Nútíminn - 20.05.1961, Blaðsíða 5

Nútíminn - 20.05.1961, Blaðsíða 5
NUTIMINN 5 Unglingareglan á íslandi 75 ára Hinn 9. maí s.l. varð Ung- lingareglan á íslandi 75 ára. Þann dag fyrir 75 árum var barnastúkan Æskan nr. 1 stofnuð í Reykjavík af Birni Pálssyni, ljósmyndara, sem var fyrsti gæzlumaður stúk- unnar. Fyrsti æðstitemplar stúk- unnar var Friðrik Hallgríms- son, er síðar varð dómkirkju- prestur í Reykjavík, svo sem alkunna er. Verndarstúkur Æskunnar eru st. Verðandi nr. 9 og Einingin nr. 14. Nú- verandi gæzlumenn stúk- unnar eru Ólafur F. Hjartar, hér á landi 40 barnastúkur með 2400 félögum. Nú eru starfandi um 60 barnastúkur með yfir 6700 félögum. Barnastúkur eru upprunn- ar í Bandaríkjum N.-Ameríku og eiga rætur sínar að rekja til svokallaðra barnamustera, sem fyrst komust á fót árið 1874. Barnadeildir mynduðu síðar með sér félagsheild, sem nefnd er Unglingaregla, sem er grein á stofni Góðtempl- arareglunnar. Unglingareglur starfa í mörgum löndum heims. Yfirmaður unglinga- reglunnar nefnist stórgæzlu- maður. Fyrsti stórgæzlumað- Æskufélagar leika á blokkflautur. bókavörður og Þorvarður Örnólfsson, kennari. Æðsti- templar stúkunnar er Áslaug Jóhannesdóttir, nemandi. Fyrsta barnafélag á íslandi. Barnastúkan Æskan var fyrsta barnafélag, sem stofn- að var hér á landi. Fljótlega eftir stofnun Æskunnar fylgdu í kjölfar hennar barnastúkur víðsvegar um land. Á 25 ára afmæli Ungl- ingareglunnar voru starfandi ur Unglingareglunnar hér á landi var Friðbjörn Steins- son, bókbindari á Akureyri. Núverandi stórgæzlumaður er Ingimar Jóhannesson, full- trúi fræðslumálastjóra. Markmið: Markmið Unglingareglunn- ar er að kynna börnunum hugsjónir Góðtemplararegl- unnar, sem eru fyrst og fremst brœðralag allra manna, algert bindindi á áfenga drykki, út- Félagar Æskunnar, sem hlutu bronsmerki fyrir skyldurækni. Þorvarður Ömóifsson, gæzlumaður, lengst tii vinstri. 60 barnastúkur meö 6700 félögum : Félagar Æskunnar ásamt nokkrum heiðursfélögum og gæslumönnum. - Myndirnar á síðunni voru allar tekn- ar á hátíðafundi Æskunnar í tilefni af 75 ára áfmælinu. (Mynd: STUDIO). rýming áfengisnautnar og þrotlaust starf að því tak- marki, að andi réttlætis og bræðralags nái að gegnsýra allt þjóðlífið. Unglingareglunni voru val- in einkunnarorðin: sannleik- ur, kærleikur, sakleysi. Um leið og börnin gengu í regl- una lofuðu þau að forðast áfengi, tóbak, fjárhœttuspil og illt orðbragð. Er þetta enn sú skuldbinidng, sem þau gang- ast undir hér á landi frá 8 ára aldri, að því síðasta und- anskildu. En talið er skylt að forðast illt orðbragð. Sum- staðar í nágrannalöndum vinna börnin framangreint heit 12—14 ára. Frá upphafi starfsins hefur börnunum verið kennt að temja sér góða siði, hjálpfýsi og hlýðni við foreldra og kennara. Fjölbreytt starf. Unglingareglan hefur jafn- an haft margbreytta starf- semi ár hvert, bæði vetur og sumar. Fundirnir setja aðal- svipinn á vetrarstarfið, ferða- lög og námskeið á sumar- starfið. Börnin sjálf eru látin starfa sem mest. Öll störfin miða að auknum þroska þeirra, andlegum og líkam- legum. Leiðtogar barnanna — gæzlumennirnir — fórna miklum tima og kröftum vegna þess starfs, sumir ára- tugum saman. Margir viður- kenna að verðleikum starf barnastúknanna og láta böm sín starfa í þeim, enda eru þær hinn bezti skóli á marg- an hátt. Barnastúkufélagar hafa oft valizt til forystu í fé- lagsmálum síðar á ævinni, ekki sízt vegna kunnáttu og þjálfunar í fundarsköpum og margvíslegum félagsstörfum. Auk venjulegra fundarstarfa gera börnin sitthvað sér til skemmtunar á hverjum fundi. Sögur eru lesnar, leikrit sýnd, söngur æfður og hljóðfæra- leikur, eftir því, sem hægt er. Getraunaþættir og kvik- myndasýningar eru vinsæl skemmtiatriði. Árlega eru haldnar jóla- og afmælis- skemmtanir, foreldrafundir o. fl. Þá taka og barnastúkur þátt í skólamótum þeim, sem haldin hafa verið síðustu ár til styrktar og útbreiðslu bindindis. Barnastúkur heim- sækja oft hver aðra og stund- um er þeim boðið á fund í verndarstúkum sínum og fundarefni þá miðuð við barnahæfi. Bryndísarminning: Svo heitir eini styrktar- sjóðurinn, sem Unglingaregl- an á. Þau hjónin Gissur Páls- son, rafvirkjameistari, fyrrv. stórgæzlum., og frú Sigþrúð- ur Pétursdóttir stofnuðu hann til minningar um Bryn- dísi dóttur sína 1949. Sjóðn- um er ætlað að styrkja tón- listarstarfsemi félaga í barnastúkum Reykjavíkur. Sjóðnum er aflað tekna með minningagjöfum, barna- skemmtunum o. fl. Nokkur styrkur hefur þegar verið veittur úr sjónum. Barnablaðið Æskan. Barnablaðið Æskan er ná- tengd Unglingareglunni, þar Framh. á 6. síðu. Einn af leikflokkutn Æskunoar ásamt leiffbeinanda sínum, Sigrúnu Gissursdóttur.

x

Nútíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nútíminn
https://timarit.is/publication/1072

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.