Morgunblaðið - 14.11.2011, Qupperneq 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2011
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang
augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Bandaríkjamaðurinn Willard John-
son, sem leikið hefur með ÍR und-
anfarinn mánuð í Iceland Express-
deildinni í körfuknattleik, meiddist
alvarlega á æfingu liðsins nú í vik-
unni.
Meiðslin eru þess eðlis að hann
getur ekki stundað körfubolta um
nokkurt skeið. Hann varð fyrir því
óláni að detta og við fallið varð
litli fingur undir og úr varð opið
beinbrot. Ákveðið var að rifta
samningi við
leikmanninn
vegna þessa.
Óhætt er að
segja að tíðar
uppákomur
varðandi meiðsli
innan ÍR-liðsins
hafi sett strik í
reikninginn.
Sveinbjörn Cla-
essen er frá út
tímabilið og James Bartolotta nef-
brotnaði ansi illa eftir samstuð í
leik gegn Grindavík.
Í stað Johnsons er væntanlegur
til landsins bakvörðurinn Robert
Jarvis. Hann þekkir nokkuð vel til
ÍR því að hann lék með liðinu síð-
ustu sex leikina tímabilið 2009-
2010. Robert lék í Ungverjalandi
síðastliðið tímabil, í þeirru sterku
deild við góðan orðstír og veitir
Gunnari Sverrissyni þjálfara ekki
af liðstyrk í ljósi þess sem á undan
er gengið.
Netmiðillinn Sport.is greindi frá
þessu. sport@mbl.is
Breytingar hjá ÍR-ingum í körfuboltanum
Gunnar
Sverrisson
Griðungar úr Mosfellsbænum urðu
um helgina Íslandsmeistarar í and-
spyrnu – eða áströlskum fótbolta.
Griðungarnir lögðu Gammana í loka-
leik Forsetadeildarinnar og var um
hreinan útslitaleik að ræða um Ís-
landsmeistaratitilinn, en liðin höfðu
unnið einn leik hvort í úrlsitarimm-
unni. Griðungar unnu fyrsta leik lið-
anna en Gammarnir svöruðu fyrir
sig með sigri í næsta leik.
Leikurinn, sem fram fór á HK-
vellinum í Fagralundi á laugardag-
inn, var gríðarlega jafn og mjög hart
barist, enda mikið í húfi. Gammarnir
voru betri í fyrri hálfleiknum og
voru sex stigum
yfir í leikhléi.
Þeim tókst ekki
að verja það for-
skot og Griðung-
arnir náðu að
sigra með fimm-
tán stiga mun,
80:65.
Guðjón Á.
Gústafsson átti
flottan leik í liði
Griðunga og gerði hann 20 stig fyrir
liðið og var maður leiksins. Hjá
Gömmunum var Jón Hjartar sterk-
ur en hann gerði einnig 20 stig.
Mosfellingar meistarar
Griðungur
fagnar.
ÍslendingaliðiðLevanger frá
Noregi féll úr leik
í 32 liða úrslitum
Evrópukeppni
bikarhafa í hand-
knattleik um
helgina. Lev-
anger, sem leikur
undir stjórn
Ágústs Jóhannssonar landsliðsþjálf-
ara, tapaði samtals með 19 mörkum
fyrir úkraínska liðinu Jolidon Cluj í
tveimur leikjum, 59:40, en báðir leik-
irnir voru í Úkraínu. Rakel Dögg
Bragadóttir skoraði 5 mörk í leikj-
unum og Nína Björk Arnfinnsdóttir
eitt.
Einar R. Eiðsson gerði tíu mörkfyrir Fram þegar liðið lagði B-
lið Vals í 16-liða úrslitum Eimskips-
bikars karla í handknattleik, en Fram
sigraði 40:24. Alls skoruðu 10 leik-
menn Fram í leiknum. Fannar Þor-
björnsson skoraði 9 fyrir Val.
Knattspyrnukappinn HeiðarHelguson var á meðal áhorf-
enda á formúlu 1-kappakstrinum í
Abu Dhabi um helgina í boði eiganda
QPR, Tonys Fernandes, sem er einn-
ig eigandi Lotus-liðsins. Heiðar, sem
hefur verið á skotskónum fyrir QPR
að undanförnu, var á kappakstrinum
ásamt liðsfélögum sínum Shaun
Wright-Phillips og Jay Bothroyd, og
stjóranum Neil Warnock, samkvæmt
frétt Press Associaton.
Fólk sport@mbl.is
SKYLMINGAR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Þetta var mjög góð helgi. Ég ætlaði mér að vinna
minn flokk, en svo bætti ég hinu bara við,“ sagði
Hilmar Örn Jónsson léttur í bragði en hann varð
um helgina Íslandsmeistari í þremur flokkum á Ís-
landsmeistaramótinu í skylmingum sem fram fór í
Baldurshaga í Laugardalnum. Hilmar Örn verður
17 ára í næsta mánuði og keppti því í flokki 17 ára
og yngri en einnig í flokki 20 ára og yngri og í opn-
um flokki – og vann þá alla. Þetta var í fyrsta sinn
sem hann vinnur opna flokkinn og ætla má að hann
sé yngstur til að ná þeim áfanga frá upphafi. Það
var þó ekki auðvelt.
„Í riðlakeppninni keppir maður í 5-6 bardögum
og svo tekur við útsláttarkeppni þar sem maður
þarf að vinna fjóra í viðbót. Það getur því allt gerst í
þessu,“ sagði Hilmar sem sá til þess að Íslands-
meistarabikarinn í karlaflokki yrði áfram í Hafn-
arfirði.
Bikarinn áfram í eigu FH-inga
„Ragnar Ingi Sigurðsson þjálfari hefur unnið
opna flokkinn síðustu 10-12 árin eða svo en núna
keppti hann ekki. Það hefði verið gaman að keppa
við hann en hann hefur sagt að hann muni ekki
hætta fyrr en það sé víst að við getum tekið við af
honum, svo að bikarinn verði áfram hjá FH,“ sagði
Hilmar sem hefur æft skylmingar í þónokkurn tíma
og þykir afar efnilegur. Hann vakti til að mynda
snemma athygli Nicolays Mateev landsliðsþjálfara
sem sjálfur hefur keppt á Ólympíuleikum.
„Ég byrjaði í þessu 2004. Þegar ég var lítill var
ég alltaf úti í garði að skylmast og svo vildi ég bara
prófa að æfa þetta. Það gekk svona vel þannig að
það kom ekkert til greina að hætta. Ég vann Ís-
landsmótið í byrjendaflokki og þá sagði Nicolay við
pabba minn að „þessi strákur gæti unnið allt sem
hann vildi.“ Ég fékk reyndar ekkert að vita það fyrr
en núna um daginn,“ sagði Hilmar Örn kíminn.
Hann hefur orðið Norðurlandameistari í sínum
flokki þrjú síðustu ár og hefur sett stefnuna á að
komast á Ólympíuleika. Hann hefur tekið þátt í
stórum alþjóðlegum mótum á borð við Evrópu-
meistaramót unglinga í Grikklandi og heimsmeist-
aramót unglinga sem fram fór á dögunum í Jórd-
aníu þar sem hann náði ágætis árangri. Hilmar fer
til Póllands um næstu helgi á heimsbikarmót. Ár-
angur á þeim mótum veitir keppendum stig á
heimslista en í U18-flokki segist Hilmar Örn vera í
37. sæti.
„Ég stefni á Ólympíuleika og vil auðvitað bara ná
eins langt og ég get í þessari íþrótt. Það er kannski
ekki hægt að komast á ÓL í London en þá alla vega
í Brasilíu 2016.“
Í kvennaflokki vann Guðrún Jóhannsdóttir úr
SFR sigur: „Ég vann mótið 2009 en hef líklega unn-
ið þetta fimm eða sex sinnum samtals. Ég er búin
að vera lengi í þessu og keppt hér heima og í alþjóð-
legum mótum frá því um aldamótin. Þetta mót hef-
ur verið að styrkjast síðustu ár en það var ekki
mjög fjölmennt í ár. Það er hins vegar sterkur
kjarni hérna og svo er ungt og afar efnilegt fólk að
koma upp,“ sgði Guðrún sem er 36 ára og vann sér
helmingi yngri andstæðing, Gunnhildi Garðars-
dóttur, í úrslitum.
„Gunnhildur er gríðarlega efnileg og sýndi góða
takta í gær, bæði með því að komast í úrslitaleikinn
og svo með frammistöðu sinni þar. Ég byrjaði samt
mjög vel þar og fannst aldrei spurning hvernig færi
þó að auðvitað hafi þetta ekki verið auðvelt,“ sagði
Guðrún.
Morgunblaðið/Kristinn
Einvígi Gunnhildur Garðarsdóttir og Guðrún Jóhannsdóttir eigast hér við í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn sem Guðrún vann.
„Getur unnið allt“
Sautján ára skylmingamaður, Hilmar Örn, Íslandsmeistari í þremur flokkum
Var alltaf úti í garði að skylmast Guðrún vann helmingi yngri andstæðing
Meistarar
» Guðrún Jóhannsdóttir úr Skylmingafélagi
Reykjavíkur varð Íslandsmeistari í opnum
flokki kvenna og Gunnhildur Garðarsdóttir,
SFR, í flokki 18-20 ára. Vigdís Hafliðadóttir
varð meistari í flokki 15-17 ára og Urður Eg-
ilsdóttir í flokki 13-14 ára en þær keppa
einnig fyrir SFR.
» Í karlaflokki varð Hilmar Örn Jónsson úr
FH meistari í þremur flokkum; U18, U20 og
opnum flokki, og Vincenxo Atli Ciullo úr SFR
meistari í flokki 13-14 ára.
Meistarar Gunnhildur, Hilmar og Guðrún unnu.
Fjórir leikir voru í Lengjubikar
karla í körfuknattleik um helgina.
Þór frá Þorlákshöfn lagði ÍR í
Seljaskólanum, Grindavík vann
KFÍ, Stjarnan hafði betur á móti
Tindastóli og Njarðvík vann Val.
ÍR var yfir í leihléi, 45:40, en
Þórsarar léku betur í síðari hálfleik
og unnu hann 54:41 og lokatölur
urðu því 86:94 fyrir Þór. Þar var
Govens með 20 stig en hjá ÍR var
Bartolotta með 23 stig.
Í Garðabænum vann Stjarnan lið
Tindastóls 102:80, en Stólarnir
voru 42:41 yfir í leikhléi. Starnan
gerði út um leikinn í síðasta leik-
hluta en hann endaði 36:16. Justin
Shouse var með 28 stig fyrir
Garðbæinga en hjá Tindastóli gerði
Svavar Birgisson 19 stig.
Grindvíkingar áttu ekki í miklum
erfiðleikum þegar þeir tóku á móti
KFÍ og unnu 103:87. Ísfirðingar
veittu þó verðuga mótspyrnu í fyrri
hálfleik en staðan í leikhléi var
52:47. Stigahæstir hjá Grindvík-
ingum voru Sigurður Þorsteinsson
og Watson en þeir gerðu 19 stig
hvor um sig. Hjá KFÍ var Schoen
með 23 stig.
Í Njarðvík fór Holmes á kostum
og gerði 45 stig þegar liðið lagði
Val 96:87. Staðan í leikhléi var
44:48 fyrir Val. Stigahæstur hjá
Hlíðarendaliðinu var Johnson með
28 stig. skuli@mbl.is
Holmes með 45
stig í Njarðvík