið geðveikur frá æsku. Sú hugsun tók nú að pína hann, að vit- firring lægi í ættinni. Við enda ársins 1823 losnaði svo biskupsembættið í Vexiö. Sökum fjárhags síns vildi Tegnér fá það embætti. Þó að tekjur hans væru miklar, var hann alltaf í peninga- klípu. Kom það af því, að bústjórn hans fór lítt í lagi, þar sem sú, er stýrði, bar lítið skynbragð á slíkt. í æviminningu Tegnérs, sem byggð er á opinberum skýrslum, er svo skýrt frá, sem biskupsembættið hafi kom- ið eins og stjörnuhrap yfir Tegnér, án þess að hann hafi verið sér nokk- uð úti um að fá það, eða jafnvel látið nokkra ósk í ljós í þá átt. Þetta var engan veginn þannig. Bréf þau, rem Tegnér ritaði Kullberg ráðgjafa (Slots-sekretær), og enn eru til á i íkisbókasafninu í Stokkhólmi, sýna ]>að, að hann lét sig miklu varða að fá embættið. Það er auðsjáanlega með vilja gert, a(J ganga framhjá þeim, er rit Tegnérs voru gefin út. þau er hann lét eftir sig, er hann dó. í bréfum þessum segir hann jafnvel, að hann skoði það sem illgirnis- áreitni við sig, ef honum verði eigi veitt embættið. Það er reyndar öld- ungis víst, að hann sjálfur beitti engu því til þess að fá erhbættið, sem eigi sómdi göfuglyndum manni, en hitt er víst, að fylgifiskar hans og vinir, þeir er ákafastir voru, létu sér eigi slíkt í augum vaxa. Má þar fremstan telja Heurlin, er þá vr.r lektor, en síðar varð biskup í Vexiö. Hann vann ötullega að því, að fá prestana í Smálöndum á sitt mál; hann reit þúsund bréf um þetta mál, til þess að fá þá til að sleppa Lind- fors prófessor, er þeir héldu fram, en taka Tegnér. Tala bréfanna get ég vel ímyndað mér að sé nokkuð ýkt, en sjálfur hefur hann sagt þetta manni þeim, er aftur sagði mér. Svo var hann ákafur, að Tegnér varð í bréfi (19. des. 1823) að skora á hann að láta eigi kappið koma sér til að gleyma „lífsreglum þeim, er hver göfuglyndur maður telur sér skylt að hlýða“. En þegar loksins var búið að kjósa Tegnér, var hann ákaflega hgsjúkur um hríð. Það var í mæli, að kært mundi verða, hve mönnum var þröngvað til þess að kjósa Tegnér til biskups og að öll undic- ferlin mundu gerð opinská. Og þeg- ar svo ekkert varð úr þessu, hafði Tegnér samt enga ró á sér, því hann hélt, að Rósenblað mundi í rík'.sráð- inu færa slíkar sannanir fyrir því, er gerzt hafði, að biskupskosningin yrði dæmd ómerk. En tíminn sýndi, að einnig þessi hræðsla hans fyrir því, að verða sér opinberlega til minnkunar, var á engum rökum byggð. En skáldinu varð þungt í lund af öllu þessu og þótti sem sér yxi minnkun af. Og þar við bættist reiði og beiskja í skapi. Á fyrstu skoðunarferð sinni sumarið 1824 hafði hann vikið tveim prestum úr embætti, er honum þótti rækja illa skyldur sínar, en eftir það óx mjög óánægja með hann í biskupsdæmi hans og dómkapítúlið (andlegu stétt- ar dómstóllinn) tók hvenær sem færi gafst allt aðrar ákvarðanir en þær, sem Tegnér vildi eða hafði stungið upp á. Og við’allt þetta bættist það. að Tegnér var biskup, en unni þó rannsóknum skynseminnar í t.rúar- efnum. Þetta ár hið sama varð Tegnér fyrir blekkingu þctrri í ástarefnum, sem fékk honum mikils trega. Hann hafði langa hríð unnað sænskri hefð- arkonu, göfugri og gáfaðri, nafn hennar er oft nefnt í ritum hans. Hann var tíður gestur í höll hennar og þau skiptust oft bréfum á. En 1824 hættu þau allt í einu að hittast og skrifast á. Tegnér skipti sér ekk- ert af henni framar, nema sendi henni Friðþjófssögu, þegar hún kom út. En í ávarpinu til hennar, sem var framan á bókinni, lá svo bitur ásök- un, að hún skar blaðið úr bókinní. Svo lítur út, sem Tegnér hafi kom- izt að því, að kona þessi, sem hann taldi flestum fremri og unni hug- ástum, hafi lagt ást við marn einn, ómenntaðan og ósiðugan. Þetta allt saman gerði Tegnér á- kaflega taugasjúkan. Hann varð uppstökkuf og mislyndur, svo hann fékk með naumindum stýrt skapi Sænska skáldið Esias Tegnér var fæddur í Vermalandi 1782, og var bví fjórum árum eldri en Bjarni Thorarensen. Hann andaðist 184G, fimm árum eftir lát Bjarna. Þessi samtíðarmaður höfundar Sigrúnarljóðs, er eigi aðeins •talinn mesta skáld sinnar kynslóðar í föðurlandi sínu, heldur einn hinn stórbrotnasti andi, sem Svíar hafa nokkrú sinni átt. Hér á landi er hann kunnastur af Friðþjófssögu, er Matthías Jocliumsson þýddi. — Matthías þýddi einnig „Ferminguna,“ eitt liinna frægari kvæða Tegnérs, og Stoingrímur sneri á.íslenzku söguljóðinu „Axel“. — Nokkur smáljóð Tegnérs hafa einnig verið þýdd á íslenzka tungu. í tilefni aldarafmælis Tegnérs, 13. nóv. 1882, ritaði GEORG BRANDES grein, sem birtist í „Morgunblaðinu“ danska daginn fyrir afmælið. GEST- UR PÁI.SSON skáld, einn hinna íslenzku lærisveina Brandesar, hafði þá nýlega stofnað í Reykjavík blaðið „Suðra“, og birti þar ýmsar greinar um bókmenntir. Meðal annars þýddi hann grein Brandesar um Tegnér, og kom hún í Suðra 20. jan. og 17. febr. 1883. Suðri er nú í fárra manna höndum, en þeir menn standa að greininni, að ekki þarf að biðja afsökunar á því, þótt þýðing Gests sé nú birt í annað sinn, eftir 62 ár. Fer liún hér á eftir.

x

Alþýðuhelgin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðuhelgin
https://timarit.is/publication/1050

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.