Kosningablað frjálslyndra kjósenda Seltjarnarnesi - 15.05.1962, Blaðsíða 2

Kosningablað frjálslyndra kjósenda Seltjarnarnesi - 15.05.1962, Blaðsíða 2
ÁVARP H - LISTANS Þann 27. maí n. k. fara fram hreppsnefndar- kosningar á Seltjarnarnesi, sem í öðrum kaup- túnum og kaupstöðum landsins. Hér hefur ekki verið efnt til kosninga í átta ár, og mun það ef- laust setja nokkurn svip á þessar kosningar. Fram hafa komið 4 framboðslistar, þar af þrír frá pólitískum flokkum, Alþýðubandalaginu, Al- þýðuflokknum og Sjálfstæðisflokknum, en fjórði listinn er LISTI FRJÁLSLYNDRA KJÓS- ENDA, H—LISTINN. Hér í blaðinu er að finna helztu stefnumál H—LISTANS, sem hafa öll það sameiginlegt að unnið sé bættri þjónustu við hreppsbúa. Listinn er ekki borinn fram af pólitískum flokki, enda telja stuðningsmenn hans heppi- legra fyrir fremur lítið en ört vaxandi sveitarfélag eins og Seltjarnarnes, að hinni póhtísku tog- streitu sé haldið utan við málefni þess, því að sameiginleg eru hagsmunamál okkar allra, sem hér búum, að því er varðar allan aðbúnað sveitarfélagsins, þótt við höfum mismunandi stjórnmálaskoðanir. Þegar flokkaframboð koma fram í sveitar- stjórnarkosningum, er það glöggt merki þess, að þeir sem að sh'ku standa meta ílokk sinn og hagsmuni hans meira en hagsmuni fólksins í heild, sem býr á viðkomandi stað. Pólitískir agentar vilja þröngva flokkssjónarmiðum inn á kjósendur og inn í hreppsnefndina og láta flokks- línur móta allar aðgerðir í hreppsmálunum. Þeg- ar kosningu ná menn af fleirum en einum póli- tískum lista, er lítil von til að komist verði hjá árekstrum innan hreppsnefndarinnar, þar sem flokka greinir mjög á um markmið og leiðir, auk þes, sem þeir sem í framboð eru valdir eru oft sem fjarstýrð tæki flokksstjórnanna. Þeir, sem styðja H—LISTANN, lista frjáls- lyndra kjósenda, hafa það að sameiginlegu stefnumarki að halda stjórnmálaþrasi utan við hreppsmálin, og þótt þeir, sem þenna lista skipa kunni að hafa ólíkar en ákveðnar skoðanir í stjórnmálum, meta þeir meira að unnið sé heils hugar að málefnum hreppsins, en hrista flokks- stefnur sínar framan í kjósendur. Slíkt getur átt við í landspólitík er er óheppilegt í fámennu sveitarfélagi þar sem margt bíður framkvæmda. og samheldni er nauðsyn. Seltjarnarnes hefur verið ört vaxandi sveitar- félag hin síðari ár. Fjöldi ungs fólks hefur sezt að á nesinu, og setur ásamt myndarlegum barna- hóp mikinn svip á líf og starf þar. Margar glæsi- legar nýbyggingar hafa risið, sunnan og vestan við Valhúsahæð, sem sýna að hér býr dugmikið tolk, sem kunnað hefur að meta friðsælt og fag- urt umhverfi eins og hinir eldri íbúar á nesinu. Við vitum, að margt er ógert af hálfu hrepps- ins til þess að fullnægjandi geti talizt, í þéttbýl- ustu hverfunum. Enn eru safnþrær við hús á nokkrum stöðum, götur eru ófrágengnar, barna- leikvellir fáir lélegt eftirlit með framkvæmd skipu lagssamþykkta hefur sett ljóta bletti á heildar- svip byggðarinnar, sem erfitt verður að bæta, og margs konar þjónustu er ábótavant. Margt fleira er enn á frumstigi hjá okkur, sem úr þarf að bæta. Það er okkur því nauðsyn að hrepps- félaginu og framkvæmdum þess sé stjórnað af mönnum, sem ekki eru fyrst og fremst umboðs- nmn pólitískra flokka eða einkahagsmuna, held- ur ungir menn, sem enn hafa dug og vilja til að vinna að framgangi hrppsmálanna, menn sem lifa í nútíðinni en ekki í úreltum þröngsýnum hugsunarhætti. Það er einkenni H—LISTANS, að efstu sæti hans skipa eingöngu ungir dugandi menn og að baki þeirra standa ekki aðeins þeir ungu heldur einnig hinir eldri, sem treysta þeim og vita, að unga fólksins er framtíðin og því er eðlilgt að það taki virkan þátt í uppbyggingarstarfinu fyrir framtíðina. Hin pólitísku framboð á Seltjarnarnesi ein- kennast aftur á móti af því, að í efstu sætunum eru nær eingöngu menn sem komnir er af létt- asta skeiði, en hafa verið forystumenn pólitískra afla um langt árabil. Margir þeirra hafa án efa unnið ágæt störf hver á sínu sviði, en er nú ekki kominn tími til að yngri menn leysi eitthvað af þeim af hólmi í hreppsnefndinni? Spurningu þessari svara Seltjarnarnesbúar játandi með því að styðja H—LISTANN á kjördegi. H—listinn.

x

Kosningablað frjálslyndra kjósenda Seltjarnarnesi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kosningablað frjálslyndra kjósenda Seltjarnarnesi
https://timarit.is/publication/1066

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.