Kosningablað frjálslyndra kjósenda Seltjarnarnesi - 15.05.1962, Qupperneq 3
Stefnuskrá frjálslyndra kjósenda
H—LISTINN, listi frjálslyndra kjósenda
vill leggja sérstaka áherzlu á framgang
eftirtalinna mála á Seltjarnarnesi:
1. Gerð verði framkvæmdaáaetlun til
4 ára fyrir Seltjarnarneshrepp.
2. Malbikun gatna verði hraðað í þeim
hverfum, sem þegar hafa verið skipulögð,
og í því sambandi leiti Seltjarnarneshrepp
ur eftir aðild að gatnagerðarfyrirtæki
kaupstaðanna, Gatnagerðin s. f.
3. Hitaveita verði lögð á Seltjamar-
nesi og athuganir gerðar á því, hvort heitt
vatn er að finna í hreppnum.
4. Hert verði á eftirliti með framkvæmd
skipulagssamþykkta svo og byggingareft-
irliti. Ekki verði tekin til byggingar ný
hverfi fyrr en lokið er nauðsynlegum fram-
kvæmdum hreppsns í þeim hverfum, sem
þegar eru í byggingu.
5. Barnaleikvellir verði gerðir í þétt-
býlustu hverfunum og sköpuð aðstaða til
iðkunar útiíþrótta með byggingu leikvalla.
6. Stofnað verði dagheimili fyrir börn
og leikskóli starfræktur í hreppnum.
7. Samgöngur við Reykjavík verði
bættar, svo sem tök eru á.
8. Hreppsnefndin greiði fyrir því, að
fleiri þjónustu- og atvinnufyrirtæki starfi
innan marka hreppsins, til aukningar at-
vinnu og bættrar þjónustu, en fjölgun fyr-
irtækja léttir einnig skattbrði einstakl-
inga.
9. Innheimta opinbera gjalda í hreppn
um sé sameinuð sem mest.
10. Hreppsnefndin hafi forgöngu um
að leysa húsnæðisvandamál félagsamtaka
í hreppnum til fundahalda og tómstunda-
iðju.
11. Hagsmunir hreppsbúa almennt
gangi ætíð fyrir sérhagsmunum einstakl-
inga, pólitískra flokka eða annarra sér-
hagsmunahópa, þegar mál eru afgreidd
í hreppsnefnd.
H - LISTINN
x