Hagtíðindi - 01.08.2000, Page 2
2000454
Vöruskiptin við útlönd janúar–júlí 2000
External trade January–July 2000
1999
Janúar–
júlí
2000
Janúar–
júlí
Breyting frá
fyrra ári á %
Change on
previous
year %
Á gengi ársins 20001
At average exchange rates1 January–May 2000
Millj. kr. Million ISK
1 Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog; á þann mælikvarða var meðalverð erlends gjaldeyris mánuðina janúar–júlí 2000 3,8% lægra en sömu mánuði
fyrra árs. Based on trade weighted index of average foreign currency prices in terms of ISK; change on previous year -3.8%.
1999
Júlí
2000
Júlí
Útflutningur alls fob 12.183 11.951 81.706 82.993 1,6 Exports fob, total
Innflutningur alls fob 14.211 15.334 94.034 104.883 11,5 Imports fob, total
Vöruskiptajöfnuður -2.028 -3.383 -12.329 -21.890 · Balance of trade
Vöruskiptin við útlönd janúar–júlí 2000
External trade January–July 2000
Vöruskiptajöfnuður
Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 12,0 milljarða
króna og inn fyrir 15,3 milljarða króna fob. Vöruskiptin í júlí
voru því óhagstæð um tæpa 3,4 milljarða en í júlí í fyrra voru
þau óhagstæð um 2,0 milljarð á föstu gengi1.
Fyrstu sjö mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 83,0
milljarða króna en inn fyrir 104,9 milljarða króna fob. Halli
var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 21,9 milljörðum
króna en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 12,3
milljarða á föstu gengi¹. Fyrstu sjö mánuði ársins var
vöruskiptajöfnuðurinn því 9,6 milljörðum króna óhagstæðari
en á sama tíma í fyrra.
Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu sjö mánuði ársins var 1,3
milljörðum eða 2% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið
áður. Aukningin stafar af útflutningi iðnaðarvöru, aðallega
áli, en á móti kemur að á síðasta ári var seld úr landi
farþegaþota en engin sambærileg sala hefur átt sér stað það
sem af er þessu ári. Sjávarafurðir voru 67% alls útflutnings
og var verðmæti þeirra 2% minna en á sama tíma árið áður.
Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu sjö mánuði ársins var 10,8
milljörðum eða 12% meira á föstu gengi en á sama tíma árið
áður. Rösklega þriðjungur þessarar aukningar stafar af
verðhækkun á eldsneyti. Að öðru leyti má aðallega rekja
vöxtinn til aukins innflutnings á hrávörum og rekstrarvörum,
flutningatækjum og neysluvörum.