Morgunblaðið - 24.12.2011, Page 4
HANDBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Það vill nú svo til að þótt það sé gríð-
arlegur missir að Ólafi Stefánssyni
fyrir landsliðið – enda frábær leik-
maður – þá er þetta sú staða sem
landsliðið er hvað best mannað í, það
er skyttustaðan hægra megin. Þar
erum við ekki á flæðiskeri staddir,“
segir Guðmundur Þórður Guð-
mundsson, landsliðsþjálfari í hand-
knattleik, sem verður að laga ís-
lenska landsliðið að þeirri staðreynd
að Ólafur Stefánsson leikur ekki með
því í lokakeppni Evrópumótsins sem
fram fer í Serbíu 15.-29. janúar.
„Við munum nýta þá kosti sem
höfum í þessari stöðu. Alexander
Petersson kemur inn af fullum krafti
og síðan hefur Rúnar Kárason átt á
tíðum mjög góða leiki með liði sínu
Bergischer HC í þýsku 1. deildinni.
Þessir tveir leikmenn munu spila
þessa stöðu á EM,“ segir Guð-
mundur Þórður.
Fannar hefur leikið vel
Athygli vekur að Fannar Þór Frið-
geirsson, leikmaður hjá TV Ems-
detten í þýsku 2. deildinni, er í leik-
mannahópnum sem telur 21 mann
sem Guðmundur valdi í fyrradag og
mun taka þátt í undirbúningi lands-
liðsins þegar hann hefst 2. janúar.
Fannar Þór á að baki þrjá A-lands-
leiki.
„Fannar Þór hefur leikið afar vel
með TV Emsdetten í vetur. Ég hef
fylgst með honum, bæði leynt og
ljóst. Fannar hefur verið atkvæða-
mikill í leik liðsins, jafnt í vörn sem
sókn. Þar af leiðandi finnst mér rétt
að kalla hann inn og láta hann
spreyta sig.
Það er meðal kostanna við að búa í
Þýskalandi og þjálfa að maður er í
mikilli nálægð við leikmenn og ég á
mjög auðvelt með að fylgjast með og
fá upptökur af leikjum allra þeirra
sem spila hérna ytra. Meðal þeirra er
Fannar og hann hefur vakið athygli
mína.
Þá er Arnór Þór Gunnarsson einn-
ig í hópnum. Hann leikur einnig með
liði í 2. deildinni. Arnór hefur áður
verið í hópnum, m.a. í leikjunum í
undankeppni EM í vor. Hann hefur
leikið mjög vel með Bittenfeld og
skorað mörg mörk, m.a. tólf mörk í
leik í vikunni. Arnór hefur verið mjög
vaxandi á síðustu mánuðum og því
engin ástæða til annars en hafa hann í
hópnum.
Viljum stækka hópinn
Markmiðið með valinu á Arnóri og
Fannari er m.a. það að reyna að
stækka þann hóp leikmanna sem við
höfum úr að velja og geta verið sam-
keppnishæfir með landsliðinu,“ segir
Guðmundur Þórður og bætir við að
það sé sérstakt ánægjuefni hversu
vel margir landsliðsmenn hafa leikið
með félagsliðum sínum í vetur.
„Kári hefur átt mjög góða leiki með
Wetzlar, ekki síst núna í vikunni.
Sömu sögu má segja um Róbert
Gunnarsson. Hann lék t.d. vel í gær
með Löwen gegn Hüttenberg,“ segir
Guðmundur, sem er einnig þjálfari
Löwen. Hann segir það ekki rétt að
Róbert hafi ekki spilað mikið með Lö-
wen á yfirstandandi keppnistímabili.
Róbert spilað meira en í fyrra
„Róbert hefur spilað einna mest af
öllum leikmönnum Löwen-liðsins.
Hann var einn allt undirbúnings-
tímabilið og tók þátt í öllum leikjum
liðsins þá mánuði sem Bjarte Myhol
var fjarverandi vegna veikinda. Eftir
að Myrhol kom til hefur hann leikið
meira en Róbert í nokkrum deilda-
leikjum. Þeir skiptu til að mynda
tveimur leikjum í Evrópukeppninni á
milli sín, eins fékk Róbert hálfan leik
á móti Gummersbach. Það eru í
rauninni bara viðureignin við Flens-
burg um síðustu helgi og bikarleik-
urinn við Hamburg í síðustu viku
sem Róbert hefur ekki tekið þátt í.
Hann hefur í raun og veru leikið
miklu meira með Löwen í ár en í
fyrra, svo því sé haldið til haga. Sú
staðreynd er jákvæð,“ segir Guð-
mundur Þórður Guðmundsson lands-
liðsþjálfari.
Fínn undirbúningur
Íslenska landsliðið kemur saman
til æfinga 2. janúar. Það tekur síðan
þátt í móti í Danmörku 5., 6. og 7.
janúar þar sem leikið verður við Pól-
verja, Slóvena og Dani. Að því loknu
kemur það til Íslands á ný og æfir
saman þangað til það heldur til Serb-
íu 14. janúar. Daginn áður mætir Ís-
land Finnlandi í vináttulandsleik í
Laugardalshöll.
„Ég er mjög ánægður að fá leikinn
við Finna hér heima daginn áður en
við höldum til Serbíu. Ég sé ekki
fram á annað en að undirbúningurinn
verði eins og vil hafa hann,“ segir
Guðmundur Þórður Guðmundsson,
landsliðsþjálfari í handknattleik.
„Við erum ekki á
flæðiskeri staddir“
Morgunblaðið/Golli
Undirbúningur Guðmundur Þ. Guðmundsson verður með landsliðið í tvær
vikur áður en það spilar fyrsta leikinn á EM í Serbíu 16. janúar.
Guðmundur Þ. Guðmundsson telur landsliðið vel í stakk
búið til að takast á við fjarveru Ólafs Stefánssonar á EM í
Serbíu Mjög ánægður með dagskrá liðsins fyrir mótið
KÖRFUBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Hildur Björg Kjartansdóttir, 17 ára
körfuknattleikskona úr Stykk-
ishólmi, var á dögunum valin í
fyrsta A-landsliðshóp Sverris Þórs
Sverrissonar, nýráðins landsliðs-
þjálfara. Hildur hefur leikið bæði
með U-17 ára og U-19 ára landslið-
unum og hefur látið til sín taka með
Snæfelli í Iceland Express-deildinni
í vetur.
„Þetta kom mér svolítið á óvart
þar sem ég er frekar ung miðað við
það sem gengur og gerist hjá A-
landsliðinu. Ég var í 18 ára landslið-
inu í fyrra og þar áður í 16 ára
landsliðinu,“ sagði Hildur þegar
Morgunblaðið tók hana tali.
Vel fylgst með í Hólminum
Hildur hóf að æfa körfuknattleik í
Hólminum níu ára gömul og segir
að í bænum sé íþróttin í hávegum
höfð enda er bæjarfélagið með sterk
lið í efstu deild hjá báðum kynjum.
„Þetta er aðalíþróttin í bænum og
flestir sem fara í íþróttir fara í körf-
una en það er misjafnt hversu
margir halda áfram upp í meist-
araflokk. Á mínum aldri eru ekki
margar stelpur í körfunni og svolítið
langt í þá næstu. Það fylgjast hins
vegar allir vel með og eru spenntir
fyrir þessu. Það er auðvitað mjög
gaman að því,“ sagði Hildur en hún
leikur alla jafna í annarri hvorri
framherjastöðunni og hefur skilað
11 stigum að meðaltali í leik og átta
fráköstum að meðaltali.
Úrslitakeppnin er markmiðið
Hildur segir lið Snæfells hafa sett
stefnuna á að komast í úrslitakeppn-
ina á þessari leiktíð. Liðið er sem
stendur í 3.-5. sæti deildarinnar með
jafnmörg stig og KR og Haukar.
Snæfell hefur unnið sögulega sigra
síðustu vikurnar og bæði lagt Ís-
landsmeistara Keflavíkur og KR að
velli í fyrsta skipti á Íslandsmóti.
„Okkur hefur gengið vel upp á
síðkastið og það er allt að smella
saman hjá okkur. Við fórum sáttar
inn í jólafríið en ætlum okkur að
komast enn ofar eftir fríið og vera á
meðal fjögurra efstu. Fyrir tímabil-
ið settum við okkur það markmið að
vera með í úrslitakeppninni,“ sagði
Hildur ennfremur og sagði sigrana
á móti KR og Keflavík hafa gefið
leikmönnum mikið sjálfstraust.
Fullt hús á heimavelli
Snæfell hefur sýnt mikinn styrk á
heimavelli í vetur og á það við um
bæði kvenna- og karlaliðið. Hildur
sér hins vegar eftir nokkrum stig-
um sem ekki náðust á útivöllum.
„Mér finnst þetta vera allt að
koma. Við höfum unnið alla leikina á
heimavelli en þurfum að vera betri
á útivöllum eftir áramót. Við spil-
uðum útileiki sem við hefðum viljað
vinna og þá væri staða okkar betri
en við lögum það bara eftir ára-
mót,“ sagði Hildur í samtali við
Morgunblaðið.
„Þetta er aðal-
íþróttin í bænum“
Morgunblaðið/Golli
Sautján Hildur Björg Kjartansdóttir hefur vakið mikla athygli í leikjum
Snæfells og tekið allt að 14 fráköst í leik. Hún er aðeins 17 ára gömul.
Kvennalið Snæfells á mikilli uppleið Hildur valin í lands-
liðshóp 17 ára gömul Leikur stórt hlutverk hjá Snæfelli
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2011