SunnudagsMogginn - 20.11.2011, Page 40
40 20. nóvember 2011
Lífsstíll
Jæja, þá fer að líða að því. Einmitt áþessum árstíma er kominn tími tilað bæta einu gati við í beltið ogfara að undirbúa magann undir
það sem koma skal. Talandi um það er
kannski ágætt að ætla sér í það minnsta
einn ávöxt á dag. Svona rétt á móti öllum
gúmmelaðis-veislumatnum. En höfum
ekki of miklar áhyggjur af því. Jólahlað-
borðin eru framundan með öllum sínum
kræsingum. Ó, namm, namm, sælkerinn
ég get bara ekki beðið. Heilt borð fullt af
góðum mat. Það er eiginlega of gott til að
vera satt. Plús að matinn borðar maður
með fjölskyldunni og góðum vinum. Það
gerir þetta allt saman ennþá betra og
kemur manni í notalega stemningu fyrir
jólin.
Það eru til alls konar reglur um hvernig
borða skuli af jólahlaðborði. Ég hef þær
oftast ekki í heiðri og er alger villingur
þegar kemur að slíkum nægtarborðum.
Borða bara meira af því sem mér finnst
best og fæ mér jafnvel smá af forréttinum
með aðalréttinum. Ég hef hingað til ekki
verið stoppuð af jólahlaðborðslöggunni
og vona að svo verði ekki úr þessu, enda
passa ég mig nú á aðalatriðunum. Eins og
því að hrúga of miklu á diskinn. Eða
blanda öllu saman algjörlega í einn haug.
Það er ekkert voðalega gott og þá finnur
maður ekki almennilega bragð af neinu.
Framundan hjá mér eru nú í það
minnsta ein fimm jólahlaðborð af ein-
hverju tagi og ég er strax farin að hlakka
til. Enda er alveg eins gott að njóta þess
bara að hafa það kósí og borða góðan
mat núna í skammdeginu. Fyrir utan
þetta á maður svo líka eftir að gera
jólaglögg og fá sér jólabjór jafnvel með
einhverjum kræsingum. Kannski
nokkrum piparkökum eða góðri kæfu og
sultu. Kræsingarnar eru sannarlega á
hverju strái á þessum árstíma og má
þakka fyrir að maður komi jólamatnum
niður eftir þetta allt saman. Það tekst þó
alltaf og sýnir vel og sannar að af því sem
gott er vill maður enn þá meira.
Maður hefði nú lítið á móti jafn fallegri og girnilegri köku á jólahlaðborðið, svona rétt til að fylla á magann að lokum.
Morgunblaðið/Ernir
Ég hef hingað til ekki verið
stoppuð af jólahlaðborðs-
löggunni og vona að svo
verði ekki úr þessu.Kræsingar á hverju strái
Lífið og
tilveran
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Þá er komið að tíma
jólahlaðborðana. Nú er
bara að stinga auka-
gat í beltið og taka
víða, þægilega kjólinn
út úr skápnum. Njótum
þess að vera til og
borða.
Ég drekk ekki mikið af bjór alla jafna en þó er ósköp gott að fá sér svalandi sopa þegar heitt er í
veðri. Enn betra, líkt og ég tileinkaði mér á bresku námsárunum, er að fá sér ískalt glas af shandy,
það er að segja bjór sem blandað er saman við límonaði. En á þessum árstíma kveður við nýjan tón í
bjórmenningunni. Honum fylgir jú blessaður jólabjórinn og mér finnst hann alls ekki slæmur. Það
fylgir því líka svo mikil stemning að fá sér einn danskan jólaöllara. Eða íslenskan, nóg er úrvalið.
Síðan ég bragðaði á fyrsta jólabjórnum af krana á knæpu í miðbænum hér um daginn hef ég verið í
jólaskapi. Kannski ekki alveg blússandi jólaskapi. Ekki þannig að ég ætli að setja upp tréð og
pakka inn gjöfunum. En samt þannig að ég hef vaknað með jólalag á heilanum eftir jólabjór kvöldinu
áður. Væru það ekki annars dásamlegar eftirstöðvar hefði maður fengið sér aðeins of mikið? Að
vakna bara hress en með Klukknahreim á heilanum og langa bara í malt og appelsín og piparkökur.
Það er skemmtilegt að sötra jólabjór í góðra vina hópi og jafnvel koma saman til að smakka
nokkrar tegundir. Að sjálfsögðu ber svo að drekka jólabjór í hófi rétt eins og annað áfengi og muna
að eftir einn ei aki neinn. En Forvarnarstúfur ætti nú ekki að þurfa að segja ykkur mikið um það.
Veitingamenn víða um bæ hafa nóg að gera við að skenkja jólabjór þessa dagana.
Morgunblaðið/Eggert
Með Klukknahreim í flösku
Jólagjafirnar þurfa ekki að vera
neinn hausverkur. Handa þeim
sem eiga flest getur verið mjög
sniðugt að gefa upplifun. Eitt-
hvað sem þú og besta vinkon-
an, kærastinn eða mamma og
pabbi getið notið saman. Þetta
gæti t.d. verið jólahlaðborð í há-
degi á aðventunni. Eða leik-
húsmiðar í janúar þegar ágætt
er að hafa eitthvað skemmti-
legt framundan í skammdeginu.
Heimagerður „brunch“ með alls
konar góðgæti og jafnvel ein-
hverju freyðandi í glasi er líka
tilvalið. Svo eru ýmsar tilboðs-
síður með góð tilboð á hót-
elgistingu víða um landið. Það
gerist nú varla mikið meira kósí
en að eiga svoleiðis til að nota
í vetrarríkinu eftir jólin. Loks er
nóg af jólatónleikum framundan
og sniðugt að nota aðventuna
til að skreppa saman á eina
slíka. Hugmyndirnar eru enda-
lausar og margt skemmtilegt í
boði. Það þarf bara stundum að
leggja höfuðið aðeins í bleyti.
Einhver upplifun á aðventunni
og svo kannski eitthvað hefð-
bundið eins og góð bók undir
jólatréð. Það ætti varla að geta
klikkað og þá reddast allt. Þó
það verði ekki fyrr en klukkuna
vantar korter í jól.
Kósí í pakkann