Morgunblaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2012
FYRIR HEIM
ILIÐ!
ÓDÝRT
– fyrst og
fremst
ódýr!
Loðnufrysting
hafin í Eyjum
Loðnan er fryst og einnig brædd
Loðnufrysting hófst hjá Vinnslu-
stöðinni í Vestmannaeyjum í gær. Þá
landaði Kap VE-4 um 800 tonnum af
fallegri loðnu sem fékkst út af Jök-
ulsá á Breiðamerkursandi. Í morgun
var von á Sighvati Bjarnasyni VE-81
með svipaðan skammt.
„Þetta er fín loðna og stærðin er
fín,“ sagði Sindri Viðarsson, sviðs-
stjóri uppsjávarsviðs hjá Vinnslu-
stöðinni.
Hann sagði að um 40 hængar
væru í kílói eða um 50 hrygnur.
Hrognafylling er nú um 14% en hún
þarf að fara yfir 20% og hrognin að
þroskast betur áður en hrogna-
vinnsla getur hafist. Sindri sagði að
venjulega hæfist hrognavinnsla 20.
til 25. febrúar ár hvert. Hluti aflans
fer nú í heilfrystingu fyrir markaði í
Austur-Evrópu. Einnig er keyrt á
fullu við vinnslu á mjöli og lýsi.
Sindri sagði að markaðsaðstæður
hefðu verið erfiðar fyrir frysta loðnu.
Unnið er á tólf tíma vöktum, nótt
og dag, við loðnufrystinguna hjá
Vinnslustöðinni. Sindri sagði að
rúmlega 30 manns væru á hvorri
vakt. Þá er líka verið að vinna bol-
fisk, bæði verið að frysta og salta.
Loðnan gengur nú vestur með
suðurströndinni. „Hún er að þétta
sig og hrognafyllingin eykst,“ sagði
Sindri. gudni@mbl.is
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
Vertíð Loðnufrysting hófst í Vinnslustöðinni í gær. Unnið er allan sólar-
hringinn á vöktum. Rúmlega 30 manns eru á hvorri 12 tíma vaktinni.
Hlýtt hefur verið víða á landinu það
sem af er febrúar. Á öðrum tímanum
í fyrrinótt fór hitinn í 14,8 stig á
Teigarhorni við Berufjörð, sem er
nýtt hitamet í febrúar á þessari forn-
frægu veðurstöð, að því er Sigurður
Þór Guðjónsson skrifar í bloggi sínu
(nimbus.blog.is). Þá fór hitinn í 14,1
stig á Fáskrúðsfirði og 13,6 stig í
Grundarfirði. Veðurstofan spáir
kólnandi veðri þegar líður á daginn
og frosti um allt land síðar í vikunni.
Meðalhitinn í Reykjavík fyrstu 14
daga febrúar er 3,4 stig sem er 3,8
stigum yfir meðallagi þegar horft er
til síðustu 60 ára. Meðalhiti á Ak-
ureyri sömu daga er 4,0 stig og 6,4
stigum fyrir ofan meðallag þar í bæ.
Trausti Jónsson veðurfræðingur
sagði að fyrri hluti febrúar 1956 og
1959 á Akureyri hefði verið ámóta og
nú. Spáð er kólnandi veðri í bili og
eftir er að sjá hversu langt meðalhit-
inn hrapar á næstu dögum. Þegar
litið er til meðalhita fyrstu 14 daga
febrúar í Reykjavík undanfarin 60
ár hefur það líklega gerst fjórum
sinnum að meðalhiti hafi verið meiri
en nú. Að sögn Trausta var fyrri
helmingur febrúar 1986, 1965, 1991
og 1959 lítillega hlýrri en nú. Ár-
unum er raðað í hlýindaröð. Trausti
sagði að ekki munaði miklu, febrúar
1986, 1991 og 1959 hröpuðu allir
talsvert eftir miðjan mánuð, en 1965
hélt sínu striki til mánaðamóta og er
næsthlýjasti febrúar allra tíma í
Reykjavík, aðeins febrúar 1932 var
hlýrri.
Trausti sagði niðurstöður svona
samanburðar markast af því tímabili
sem valið er. Það geti vel verið að
finna megi önnur jafn löng tímabil á
sama árstíma sem gefi svipaða nið-
urstöðu og þeir dagar sem nú voru
skoðaðir. gudni@mbl.is
Hitamet fyrir austan
Spáð kólnandi veðri eftir hlýja febrúardaga Meðalhiti
á Akureyri 6,4 stigum ofan meðallags fyrri hluta febrúar
Morgunblaðið/RAX
Hlýindi Fyrri hluti febrúar hefur
verið með hlýrra móti víða um land.
Unnið er að und-
irbúningi samein-
ingar leikskólans
á Laugarvatni við
Grunnskóla Blá-
skógabyggðar.
Sameiningin tek-
ur gildi við byrjun
næsta skólaárs.
„Markmiðið er að
efla skólastarfið
fremur en að
spara. Við höfum gætt þess hér að
draga ekki úr þjónustu á samdráttar-
tímum,“ segir Drífa Kristjánsdóttir,
oddviti Bláskógabyggðar, um breyt-
ingarnar.
Þær voru ákveðnar að undan-
gengnum umræðum á skólaþingi og
skoðun málsins í vinnuhópi.
Leikskólinn og grunnskólinn eru
báðir litlar einingar sem reknar eru
undir sama þaki. Þótti ávinningur í að
sameina þá. Einn stjórnandi verður
yfir skólanum en Drífa segir hug-
myndina ekki síður að nýta krafta
leikskólakennara við kennslu yngstu
barnanna í grunnskóladeildinni.
Bláskógabyggð rekur einnig
grunnskóladeild og leikskóla í Reyk-
holti. Þ-listinn sem er í minnihluta vill
ganga lengra og sameina alla leik-
skóla og grunnskóla sveitarfélagsins í
eina öfluga skólastofnun. Drífa segir
að unglingarnir úr grunnskólanum á
Laugarvatni séu hluta úr tveimur
dögum í Reykholti og til greina komi
að auka samkennslu en ákveðið hafi
verið að hafa áfram heildstætt skóla-
starf á báðum stöðum.
Leikskóli
saman við
grunnskóla
Drífa
Kristjánsdóttir
Tvær skóladeildir
„Það er stefna okkar að bjóða við-
skiptavinum okkar upp á samkeppn-
ishæft verð. Þess vegna lækkuðum
við aftur – en þörfin er enn til stað-
ar,“ segir Samúel Guðmundsson,
framkvæmdastjóri vörustýringar-
sviðs Olís.
Fyrirtækið hækkaði verð á bens-
íni um þrjár krónur í fyrradag og
dísilolíu um tvær krónur vegna
hækkunar olíuverðs á heimsmarkaði
og gengisþróunar. Hin olíufélögin
fylgdu ekki og því lækkaði Olís verð-
ið aftur í gær.
Bensínlítrinn kostar nú 250,40 kr.
hjá Skeljungi en 248,60 kr. hjá N1 og
Olís. Lægsta verðið er hjá Orkunni,
248,30 kr. Algengt verð á dísilolíu er
256,10 kr. helgi@mbl.is
Lækkuðu
bensínið aftur
Fundur strandríkjanna og Rússlands um skiptingu makrílkvótans gæti
staðið út vikuna. Ríkin hafa fundað í vetur án þess að samkomulag
hafi náðst og er talið að lokatækifærið til að ná samkomulagi um mak-
rílveiðar þessa árs sé á fundinum sem hófst í Reykjavík í gær. Al-
þjóðahafrannsóknaráðið lagði til 646 þúsund tonna heildarafla á síð-
asta ári. Strandríkin settu sér einhliða kvóta og voru veidd samtals
900 þúsund tonn. Kvóti Íslands var tæplega 147 þúsund tonn sem sam-
svarar 16% af samanlögðum kvóta ríkjanna. Hann skilaði um 25 millj-
örðum í útflutningstekjur. Upphafskvóti Íslands í ár er svipaður og
kvótinn í fyrra. Strandríkin eru Ísland, ESB, Noregur og Færeyjar.
Fulltrúar Íslands eru við borðsendann fjær, frá hægri: Friðrik J. Arn-
grímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, Jóhann Guðmundsson, skrif-
stofustjóri í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, Tómas H. Heið-
ar sem er aðalsamningamaður Íslands og Jóhann Sigurjónsson,
forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar. Við hlið Jóhanns er Galovanov,
áheyrnarfulltrúi Rússlands.
Lokatækifærið til að semja um makrílkvótann
Morgunblaðið/Árni Sæberg