Morgunblaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 4
4 finnur.is 29. desember 2011 Bondleikarinn er töff í tauinu Reuters Craig klikkar ekki á stílnum Svalheitin uppmáluð á frumsýningu cowboys and Aliens. Fráhnepptur en sparilegur með klút- inn á sínum stað. Lágstemmdur frágangur á vasaklút hentar vel á móti háls- bindi. Jakki eða jakka- peysa - svona á bindishnútur að líta út. Óaðfinnanlega til fara á frum- sýningu The Girl With the Dragon Tattoo. Breski leikarinn Daniel Craig er þekktur fyrir að vera með best klæddu mönnum í leikarastétt- inni. Það þýðir heldur ekki að vera eins og lufsa til fara þegar þekktasta rullan er sjálfur James Bond, jafn-best klæddi karakter kvikmyndasögunnar. Craig má telja til tekna að stíll hans er alla jafna klassískur og lágstemmdur, og einna mest er um vert að hann hugar að smáatriðunum. Ekki svo að skilja að hann gangi með bindi hvenær sem til hans sést á al- mannafæri, en með því að lauma klút í brjóstvasann á jakkanum gerir hann heildarsvipinn spari- legri og flottari. En þegar hann hnýtir á sig slifsi gerir hann það vel. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum gætir hann þess í hví- vetna að herða hnútinn svo klauf myndast rétt neðan við hnútinn. Faglegt í alla staði. Af Craig er það annars að frétta að hann er á fullu við tökur á nýjustu Bond- myndinni, Skyfall, sem verður frumsýnd í nóvember 2012. jonagnar@mbl.is Enginn afsláttur gefinn af vel hnýttum hnút þó bindið sé mjótt. Baggalúturinn, textasmiðurinn og tónlist- armaðurinn Bragi Valdimar Skúlason er alla jafna upptekinn maður, og þó sjaldan sem í desember. Þrátt fyrir annríki, og óvelkomna pest sem bankaði upp á kortér í jól, gaf hann sér tíma til að deila með Finni viku í annasömu lífi sínu. Mánudagur Eyddi drýgstum hluta dags- ins í æfingar og undirbúning fyrir ára- mótaþátt Hljómskálans, í Hljóðrita í Hafn- arfirði. Þar var góðmennt með afbrigðum. Snuðraði eftir vísdómsritum og hljóm- diskum Baggalúts og tengdra aðila í völd- um útmokunarverslunum. Þriðjudagur Sauð saman nokkrar lau- fléttar og hugheilar hátíðarauglýsingar í vinnunni. Afrekaði að draga inn glæsilegt, nýmyrt blágreni. Sagaði það til og kom í fót. Endaði svo daginn í æsispennandi kvöldbadmintoni með vinnufélögum. Miðvikudagur Vaknaði nær ógangfær af óvelkominni pestarbrælu. Sofnaði aftur. Skreiddist svo á lappir og dreif mig í upptökur á Hljómskálanum, þáði parkódín af tenórnum miskunnsama Guðmundi Pálssyni og misholl læknisráð frá Megasi. Fimmtudagur Hélt kyrru fyrir heima við. Var þó til nokkurs gagns við jólakortaskrif, kökubakstur og almenn heimilisstörf. Föstudagur Fór í hressandi skötuveislu og gæddi mér á gráthvetjandi lostæti af stærðar fati. Upgötvaði að svo búnu að jólin voru að koma, mér til allnokkurrar skelfingar. Þreif mig því og hélt á veiðar. Lauk keppni í jólakapphlaupinu á per- sónulegu meti, pakkaði inn síðasta góss- inu og stimplaði mig formlega út úr öllu, sem ekki tengdist beinlínis mat og/eða nánustu fjölskyldumeðlimum. Laugardagur Fékk hárauðar hárspennur í skóinn. Las í Mogganum að mitt trúvana sjálf væri orðið sálmaskáld. Eyddi deginum við teikni- myndagláp, sparifataval og að kenna yngsta fjölskyldu- meðlimnum að segja frekar ’pabbi’ en ’mamma’, án árang- urs. Já og svo át ég glás og þáði gjafir, skilst mér. Kvöldið er allt í einni sósu- og rjóma- móðu. Sunnu- dagur Gerði ýmislegt, maklegt og merkilegt – sem kemur ykk- ur bara ekki við. jonagnar@mbl.is VIKA Í LÍFI BRAGA VALDIMARS SKÚLASONAR Skötuveisla og pestarbræla ’F́ór í hressandi skötuveislu og gæddi mér á gráthvetj- andi lostæti af stærðar fati. ’.́ Afrekaði að draga inn glæsilegt, ný- myrt blágreni. Sagaði það til og kom í fót. Morgunblaðið/RAX Það hefur hingað til ekki vafist fyrir Meryl Streep að bregða sér í allra kvikinda líki krefjist kvikmynda- hlutverk þess, og nú hefur hún enn á ný leikið þann leik. Í myndinni Járnfrúin (The Iron Lady) fer hún með titilhlutverkið og leiku sjálfa Margaret Thatcher, fyrrum forsætisráðherra Bretlands. Ekki er að sök- um að spyrja, gagnrýnendur halda ekki vatni og haft hefur verið á orði og spara megi tíma og fyrir höfn með því að merkja henni Óskarsverðlaunin fyrir bestu leikkonu í aðalhlutverki þegar í stað – ógern- ingur sé að einhver önnur skáki henni í hlutverki Thatcher. Nú þegar hefur hún hlotið verðlaun kvik- myndagagnrýnenda í New York (New York Film Cri- tics Circle Awards) og þau eru býsna góð vísbending um val Óskars frænda snemma næsta vor. Streep er ein virtasta leikkona samtímans og næg- ir í því sambandi að benda á að hún á metið í fjölda tilnefninga til Óskarsverðlauna, fyrr og síðar. Alls hefur hún verið tilnefnd sextán sinnum, þrettán sinn- um fyrir aðalhlutverk og þrisvar fyrir aukahlutverk. Tvisvar hefur hún hreppt styttuna, fyrir Kramer vs. Kramer (1980) og Sophie’s Choice (1982). Samskon- ar met á hún á Golden Globe-verðlaununum, en á þeim bæ hefur hún verið tilnefnd 25 sinnum alls. Eins og sjá má á myndinni er Streep glettilega lík Thatcher í myndinni og ef marka má gagnrýnendur vestra gefur það tóninn fyrir frammistöðuna. Járnfrúin verður frumsýnd í Laugarásbíói hinn 13. janúar 2012. jonagnar@mbl.is Meryl Streep er Margaret Thatcher Járnfrúin snýr aftur Reuters Vart má sjá hvor er hin rétta Járnfrú. Meryl Streep er til hægri á myndinni, Thatcher til vinstri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.