Morgunblaðið - 14.11.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.11.2011, Blaðsíða 1
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2011 íþróttir Þriggja flokka meistari Skylmingakappinn Hilmar Örn varð Íslandsmeistari í þremur flokkum. Stefnir á að komast á Ólympíuleika. Guðrún vann að nýju eftir barneignarfrí. 2 Íþróttir mbl.is ur leggur á sig sé ekki til einskis. Þetta er staðfesting á því að ég sé að bæta mig og það er rosalega jákvætt,“ sagði Þormóður sem áður hefur tjáð Morgunblaðinu að eitt af stóru markmiðunum hans í íþróttinni væri að vinna til verðlauna í heimsbikarmóti. „Átti að vinna“ Þrátt fyrir það var Þormóður svekktur yfir því að hafa tapað úrslitaglímunni en ætlar ekki að dvelja lengi við það. „Þetta er virkilega stór áfangi en ég er aðallega fúll yfir því að ég var yf- ir í úrslitaglímunni þegar aðeins um ein mínúta var eftir. Ég átti að vinna þessa glímu. Svona er júdóið og það er ekki búið fyrr en það er búið. Það er hins vegar annað mót eftir viku í Amst- erdam áður en ég kem heim og nú einbeiti ég mér að því,“ sagði Þormóður ennfremur. Stórt skref í áttina að Lundúnum Gera má ráð fyrir því að með þessum árangri hafi Þormóður stigið stórt skref í átt að Ólymp- íuleikunum í Lundúnum. Þormóður lagði þrjá andstæðinga að velli sem eru ofar en hann á heimslistanum. Frammistaðan ætti því að gefa honum dýrmæt stig á heimslistann. 22 efstu á þeim lista fara beint inn á leikana en næstu sæti skiptast niður á álfurnar og Þormóður á góða möguleika á því að vera í þeim hópi. Besti árangur Þormóðs Árangurinn er sá besti sem Þormóður hefur náð en hann glímdi um verðlaun á heimsbik- armóti síðasta vetur en komst ekki á pall. Jafn- framt eru þetta fyrstu silfurverðlaun Íslands á heimsbikarmóti en þess ber að geta að Bjarni Friðriksson vann til silfurverðlauna í sambæri- legu móti á sínum tíma. Þormóður vann risaafrek hinum megin á hnettinum Þormóður Árni Jónsson JÚDÓ Kristján Jónsson kris@mbl.is Þormóður Árni Jónsson, júdókappi úr Júdó- félagi Reykjavíkur, undirstrikaði um helgina hversu framarlega hann stendur í sinni grein þegar hann vann til silfurverðlauna á heimsbik- armóti. Mótið fór fram á Samoa-eyjum í Kyrra- hafi og Morgunblaðið náði sambandi við Þor- móð skömmu áður en hann flaug frá eyjunum í gærkvöldi. „Þessi árangur gerir virkilega mikið fyrir mig og sérstaklega að sjá að allt sem mað- Auðunn Jónsson, kraftlyftinga- maður úr Breiðabliki, féll úr keppni á heimsmeist- aramótinu í Tékklandi. Auð- unn var illa fyrir kallaður í bekk- pressunni og fékk enga af þremur lyftum sínum þar dæmda gilda. Eftir því sem fram kemur á heimasíðu Kraftlyftingasambands- ins þótti dómurum Auðunn ekki rétta nægilega vel úr handleggj- unum en 265 kg voru á stönginni. Þessi niðurstaða var sárgrætileg fyrir Auðun því hann hafði sett glæsilegt Íslandsmet í hnébeygju þegar hann lyfti 410 kg. Metið stendur hins vegar ekki þar sem hann féll úr keppni. Auðunn var ekki sá eini sem lenti í slíku. Rúss- inn Dmitry Ivanov setti heimsmet í hnébeygju en féll úr keppni í bekkpressunni. kris@mbl.is Setti met en féll síðan úr keppni Auðunn Jónsson HÓPFIMLEIKAR Kristján Jónsson kris@mbl.is „Þetta mót var nokkuð ólíkt Evrópu- mótinu í fyrra vegna allra meiðslanna sem komu upp í okkar hópi. Þetta var því dálítið hlykkjóttari vegur en við bjuggumst við upphaflega. Við náð- um okkur alveg rosalega vel á strik og pússlin féllu á rétta staði á loka- degi,“ sagði Hrefna Þorbjörg Há- konardóttir í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi. Hrefna var þá nýkomin til landsins frá Noregi þar sem hún og stöllur hennar í Gerplu urðu Norðurlandameistarar í hópfim- leikum en mótið var haldið í Larvik. Gerplukonur eru því handhafar bæði Evrópu- og Norðurlandameistaratit- ils en þær bættu sig talsvert frá síð- asta NM í Finnlandi fyrir tveimur ár- um en þá höfnuðu þær í þriðja sæti. Fengu hæstu danseinkunnina „Okkur tókst vel upp en gerðum reyndar smávægileg mistök á fyrsta áhaldinu okkar sem var golfstökk. Það fór ekki alveg eins og við vildum hafa það en svo komum við rosalega grimmar í trampólínstökkið og ég held að við hefðum ekki getað gert betur þar. Þá munaði 0,3 stigum á okkur og næsta liði sem var frá Sví- þjóð en dansinn réð úrslitum. Við fengum hæstu danseinkunn mótsins ef allir flokkar eru taldir hjá báðum kynjum. Sú frammistaða keyrði sig- urinn í höfn,“ sagði Hrefna enn- fremur og sagði Gerplu vera með meiri breidd en fyrir tveimur árum. Það hafi sýnt sig nú þegar liðið glímdi við mikil meiðsli. „Við endurheimtum skálina okkar en þetta var mikil bæting frá síðasta NM. Þá vorum við einnig með mjög slasað lið en þá vorum við ekki með þá breidd í liðinu sem þurfti. Núna vor- um við með varamanneskjur sem gátu stokkið inn í liðið og framkvæmt erfiðu stökkin,“ sagði Hrefna en Íris Mist Magnúsdóttir sleit hásin á dög- unum og Ásta Þyri Emilsdóttir var einnig meidd. Sif Pálsdóttir, Fríða Rún Einarsdóttir og Karen Sif Vikt- orsdóttir gátu hins vegar allar lagt í púkkið þrátt fyrir meiðsli. „Þetta var andlegur sigur, myndi ég segja, og samstaðan í hópnum var rosaleg.“ „Andlegur sigur“  Gerpla endurheimti Norðurlandameistaratitilinn í hópfimleikum þrátt fyrir mikil forföll vegna meiðsla  Breiddin orðin meiri í liðinu en fyrir tveimur árum Morgunblaðið/Kristinn Meistarar Evrópu-og Norð- urlandameistarar bregða á leik. Morgunblaðið/Kristinn Tækni Hraustir menn stinga sér til sunds á Íslandsmótinu í 25 metra laug og tæknin er mismunandi hjá mönnum eins og myndin ber með sér. Ítarlega er fjallað um ÍM 25 í blaðinu. »4-5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.