Nútíminn - 20.05.1961, Blaðsíða 4

Nútíminn - 20.05.1961, Blaðsíða 4
4 NÚTÍMINN NÚTÍMINN Útgefandi: Stórstúka íslands (Skrifstofa á Príkirkjuvegi 11, sími 17594) Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gunnar Dal Njálsgötu 87 — Heimasími 36533 Afgreiðsla á Laugavegi 28 Gjaldkeri: Sindri Sigurjónsson, pósthóllf 757 Prentsmiðjan Edda h.f. Bréf til Nútímans Ólafur Gunnarsson: SEX EÐA 7 MeÖ mikilli ánægju hef ég lesið Nútímann, síðan hann hóf göngu sína. Ég er þó ekki templar og hef aldrei verið. Ég er meira að segja ekki algjör bindindismaður, en þó áreið- anlega í hófsamara lagi af manni, sem á annað borð af- neitar ekki undantekningar- laust víni. Annars hef ég allt- af verið hlynntur bindindi og séð í hvern voða stefnir með áfengismál þjóðarinnar, eink- um síðustu árin. En ég hef alltaf haft lítiö álit á templ- urum og jafnvel fyrirlitiö þá og talaö af lítilsvirðingu um þá. Ég verð þó að viðurkenna, að ég hef í rauninni aldrei neitt til þeirra þekkt af eigin kynnum. En það tala svo margir illa um templara og þá hættir manni við að trúa í hugsunarleysi og jafnvel taka undir óhróðurinn. Svo var það af einhverri rælni að ég keypti fyrsta blaðið af Nútímanum og svo næstu blöð líka, því að ölmálið var þá svo mikið á dagskrá. Mér líkaði blaðið býsna vel og síðan hef ég keypt það, og nú er ég orðinn fastur áskrifandi að því. Yfir- leitt líkar mér blaðið vel, en ástæðan til þess að ég skrifa þetta bréf, er sú, að blaðið hefur opnað augu mín fyrir því, að það er ekkert nema illkvittinn rógur að þið gerið ekkert nema dansa. Frásagn- irnar og myndirnar af öllu æskulýðsstarfinu hafa sann- að mér það bezt. Þó að þið hefðuð aldrei gert neitt annað en það, sem þið hafið gert fyrir æskulýðinn í Reykjavík, Akureyri, Hafnar- firði, Keflavík og sjálfsagt víðar, þá hefið þið unnið þarft verk og eigið þakkir 'skyldar fyrir það. Frásagnirnar af því og myndirnar, sem ekki ljúga, hafa breytt skoðun minni á ykkur templurum, — þakkað veri Nútímanum, — og nú tek ég hiklaust svari ykkar, þegar ég heyri talað illa um ykkur. Ég óska Nútímanum og templurum alls góðs og skora á alla góða menn og konur að styrkja Nútímann með því að gerast áskrifendur að honum og lesa hann vel og hugsa í alvöru um áfengisvandamálin. Reykjavík, í maí 1961. Velviljaður. Gamanleikur í þrem þátt- um eftir Lesley Storm. Þýð- andi Ingibjörg Stephensen. Leikstjóri: Hildur Kalman. Leiktjöld: Steinþór Sigurðs- son. Ljósameistari Gissur Pálsson. Leikfélag Reykjavíkur hef- ur oft verið fundvíst á góða gamanleiki og virðist sízt vera í afturför hvað það snertir ef dæma má eftir leiknum „Sex eða 7“. Þetta leikrit hefur flesta kosti gamanleiks. Þar er dregið dár að alls konar undarlegheitum í fari manna og þá ekki síður kvenna, enda er höfundurinn kona, sem þekkir spaugilegu hliðarnar á kveneðlinu út og inn. En þrátt fyrir allt gamanið dylst engum,aö alvaran er alls stað- ar á bakvið, en það eru ein- mitt aðalsmerki hins góða gamanleiks. — Efnið er í stuttu máli þetta: Skozkur lávarður hefur kynnzt bandarískri stúlku, sem er einbirni efnaðra for- eldra. Lávarðurinn er eigandi gamals herragarð, sem kom- inn var í niðurníðslu og beitir hann nú öllum ráðum til þess að koma öllu í gott horf á ný og hefur þegar náð mikl- um og góðum árangri. Herra- garður þessi erfist aðeins í karllegg og er því áríðandi, að lávarðurinn eignist son með FERÐIZT Z&SZK&VSS'' 8JÖ5^>«y UK’&Xf ÍWR sx *? 39 s « * * fe R » HH »SR aasft »»»ö95SRk fi!Rfififi»fiðSfifiíCk fifios wwwnynK VHHI------------- 'KfifiififififlíðWfi væs « * K ðk jfi M m 686 2Í Alððfil -fiSSRV jðSjfiCfifiX ..ö«SfiMfifitfiMfilfiM! MEÐ FOXUNUM hF ILLI LANDA tywfé/a// Á‘/aœ(/sjr.K i ICELAIVOAJJR. SB konu sinni, en þegar leikur- inn hefst hafa þau aðeins eignazt sex dætur. Húsfreyjunni finnst nú nóg komið, en lávarðurinn má ekki heyra annað nefnt en eignast sön. Ágreiningurinn verður til þes, að konan hring- ir til foreldra sinna á þeim tíma dags þegar nótt er í Bandaríkjunum. Þau koma tafarlaust til liðs við dóttur sína — eða hvað? Leikhús- gestir verða sjálfir að svara þeirri spurningu hvort koma þeirra er til góðs eða ills. Hildur Kalman stj órnar leik þessum og hefur gert það af vandvirkni og smekkvísi. Vel hefur tekizt leikendaval og er þá hálfur sigur unninn. Hildur er smekklega kynnt i leikskrá en þar hefur sú villa slæðzt í frásögnina, að hún hafi starfað með danska leik- stjóranum Simon Edwardsen. Simon Edwardsen er fæddur í Noregi en hefur starfað alla sína leikstjóraævi í Svíþjóð og er sænskur ríki^borgari. Villu þessa ætti að leiðrétta þegar leikskráin verður end- urprentuð en þess verður vafa- laust þörf því spá má þessu leikriti langra lífdaga i Iðnó. Guðmundur Pálsson leikur Dungavel lávarð og er ánægju- legt að sjá hversu hressilega Guðmundur tekur á viðfangs- efninu. Lávarðurinn er unn- andi moldar og frjósemi, hreinn og beinn í orðum og verkum. Á lægni hans og karl- mennsku veltur fyrst og fremst hvort óðalið erfist til sonar hans, sem enn er ó- fæddur eða þremenningsins Bernard Taggart-Stuart (Birgir Brynjólfsson). Helga Valtýsdóttir leikur iafði Dungavel. Þetta hlut- verk er ólíkt þeim skapgerð- arhlutverkum sem Helga hefur áður túlkað með mest- um glæsibrag. Lafði Dungavel er greind kona, sem ann manni sínum hugástum, en vafasamt uppeldi gerir henni erfitt fyrir á ýmsan hátt. Móð irin hefur sízt átt þátt í að kenna henni að greina hismi frá kjarna, enda er krýning- arhátíð Bretadrottningar hinni amerísku frú öllu Áskriftasími NÚTÍMANS er 36533 meira virði en allur bústofn tengdasonarins. Helga skapar þarna betri tegund bandarískra eftirlæt- isdætra eins og höfundur ætlast til og sýnir um leið nýja og geðþekka hlið á leik sínum. Rita Larsen leikur elztu dóttur Dungavelhjónanna og er mikill frískleiki í meðferð hennar á þessu skemmtilega hlutverki. Vafalaust má þakka Hildi Kalmann, sem er vön að stjórna barnaleikritum, hversu vel litla stúlkan nýt- ur sín, en segja má að hún verði þegar í upphafi uppá- hald leikhúsgesta. Regína Þórðardóttir kemur nú eftir áratugs fjarveru frá Iðnó aftur fram á gamla sviðið og nýtur sín hið bezta. Tengdamóðir Dungavel lá- varðar verður í meðferð henn- ar skemmtilega hégómleg og allt hennar fas og gerðir opna leikhúsgestum heima hjákát- legs kvennaveldis, þar sem heilbrigð skynsemi er bann- færð en auglýsingaæði og tepruskapur blandast saman. Tom Chadwick, tengdaföður Dungavels leikur Brynjólfur Jóhannesson. Þessi ágæti mað ur er að nokkru leyti orðinn beygður af 30 ára samvistum við drottnunarsjúka konu en getur þó ekki án hennar ver- ið. Mannkostir hans eru þó svo miklir, að segja má að þeir ráði mestu um, að allt fer ekki forgörðum, sem ungu hjónin eru búin að byggja upp af lífshamingju. Brynjólfur fer vel með hlutverkið og því betur sem á leikinn líður. Valdimar Lárusson fer vel með hlutverk gamla þjónsins en Birgir Brynjólfsson veldur ekki hlutverki Bernards. Það eina sem hann sýnir er ó- taminn vitleysa og aumingja- skapur en hvorugt orkar sann færandi á leikhúsgesti. Birg- ir verður að gera sér grein fyrir því, að það er ekki nóg aö vera sonur Brynjólfs Jó- hannessonar til þess að vera vel séður á íslenzkum leik- sviðum. Þorsteinn Ö. er ágæt- ur frændi lávarðarins. „Sex eða 7“ mun áreiðan- lega gleðja marga leikhúsgesti á komandi vorkvöldum og þegar skuggarnir lengjast með haustinu munum við áreiðanlega hitta þetta skemmtilega fólk á ný við Tjörnina. Ólafur Gúnnarsson.

x

Nútíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nútíminn
https://timarit.is/publication/1072

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.