Morgunblaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 2
KÖRFUBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Afar óvænt úrslit litu dagsins ljós á
tvennum vígstöðum þegar fjórir leikir
fóru fram í Iceland Express-deild
kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi.
Topplið KR hafði unnið alla leiki sína í
deildinni þar til það fór til Hafn-
arfjarðar þar sem KR tapaði fyrir
Haukum 66:60 en lið Hauka hafði ein-
ungis unnið einn af fyrstu fimm. Þá
vann Hamar sterkt lið Vals á Hlíð-
arenda 69:61 og þar með hafa Hver-
gerðingar unnið tvo leiki í röð eftir að
hafa tapað fyrstu fjórum. Væntanlega
sætur sigur fyrir Hvergerðinga sem
þar mættu fyrrverandi þjálfara félags-
ins og nokkrum fyrrum samherjum.
Beið eftir að sjá sterka vörn
„Jú, þú getur rétt ímyndað þér.
Þetta var alveg frábært. KR-liðið er
hörkugott og við megum vera stolt af
því að hafa unnið toppliðið,“ sagði
Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka,
þegar Morgunblaðið spurði hann hvort
ekki væri gott í honum hljóðið eftir
þennan sigurleik. Hver er galdurinn
við að vinna KR-liðið sem leikið hefur
frábærlega í haust og fundið taktinn
fljótt þrátt fyrir miklar mannabreyt-
ingar í sumar?
„Galdurinn segirðu. Varnarleikurinn
var mjög öflugur og það er eitthvað
sem ég hef beðið eftir í allt haust. Hann
small í kvöld og okkur gekk mjög vel að
fylgja eftir þeim áherslum sem við vor-
um með í varnarleiknum. Varnarleik-
urinn var því lykillinn að sigrinum,“ út-
skýrði Bjarni og þegar tölfræðin úr
leiknum er skoðuð má sjá að Hafnfirð-
ingar héldu sterkum leikmönnum á
borð við Bryndísi Guðmundsdóttur og
Margréti Köru Sturludóttur í 8 skor-
uðum stigum sem er með minnsta móti
á þeim bæjum. Bjarni bætti því við að
hann hefði séð glefsur í leikjum liðsins
á undirbúningstímabilinu þar sem
margt hefði bent til þess að Haukaliðið
gæti spilað sterka vörn. „Við höfum
hins vegar verið hörmuleg á köflum í
vetur. Höfum einnig átt góða kafla en
ekki tekist fyrr en nú að spila góða
vörn í heilan leik.“
Hvolsvellingar mætast
Bjarni neitar því ekki að sigurinn
geti gert Haukaliðinu gott í framhald-
inu en segist samt sem áður ekki vilja
dvelja of mikið við hann. „Já, vonandi
en við getum ekki gleymt okkur yfir
einum sigri. Ég ætlaðist til þess að við
næðum góðum leik því við getum unnið
KR á góðum degi eins og kom í ljós.
Næsta verkefni er að fara til Hvera-
gerðis og mæta Hamri sem hefur unnið
tvo leiki í röð. Það er alltaf gott að fá
tvö stig en þessi sigur verður minni ef
við komum ekki sterk til leiks á móti
Hamri. Ef við vinnum þann leik ættum
við að fá meira sjálfstraust. Lalli (Lár-
us Jónsson þjálfari) og stelpurnar hans
náðu flottum sigri í kvöld og það verður
erfitt verkefni að fara til Hveragerðis.
Þar munu tveir Hvolsvellingar slást á
hliðarlínunni og það hlýtur að fara í
sögubækurnar.“
Deildin í hnút
Eftir leiki gærkvöldsins eru Íslands-
og bikarmeistarar Keflavíkur komnir
upp að hlið KR á toppi deildarinnar
með tíu stig eftir sex leiki. Keflavík
vann Snæfell nokkuð örugglega á
heimavelli 82:66. Njarðvík sem lék til
úrslita í fyrra er í þriðja sætinu með
átta stig. Njarðvík fór í Grafarvoginn
og vann Fjölni 99:78 eftir nokkuð jafn-
an fyrri hálfleik.
Þegar staða annarra liða í deildinni
er skoðuð er hún býsna merkileg en
reyndar mjög einföld. Valur, Haukar,
Snæfell, Fjölnir og Hamar eru nefni-
lega öll jöfn með 4 stig og því ekki
óvarlegt að segja að deildin sé í einum
hnút. „Þetta er ekki staða sem kemur
mér neitt á óvart. Þetta er akkúrat það
sem ég bjóst við og liðin verða sjálfsagt
í einum pakka fram eftir vetri en það er
bara gaman. Liðin geta væntanlega
hoppað upp um fjögur til fimm sæti
með einum sigri,“ sagði Bjarni.
Óvænt tíðindi á
tvennum vígstöðum
Morgunblaðið/Golli
Átök Katina Mandylaris, Fjölnir, og Ólöf Helga Pálsdóttir, Njarðvík, takast á í Grafarvoginum í gærkvöldi.
Fyrsta tap KR Hvergerðingar skelltu fyrrum samherjum
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2011
Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðsþjálfari kvenna í handknatt-
leik, hefur valið 21 leikmann til æfinga fyrir heimsmeist-
aramótið sem hefst í Brasilíu 2. desember. Af þessum 21 leik-
manni velur Ágúst síðar 16 leikmenn til þess að taka þátt í
mótinu. Æfingar hefjast 19. nóvember.
Fátt kom á óvart í vali Ágústs en allir leikmennirnir hafa
meira og minna tekið þátt í leikjum landsliðsins eftir að hann
tók við stjórn þess snemma á þessu ári. Athygli vekur þó að
Sunneva Einarsdóttir, varamarkvörður úr Val, er þriðji mark-
vörður hópsins. Guðrún Ósk Maríasdóttir, markvörður Fram,
er meidd og getur ekki gefið kost á sér. Berglind Íris Hans-
dóttir og Íris Björk Símonardóttir hafa lagt skóna á hilluna en
þær voru í marki íslenska landsliðsins þegar það tók þátt í Evr-
ópumeistaramótinu í Danmörku í desember í fyrra.
Hópurinn er skipað eftirtöldum leikmönnum; Markverðir:
Guðný Jenný Ásmundsdóttir, Val, Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir,
HK, Sunneva Einarsdóttir, Val. Aðrir leikmenn: Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir, Val, Arna Sif Pálsdóttir, Aalborg DH, Ásta
Birna Gunnarsdóttir, Fram, Birna Berg Haraldsdóttir, Fram,
Brynja Magnúsdóttir, HK, Dagný Skúladótt-
ir, Val, Elísabet Gunnarsdóttir, Fram, Hanna
Guðrún Stefánsdóttir, Stjörnunni, Harpa Sif
Eyjólfsdóttir, Spårvägens HF, Hrafnhildur
Skúladóttir, Val, Karen Knútsdóttir, Blom-
berg-Lippe, Ragnhildur Rósa Guðmunds-
dóttir, Val, Rakel Dögg Bragadóttir, Lev-
anger, Rut Arnfjörð Jónsdóttir, Team Tvis
Holstebro, Sólveig Lára Kjærnested, Stjörn-
unni, Stella Sigurðardóttir, Fram, Þórey
Rósa Stefánsdóttir, Team Tvis Holstebro,
Þorgerður Anna Atladóttir, Val.
Íslenska landsliðið leikur tvo æfingaleiki við Tékka hér á
landi 25. og 26. nóvember áður en það heldur af landi brott 29.
nóvember áleiðis til Brasilíu.
Ísland verður í riðli með Angól, Kína, Noregi, Svarfjallalandi
og Þýskalandi á heimsmeistaramótinu. Þetta verður í fyrsta
sinn sem íslenskt kvennalandslið í flokkaíþrótt tekur þátt í loka-
keppni heimsmeistaramóts. iben@mbl.is
Ágúst Þór hefur HM-undirbúning eftir níu daga
Ágúst Þór
Jóhannsson
Þrír íslenskir knattspyrnum
dagana að reyna fyrir sér hj
Sarpsborg en þeir Albert B
Kjartan Ágúst Breiðdal og
Haraldur Björnsson hafa æ
vikunni og spila æfingaleik
un.
„Við höfum það bara fínt
gengið ágætlega hjá okkur
Það er ekki annað að heyra
vel á okkur en hvort okkur v
samningur er of snemmt að
sagði Albert Brynjar við Mo
gær.
Líst vel á félagið
Albert skrifaði í síðustu v
tveggja ára samning við FH
samningsbundinn Val og Kj
Þeim lís
Spánn
Bikarkeppni,
32 liða úrslit, fyrri leikur:
L’Hospitalet – Barcelona .........................0:1
– Andrés Initesta 86.
Meistaradeild kvenna
16 liða úrslit, síðari leikur:
Arsenal – Rayo Vallecano.........................5:1
Arsenal fer áfram samtals 6:2.
Rossiyanka – Voronezh ............................3:3
Rossiyanka fer áfram samtals 7:3.
Lyon – Sparta Prag...................................6:0
Lyon fer áfram samtals 12:0.
Torres – Bröndby......................................1:3
Bröndby fer áfram samtals 2:5.
PSG – Frankfurt .......................................2:1
Frankfurtfer áfram samtals 4:2.
KNATTSPYRNA
Þýslaland
A-deild karla:
Lübbecke – Kiel....................................22:32
Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk fyr-
ir Kiel. Alfreð Gíslason er þjálfari liðsins.
Þetta var ellefti sigur Kiel í röð í deildinni
sem er met. Ekkert lið í sögu þýsku 1.
deildarinnar hefur byrjað leiktíðina betur.
Staðan:
Kiel 11 11 0 0 355:248 22
Hamburg 10 8 0 2 312:266 16
RN Löwen 10 7 1 2 296:269 15
Füchse Berlin 10 7 1 2 292:273 15
Flensburg 10 7 0 3 276:275 14
Lemgo 9 6 0 3 257:245 12
Melsungen 9 5 1 3 267:252 11
Magdeburg 9 5 0 4 264:251 10
N-Lübbecke 10 4 0 6 288:293 8
Göppingen 10 4 0 6 259:276 8
Wetzlar 9 3 1 5 244:253 7
Balingen 9 3 1 5 231:258 7
Burgdorf 9 3 0 6 275:290 6
Grosswallst. 9 3 0 6 227:240 6
Gummersb. 9 2 1 6 257:295 5
Bergischer 9 2 0 7 253:283 4
Hüttenberg 9 1 0 8 218:275 2
Hildesheim 9 1 0 8 254:283 2
B-deild karla:
Rheinland – Nordhorn.........................23:24
Björgvin Þór Hólmgeirsson skoraði þrjú
af mörkum Rheinland sem er í 13. sæti með
átta stig þegar tekið hefur verið tillit til átta
stiga sem dregin voru af liðinu við upphafi
leiktíðar vegna gjaldþrots á síðasta ári.
Danmörk
Bikarkeppni karla, 8-liða úrslit:
AG København – Skjern......................33:17
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 6 mörk
fyrir AG, Arnór Atlason 2 og Snorri Steinn
Guðjónsson 1.
AG hafði yfirburði í leiknum og hafði
m.a. ellefu marka forskot í hálfleik, 20:9.
A-deild kvenna:
KIF Vejen – Team Tvis Holstebro .....26:27
Rut Jónsdóttir og Þórey Rósa Stefáns-
dóttir léku báðar með TTH en skoruðu ekki
mark. TTH er í öðru sæti deildarinnar með
17 stig eftir 10 leiki. Randers er efst einnig
með 17 stig en betra markahlutfall en TTH.
Noregur
A-deild kvenna:
Storhamar – Levanger ........................25:24
Rakel Dögg Bragadóttir skoraði sjö
mörk fyrir Levanger. Nína Björk Arn-
finnsdóttir lék með Levanger en skoraði
ekki. Ágúst Jóhannsson er þjálfari liðsins.
Levanger er í 10. sæti af 12 liðum með fjög-
ur stig eftir 10 leiki.
Svíþjóð
A-deild karla:
Hammarby – Kristianstad ..................27:32
Elvar Friðriksson og Þröstur Þráinsson
skoruðu tvö mörk hvor fyrir Hammarby.
Hammarby situr í 12. sæti af 14 liðum með
6 stig að loknum tíu leikjum.
A-deild kvenna:
Spårvägens HF – VästeråsIrsta.........27:20
Harpa Sif Eyjólfsdóttir skoraði tvö mörk
fyrir Spårvägens sem er í þriðja sæti deild-
arinnar með 12 stig að loknum átta leikjum.
HANDBOLTI
Fjölnir – Njarðvík 78:99
Dalhús:
Fjölnir: Brittney Jones 40/7 fráköst/6 stoð-
sendingar/5 stolnir/4 varin skot, Katina
Mandylaris 20/16 fráköst, Birna Eiríks-
dóttir 9, Erla Sif Kristinsdóttir 7/7 fráköst,
Eva María Emilsdóttir 2.
Njarðvík: Shanae Baker 34/8 fráköst/6
stoðsendingar, Lele Hardy 23/17 fráköst/7
stolnir, Petrúnella Skúladóttir 17, Sara
Dögg Margeirsdóttir 10, Ólöf Helga Páls-
dóttir 4, Salbjörg Sævarsdóttir 4, Emelía
Ósk Grétarsdóttir 4, Erna Hákonardóttir
2, Aníta Carter Kristmundsdóttir 1.
Valur – Hamar 61:69
Vodafone-höllin, Iceland Express-deild
kvenna , 09. nóvember 2011.
Gangur leiksins: 8:2, 14:5, 16:10, 20:14,
25:20, 31:23, 33:28, 36:34, 40:38, 42:45,
44:50, 46:55, 49:57, 55:62, 57:66, 61:69.
Valur: Melissa Leichlitner 15/7 stoðsend-
ingar, Guðbjörg Sverrisdóttir 15/4 fráköst,
María Ben Erlingsdóttir 12/12 fráköst,
Kristrún Sigurjónsdóttir 4/5 fráköst, Þór-
unn Bjarnadóttir 4/5 fráköst, Unnur Lára
Ásgeirsdóttir 4/4 fráköst, Berglind Karen
Ingvarsdóttir 3, Hallveig Jónsdóttir 2/4
fráköst, Signý Hermannsdóttir 2.
Fráköst: 22 í vörn, 20 í sókn.
Hamar: Hannah Tuomi 26/17 fráköst,
Samantha Murphy 25/8 fráköst, Álfhildur
Þorsteinsdóttir 6/15 fráköst, Sóley Guð-
geirsdóttir 5, Kristrún Rut Antonsdóttir 3,
Jenný Harðardóttir 2, Marín Laufey Dav-
íðsdóttir 2/6 fráköst.
Fráköst: 34 í vörn, 18 í sókn.
Haukar - KR 66:60
Ásvellir, Iceland Express-deild kvenna ,
09. nóvember 2011.
Gangur leiksins: 5:3, 9:9, 14:15, 20:17,
24:21, 27:23, 31:24, 40:27, 44:30, 49:38,
51:40, 53:42, 56:45, 61:47, 66:53, 66:60.
Haukar: Jence Ann Rhoads 21/5 stoðsend-
ingar, Íris Sverrisdóttir 15/6 fráköst, Hope
Elam 12/15 fráköst, Margrét Rósa Hálf-
dánardóttir 8, Sara Pálmadóttir 4, Guðrún
Ósk Ámundardóttir 3/5 fráköst, Auður Íris
Ólafsdóttir 3.
Fráköst: 21 í vörn, 14 í sókn.
KR: Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 16/4 frá-
köst, Erica Prosser 15, Hafrún Hálfdán-
ardóttir 11, Bryndís Guðmundsdóttir 8/12
fráköst/3 varin skot, Margrét Kara Sturlu-
dóttir 8/6 fráköst, Helga Einarsdóttir 2/4
fráköst.
Fráköst: 22 í vörn, 9 í sókn.
Keflavík – Snæfell 82:66
Toyota-höllin í Keflavík
Keflavík: Jaleesa Butler 27/20 fráköst/3
varin skot, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir
13/6 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir 11/4
fráköst/6 stoðsendingar/5 stolnir, Sara
Rún Hinriksdóttir 9/6 fráköst, Lovísa
Falsdóttir 7, Sandra Lind Þrastardóttir 6,
Hrund Jóhannsdóttir 6/5 fráköst, Telma
Lind Ásgeirsdóttir 2, Helga Hallgríms-
dóttir 1.
Snæfell: Kieraah Marlow 19, Hildur Sig-
urðardóttir 16/9 fráköst/5 stoðsendingar,
Hildur Björg Kjartansdóttir 13/6 fráköst,
Helga Hjördís Björgvinsdóttir 12/4 frá-
köst, Björg Guðrún Einarsdóttir 3/4 frá-
köst, Alda Leif Jónsdóttir 2/4 fráköst, Sara
Mjöll Magnúsdóttir 1.
Staðan:
Keflavík 6 5 1 537:438 10
KR 6 5 1 455:410 10
Njarðvík 6 4 2 533:492 8
Hamar 6 2 4 423:479 4
Valur 6 2 4 369:390 4
Snæfell 6 2 4 371:408 4
Haukar 6 2 4 429:458 4
Fjölnir 6 2 4 454:496 4
Meistaradeild Evrópu
G.A. Kosice – Spartak Moskva...........55:67
Helena Sverrisdóttir lék með Good Ang-
els Kosice í 6 mínútur og skoraði ekki stig
en tók eitt frákast. Good Angels Kosice
hefur unnið þrjá leiki en tapað tveimur í
keppninni til þessa og er í 5. sæti riðilsins
af átta liðum.
KÖRFUBOLTI
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, IEX-deildin:
Sauðárkrókur: Tindastóll - Valur ........19.15
Toyotahöllin: Keflavík - Þór Þ..............19.15
Dalhús: Fjölnir - KR .............................19.15
HANDKNATTLEIKUR:
Úrvalsdeild karla, N1-deildin:
Höllin: Akureyri - Grótta...........................19
Vodafonehöllin: Valur - HK..................19.30
Framhús: Fram - Afturelding...................20
Viðureign FH og Hauka sem fram átti að
fara í kvöld var frestað um ótiltekinn tíma.
Úrvalsdeild kvenna, N1-deildin:
Framhús: Fram - ÍBV ...............................18
BADMINTON
Iceland International, alþjóðlegt mót í bad-
minton, hefst kl. 10 í dag í húsi TBR.
SUND
Íslandsmeistaramótið í sundií 25 m laug
hefst í Laugardalslaug í kvöld kl. 18.30.
Í KVÖLD!