Nútíminn - 20.05.1961, Blaðsíða 7

Nútíminn - 20.05.1961, Blaðsíða 7
NÚTÍMINN 7 Sigurður Jónsson: HANDRITAMÁLID Mjög er spurt þessa dagana um handritamálið og virðast furðumargir telja mikil ör- lög í höndum Dana, þar sem handritin eru. Víst er handritamálið stór- mál en kannske meira fyrir aðra aðila en okkur íslend- inga og á annan veg en mest hefir verið á orði haft, því mest er vert að þau séu til og notuð en ekki munu blöðin sem þau eru skráð á, fúna ör- ar á einum stað en öðrum eins og geymslur eru orðnar og ekki munu Danir hafa burði til að afrækja rannsókn þeirra fremur eftir að hafa með ofríki haldið þeim rang- lega og á mót betri vitund en á meðan enginn gerði sér Ijóst að athugandi væri um heimildir þeirra fyrir yfirráð- um yfir þeim auði. Samkvæmt uppruna og réttlæti eiga handritin auð- viðað að koma hingað en þó einkum vegna þess, að hér eru bezt tæki við rannsókn þeirra ef hún á að verða svo tæm- andi, sem hún getur orðið, og þau eru hvorki ljósmynda- vélar eða kvarslampar, þótt nauðsynlegir séu, heldur orð- færi og hugsunarháttur þeirra manna, sem enn hanga á nokkru af stofnum, hljóð- um og skipulagsgáfu svipaðri þvi, sem myndaði frásögn, verknaði og atburðaskilning þessara umdeildu handrita. Og þetta hafa Danir vitað alla tíð. Þeir hafa sogið út til sín hvern íslenzkan afburða- manninn af öðrum til þess að rannsaka fyrir sig það, sem þeir réðu ekki við sjálfir, og þeir hafa gert þá suma sjálfa, en afkomendur annarra hálfu verri (Æ, hvað kallar nú meistari Jón fyrirbærið?) en sjálfa sig, og væri þar efni til kröfu um mörg manngjöld, ef ekki væri hitt, að svíðandi heimþrá, einstæðingsskapur og ódrepandi ættjarðarást hefði leyst svo úr sumum þessum þrælkunargripum þeirra, að þeir hefðu fremur vonum greitt bæturnar fyrir þrælkandann með áhuga á málum íslands og grundvall- aðri þekkingu á þeim heim- alningunum til styrks og menningarauka. Það hefði þannig vísast orðið minna gagn að Jóni Sigurðssyni sem aðstoðarpresti vestur á Hrafnseyri hjá föður sínum heldur en, þar sem hann varð, með heildarsýn fjarlægðar- innar og námsíramans fyrir ieiðarstein en ættjarðarástina og danskar mótgerðir fyrir byr og brýningar. „En“, spyrja sumir, „hvað veldur tómlæti dr. Jóns Helga- sonar frá Rauðsgili“? Hefir hann ekkf meira að kenna í þesum fræðum en flestir menn aðrir og öllum betri að- stöðu til þess? Því hefir jafn- vel verið kastað fram að kommúnistinn i honum hafi í þessu máli tekið við stjórn- inni eftir rússneskri línu og sæti nú færi að láta Norður- löndin berjast við túngarð sinn eins og Mörður Valgarðs- son gerði við granna sína forð- um. Sú tilgáta í Jóns garð mun þó röng. Háðfugl sá mun hafa séð svo mikið af aurkasti og rykaustri íslendinga hvers yfir annan, að hann geti ver- ið í vafa um hvort okkur sé ekki sjálfum betra að eiga nokkuð af vísindamönnum, sem vel kynnu að hafa festu til að halda þjóðrækni sinni, erlendis og utan við siðleysi kunmngsskaparins íslenzka þótt það jafnvel kostaði þá einn og einn Jón Eiríksson líf- ið og næsta ættlið út af hon- um þjóðernið. Hann mætti hafa reynt það á sjálfum sér. Það gæti verið bending og hún næg fyrir dr. Jón Helga- son, að meira hefir verið tal- að um húsnæði fyrir handrit- in ef þau kæmu — en starfs- krafta við þau til úrvinnslu og umhirðu, um hæfni þess fólks andlega karlmennsku og aðra kosti. Eitthvað er til af uppvax- andi og uppkomnum fræði- mönnum, hvort sem það næg- ir, en hversu margir af við- komunni munu þola að vera beint frá prófborði látnir að grænum völlum í eigin heima- högum, þar sem ekki ónáðar þá einu sinni vottur af stroki til að fá þá til að líta upp úr beitinni og glöggva stefnur, fjallasýn og takmark meö verkinu. Spá er enn og aðeins spá, hvar handrit Ámasafns muni lenda að lokum þótt hingað ættu þau að komast aftur. Ef nýnazistar verða látnir vaða uppi eins og nafnfeður þeirra á milli heimsstyrjald- anna, mætti svo fara að þau höfnuðu með öðru herfangi í Stór-Þýzkalandi þess tíma, hvort sem það verður þá ann- < að en sprengjugígjarústir, en Danir mega verða fyrir mikilli þjóðernisvakningu og víðtækri til þess að vilja nóg fyrir þau gera, og næmasta hluta skiln- ings og kunnáttu til að gera nokkuð óvitlaust með þeim á- huga yrðu þeir að sækja í höfuð sín hingað — út til ís- landsð — ef þeir ættu án ís- lenzkra höfða að gera sér arð- bæran feng úr fengnum skræðunum. Fullveðja vísindamenn, sem ætla að ná nýtilegum starfs- árangri á Árnasafni, og koma þeirra erinda til Danmerkur — á meðan það er —, verða hér eftir sem hingað til að biðja íslendinga að lesa hand- ritin með sér að meira eða minna leyti og vera sér sá þjóðernisgrundvöllur, sem þau þurfa að baki sér til að sjást í réttu ljósi. Að öðrum kosti — og helzt hvort sem er — verða þeir að fara langdvölum til íslands eins og gerði ekki heimskari maður en Rasmus Kristján Rask, fer þá að minnka frægð Dana af geymslu þeirra og hagnaður Evrópu af að vita þau þessu nær meginlandinu, en þau yrðu á upprunastað sínum. En Dönum mætti vera fagn- aðarefni að kaupa þau af sér ef þyrfti, heldur en sitja með þau sem sönnun um mergsog- un og ruplanir á íslenzkri þjóð um hundruð ára. Slíkir skartgripir fara enn líkt og þegar sr. Jón Þorláksson orti um kvenmanninn og sagði: Girnast myndi fár að fá fljóð í stolnu glingri. Glæpskrúðanum gengur á Guðríður hin yngri. Sigurður Jónsson frá Brún. Hinn trúarlegi grundvöllur (Framhald af 2. síðu). skapazt að miklu leyti af frábærri fórnarlund mæðr- anna fyrr og síðar. Það er ekki ósjaldan sem við eig'inmennirnir teygum úr fórnarbikar eiginkonunn- ar og þurfum að leita ásjár hennar, vegna misgjörða okk- ar og tillitsleysis til þeirra og annarra heimilisástæðna. Hin vökula móðir, eða eig- inkona, er sífellt á verði yfir velferð fjölksyldunnar, eins og hann sem vakir eins og blílynd bezta móðir. Fóstur- landsins freyja, mun alltaf tendra það ljós sem lýsir fram eftir veg, því hún veit að margir hafa sínar birgðir að bera, bæði ungur sem gam- all, í margskonar myndum, þess vegna er það nauðsyn- legt hverjum manni að fara eftir ráðum góðrar móður, að iðka trú og leita sannleikans í náð og gefa gaum sannind- um lífsins. Oss mönnunum er það ljóst að við lifum í heimi þjáning- anna, sem mannkynið áskap- aði sér sjálft í upphafi vega, vegna vonzku sinnar við hinn mesta friðarhöfðingja ver- aldar, sem fæðst hefur í þennan heim, og kom til að frelsa mannkynið frá synd- um, neyð og böli. Þjáningarnar eru í margs konar myndum, þær sem eru óviðráðanlegar, þær sem hægt er að forðast með vís- indum og þær sem maöur á- skapar sér sjálfur, sú þján- ing sem margir áskapa sér sjálfir er þjáaiáng drykkju- skaparins. Hana geta menn lagt að velli, ef þeir aðeins vilja. Af hverju losa menn sig ekki við þjáningar drykkju- bölsins sem þeir ráða við sjálfir. Það er af því að þeir vilja það ekki sjálfir. Það er sannleikur málsins. Eg veit það sjálfur af eigin raun. Þeir, sem ekki treysta sér til þess sjálfir, eiga að leita liðs annarra góðra manna og félagsskapar, það ætti að vera öllum ljóst, að drykkjuhneigð manna hefur í för með sér margskonar hrösun og vandamál, þá eru hverskonar freistingar á hverju homi hins daglega lífs. í kjölfar þeirra er svo andúð vegfarandans á hinum sið- lausa þjóni Bakkusar. Þeim mönnum veitir ekki af, sem í þær vegleysur rata að leita hjálpar þegar þeir hafa misst stjórn á sjálfum sér. Eg mundi vilja benda mönnum á sem þannig eru á vegi stadd- ir það sem ég tel öruggustu hjálpina við drykkjubölinu; að leita hjálpar guðs. Hann sem vakir, veit hvar kreppir að í lífi vor mann- anna. Hann veit líka hvar birtuna vantar og skilur alla hluti. Skáldið segir í sálmin- um. Höndin sem þig hingað leiddi, hlmins til þig aftur ber. Það er æfinlega full þörf á að tala um andleg mál, ekki sízt nú, þegar þjóðfélagshætt- írnir eru stöðugt að breytast og fólk vill hafa kristlndóm- inn einhvers staðar í bak- herbergi þar sem hægt er að grípa tii hans við hátíðleg tækifæri eins og sparifata. Góðtemplarareglan sem við stöndum saman um er okkar önnur móðir. Hún er með faðminn opinn fyrir alla þá sem vilja vera börn hennar. Við erum sannarlega börn hennar. Hún byggir sínar forsendur á trúarlegum grundvelli, hennar undirstaða er hin ótmæmandi sjóður, er gefur mönnum og konum kost á að auka lífsgæfu sína, gæfu sem er lykill að hinu fegursta lífi vor mannanna. Lykill að því að vera laus við vín og allar þjáningar sem því er samfara, sem skapa í flestum tilfellum dimmar nætur og sólarlausa daga. Reglan leyt ast við að vernda mannheill og vinnur að bjartari og feg- urra. lífi um allan heim. Um 75 ára skeið, hefur þessi helgiglóð verið tendruð á þessum stað, bæði af látnum forustumönnum reglunnar um áratugi og af þeim sem nú standa vörð um hana. Á þessum stað hefur margur maðurinn fundið hjarta sitt fyllast friði og birtu, svo það hefur rofað til í vályndum veðrum, og hin dimma nótt hefur liðið hjá. Hingað eiga margir eftir að sækja sinn andlega mátt og nýja tilveru, ef vel er á haldið. Nú þesa dagana heyrum við vorfuglana syngja um dýrð þess sem vaknar við komu vorsins. í rauninni er fyrir löngu farið að vora, hjá okkur í stúkum bæjarins. Vorfugl- arnir okkar, æskan koma með langflesta móti í regluna að þessu sinni. Þar sem sáð hefur verið í allra fyrsta lagi í málefnum reglu'nnar, má búast við mik- illi uppskeru. Það hefur þótt tíðindum sæta, straumur æsk- unnar liggur í stúkur bæjar- ins, enda eru bundnar við hana björtustu vonir um framtíðarhamingju. Æskan er frækorn mannlegs lífs, þess vegna er það mikil gleði for eldra og okkar sem vinnum að fagurri hugsjón, að æskan velur sér veg reglunnar og hefur hana sem leiðaljós í stafni. Eg vil benda æskunni á það að það er mikill vandl að vera kyndilberi reglunnar, og leit- ast við að vera sannur Góð- templari. Prúðmennskan þarf að vera aðalsmerki í daglegu fari, öðrum til fyrirmyndar. Iðka í lífi sínu hellagar dyggðir, og fegra mannkosti sína er stuðla að heilbrlgðu lífi. Vertu hógvær, tem þér sannleika í orðum og verkum og vertu alltaf. tilbúinn að hjálpa öðrum til að öðlast nýtt líí og byrgja brunn Bakk usar. Hafnarfirði 16/4 1961. Guðmundur Guðgeirsson.

x

Nútíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nútíminn
https://timarit.is/publication/1072

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.