Nútíminn - 20.05.1961, Qupperneq 1

Nútíminn - 20.05.1961, Qupperneq 1
Áfengið er bæði siðferði- lega og trúarlega séð versti óvinur okkar. Albert Schweitzer. Reykjavík, 20. maí 1961. 8. tbl. 2. árg. er þeirra skemmtun segir I.G.Þ. í Alþýðublaðinu Maður bíður bana af völdum áverka er hann hlaut í átökum við ölvaðan spilafél. 7. maí lézt Mikael Sigfús- son í Landspítalanum, af völd- um áverka er hann hlaut i átökum við spilafélaga sinn, sem var undir áhrifum áfeng- is. Atburður þessi varð með þeim hætti, að 23. apríl sl. sátu nokkrir kunningjar Mik- aels heitins að spilum á heim- ili hans, og voru við skál. Fór svo að lokum að deila kom upp milli Mikaels og eins spilafélaganna og fóru þá hinir kunningjarnir á brott. Tvær dætur Mikaels vökn- uðu skömmu seinna við háf- aðann og fóru þær að athuga, hvað um væri að vera. Þær sáu þá kunningjann slá föð- ur sinn, sem féll við í gólfið. Mikael var fluttur meðvit- undarlaus á Landspítalann þar sem hann lézt nokkrum dögum síðan. Tveir bílar eyðileggjast í næturárekstri í Skagafirði 8. maí ók drukkinn öku- maður með ofsahraða á hægri vegarbrún beint framan á ibifreiðina K-408, sem kast- aðist 7 m aftur á bak og út af veginum. í bifreiðunum voru samtals 16 manns. í bifreiðinni, sem ekið var á voru tíu manns og slösuðust flestir meira og minna, þar af ein kona mjög alvarlega. Báðar þifreiðirnar eru ger- ónýtar. Maður barinn í götuna og rændur Hér eru upptök þeirra atburða sem getið er um hér á síðunni. Ölvaðri stúlku fleygt út úr bíl 10. maí var lögreglunni til- kynnt að stúlka lægi á miðj- um Holtavegi og virtist með- vitundarlaus. Við rannsókn kom í ljós að stúlkan var drukkin og hafði henni verið fleygt út úr bíl þarna á miðja götuna. Stúlkunni var ekið á slysavarðstofuna. Eins og ummæli I.G.Þ. í Alþýðublaðinu bera með sér er til hópur manna sem neitar að viðurkenna þær hörmungar, sem áfengið hef- ur í för með sér og í samræmi við þá lífsskoðun er það t. d. helzta iðja I.G.Þ. fyrrverandi leigubílstjóra með meiru, og núverandi blaðamanns að halda uppi áfengisáróðri í Alþýðublaðinu. — Öllum ætti þó að vera Ijóst að þjóðfélagið í heild ber ábyrgð á áfengisbölinu, og þá fyrst og fremst þeir, sem viðhalda drykkjutízkunni og vinna að því að skapa það almennings- álit að eiturlyfjaneyzla sé sjálfsögð og „algjört einka- mál hvers og eins.“ Slikir menn standa enn á rándýrs- stiginu, og meta meir vín- löngun sína en hörmungar þeirra, sem fyrir ógæfunni verða. 9. maí var ráðizt á mann á gangi í Austurstræti, hann sleginn í götuna og rændur fé sínu. Maðurinn var á leið vestur götuna og var kominn vestur Maður kærður Sarakvæmt frétt fyrir Pósthússtræti er hann varð fyrir árás þriggja manna, með framangreind- um afleiðingum. Atburðir sem þessi mega heita algeng- ir hér og ástæðan nær alltaf hin sama: — ölvun. fyrir nauðgun, í Alþýðublaðinu Fyrir skömmu kom ölvaður maður í hús eitt i Kópavogi og hitti þar eina heiima unga konu á þrítugsaldri. Maðurinn kannaðist lítillega við fólkið sem bjó í húsinu og var hleypt inn. Þar kom, að hinn ölvaði maður vildi koma fram vilja sínum við konuna. Beitti hann konuna valdi. — Bróðir kon- unnar kom að skömmu síðar og lagði þá sá ölvaði á flótta. Var hann handtekinn og situr í gæzluvarðhaldi meðan rann sókn fer fram.. Framliðinn maður vinnur sér inn 20 þúsund krónur Frá Keflavík hefur blaðinu borizt eftirfarandi: Við álagningu og innheimtu gjalda hjá starfsmönnum hér á vellinum s.l. ár, hafa þau undur komið í ljós, að því er fullyrt er, að framliðinn mað- ur hafi unnið sér inn 20.000. 00 kr. á árinu. í fyrstu fannst lieimilisfang þessa manns ekki, en við nán- ari eftirgrennslan upplýstist, að hann var búinn að vera dauður í meira en tvö ár, Það fylgir með fréttinni, að hinn framliðni hafi verið í þjónustu varnarliðsins. — Ekki amalegt að ráða sig í vinnu þar. — A'eflvíkingur. Nútíminn hefur kynnt sér sannleik þessarar Keflavíkur- fréttar og fengið hana stað- festa af aðilum, sem ekki er hægt að rengja. I

x

Nútíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nútíminn
https://timarit.is/publication/1072

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.