Morgunblaðið - 28.02.2012, Blaðsíða 2
SKÍÐAGANGA
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Akureyringurinn Brynjar Leó Krist-
insson, hefur tekið miklum framförum
í skíðagöngu á undanförnum misserum
og virðist eiga ágæta möguleika á því
að vinna sig inn á Vetrarólympíuleik-
ana í Rússlandi árið 2014.
Brynjar hefur lokið keppni á FIS-
mótaröð í Svíþjóð og Noregi og gerði
það með glæsibrag. Á Sverigecupen í
U
1
n
a
in
sé
ja
þ
Þ
ar
h
n
Brynjar u
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2012
Anna María Baldursdóttir, 17 ára
stúlka úr Stjörnunni í Garðabæ, hef-
ur verið kölluð inn í A-landslið
kvenna í knattspyrnu fyrir Algarve-
bikarinn sem hefst í Portúgal á
morgun. Anna María kemur í hópinn
fyrir Sif Atladóttur, leikmann
Kristianstad í Svíþjóð, sem þurfti að
draga sig út úr landsliðshópnum
vegna meiðsla.
Þrátt fyrir ungan aldur lék Anna
María talsvert hlutverk í Íslands-
meistaraliði Stjörnunnar síðasta
sumar og á að baki 27 leiki með því í
efstu deild. Þá hefur hún spilað 16
leiki með yngri landsliðum Íslands
og var í U17 ára liðinu sem komst
alla leið í undanúrslit Evrópukeppn-
innar á síðasta ári. Hún átti einmitt
að fara með U19 ára landsliðinu til
La Manga á Spáni í næsta mánuði.
Vegna Algarve-ferðarinnar fer Anna
ekki í þá ferð og Sandra María Jes-
sen úr Þór var valin í U19 ára liðið í
hennar stað.
Ísland mætir Þýskalandi í fyrsta
leiknum á Algarve-mótinu á morg-
un. Á föstudaginn leikur Ísland á
móti Svíþjóð og gegn Kína næst-
komandi mánudag. Á miðvikudaginn
í næstu viku verður síðan spilað um
endanleg sæti á mótinu en Ísland
fékk silfurverðlaunin í fyrra eftir tap
fyrir Bandaríkjunum í úrslitaleik og
sigraði bæði Svíþjóð og Danmörku í
fyrsta skipti. vs@mbl.is
Sautján ára nýliði fór með til Algarve
Anna María Baldursdóttir.
KÖRFUBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummi@mbl.is
Ísfirðingar spila í deild þeirra bestu á ný í körfu-
bolta karla á næstu leiktíð en lið KFÍ tryggði sér á
dögunum sæti í Iceland Express-deildinni. Liðið
hefur haft umtalsverða yfirburði í 1. deildinni í vetur
og hefur þegar tryggt sér sigur í deildinni, unnið 16
af 17 leikjum sínum í vetur og fær bikarinn afhentan
á heimavelli sínum 9. mars en þá tekur KFÍ á móti
Skallagrími í lokaumferðinni.
Pétur Már Sigurðsson er þjálfari Ísafjarðarliðs-
ins en hann gerði tveggja ára samning við liðið síð-
astliðið sumar og undir hans stjórn hefur KFÍ-liðið
staðið sig virkilega vel. Það komst í undanúrslit í
bikarkeppninni, þar sem liðið tapaði fyrir nýkrýnd-
um bikarmeisturum Keflvíkinga, og er með 10 stiga
forskot á næsta lið í deildinni en KFÍ féll úr úrvals-
deildinni á síðustu leiktíð.
„Við settum okkur það takmark að vinna deildina
og komast aftur upp í úrvalsdeildina. Það tókst og
við erum að vonum mjög ánægðir og með tímabilið í
heildina. Við lentum í öðru sæti í okkar riðli í
Lengjubikarnum og fórum svo alla leið í undanúrslit
í bikarkeppninni,“ sagði Pétur Már Sigurðsson,
þjálfari KFÍ, við Morgunblaðið. Hann er öllum
hnútum kunnugur hjá KFÍ en hann lék með liðinu í
sex ár, síðast árið 2005.
Margar hendur vinna gott starf
Hverju þakkar þú þennan góða árangur á tíma-
bilinu?
„Fyrst og fremst eiga leikmenn mínir skilið mjög
mikið hrós. Þeir hafa lagt á sig gríðarlega mikla
vinnu. Þegar ég tók að mér þjálfun liðsins síðastliðið
sumar gerði ég leikmönnum grein fyrir því að þeir
yrðu að æfa mjög mikið og það gerðu þeir svo sann-
arlega. Stjórnin hefur líka unnið geysilega gott starf
og á bakvið hana eru góðir menn. Það er margt gott
fólk sem kemur að þessu og allur þessi hópur hefur
verið mjög samhentur. Margar hendur vinna gott
verk,“ sagði Pétur Már.
Útlendingarnir góð fyrirmynd
Ísfirðingar hafa í sínum röðum þrjá útlendinga,
Bandaríkjamennina Christopher Miller-Williams og
Craig Schoen, og Bosníumanninn Edin Suljic og
hafa þeir reynst liðinu ákaflega vel að sögn Péturs.
„Bandaríkjamennirnir eru atvinnumenn og fá
borgað fyrir að spila með okkur en Bosníumaðurinn
vinnur í fiski hér fyrir vestan. Bandaríkjamennirnir
eru líka að vinna með spilamennskunni enda lagði
ég ríka áherslu að þeir gerðu það í stað þess að
hanga heima allan daginn. Útlendingarnir hafa
reynst okkur mjög vel. Þeir eru duglegir, mjög
dagsfarsprúðir og ná mjög vel til okkar ungu leik-
manna. Þeir eru lausir við allan hroka og hafa bara
fallið frábærlega inn í þennan hóp. Þeir eru góð fyr-
irmynd fyrir ungu strákana og við munum reyna að
halda þeim hjá okkur. Stefnan er að reyna að halda
nær öllum leikmönnum og fá einn til tvo leikmenn til
viðbótar fyrir baráttuna í úrvalsdeildinni á næsta
tímabili,“ sagði Pétur Már.
Förum hægt upp metorðastigann
Það hefur verið töluverð körfuboltahefð á Ísafirði
og áhuginn á íþróttinni fyrir vestan hefur verið til
staðar. KFÍ-liðið féll úr úrvalsdeildinni í fyrra en nú
stefna Ísfirðingar á að festa sig í sessi meðal þeirra
bestu.
„Við erum að byggja upp lið og vitum að það tek-
ur tíma. Við förum hægt upp metorðastigann. Það
er búið að ganga vel í vetur en við vitum að það
verður erfitt á næsta tímabili. Menn þurfa bara að
gíra sig upp í það og leggja aðeins meiri vinnu á sig.
Það er efniviður til staðar hjá okkur en stefnan hjá
okkur er að reyna að fjölga iðkendum. Við þurfum
að halda vel utan um yngri flokka starfið,“ sagði
Pétur en auk þess að þjálfa meistaraflokk karla
þjálfar hann meistaraflokk kvenna og yngri flokka
félagsins.
Eigum heima í úrvalsdeildinni
Pétur segir að mætingin á leikina í „Ísjakanum“
hafi verið í minna lagi til að byrja með en áhugi fólks
á liðinu hafi aukist þegar liðið hafi á veturinn.
„Ég trúi ekki öðru en að við fyllum húsið í síðasta
leiknum sem verður á móti Skallagrími. Það er mik-
ilvægt að undirbúningurinn fyrir næsta tímabil hefj-
ist með þessum leik og fólk viti hvað sé í vændum.
Það verður hátíð í lokaleiknum og ég hvet alla til að
koma og fagna með okkur. Það er mikill hugur í
okkur og það er mikil tilhlökkun fyrir næsta tímabil.
Það eru margir ungir sprækir strákar í liðinu sem fá
eldskírn í úrvalsdeildinni næsta vetur. Við sáum það
í vetur að við eigum heima í úrvalsdeildinni. Við höf-
um unnið mörg af úrvalsdeildarliðunum í vetur og ef
við getum styrkt liðið með einum til tveimur mönn-
um þá verðum við í fínum málum. Það verður æft
stíft í vor og sumar,“ sagði Pétur Már.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lykilmaður Craig Schoen hefur verið í stóru hlutverki hjá Ísfirðingum í vetur en hann hefur skorað 17,2
stig og átt 7,4 stoðsendingar að meðaltali í leikjum KFÍ. Hann á flestar stoðsendingar allra í 1. deildinni.
„Leikmenn mínir hafa lagt
á sig gríðarlega vinnu“
Ísfirðingar komnir í úrvalsdeildina í körfubolta á ný Yfirburðir í 1. deildinni
Pétur Már Sigurðsson þjálfari ánægður með liðið og starfið í kringum það
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Liðsauki Bosníumaðurinn Edin Suljic vinnur í fiski
á Ísafirði og spilar körfubolta með KFÍ.
Helgi ValurDaníels-
son, sem var
fyrirliði íslenska
landsliðsins í
knattspyrnu þeg-
ar það mætti Jap-
an á föstudaginn,
meiddist í baki í
leiknum í Osaka
og spilaði ekki með liði sínu, AIK frá
Svíþjóð, í nótt þegar það mætir Chi-
vas USA í Portland í Bandaríkj-
unum. Helgi skýrði frá þessu á Twit-
ter í dag. Helgi fór beint frá Japan
til Bandaríkjanna og mætti þar í
gær, sólarhring á eftir samherjum
sínum, en þangað kom lið AIK á
laugardaginn. Þar búa Helgi og fé-
lagar sig undir keppnina í sænsku
úrvalsdeildinni sem hefst í lok mars.
Mahamadou Diarra, knatt-spyrnumaður frá Malí, er
genginn í raðir enska úrvalsdeild-
arliðsins Fulham. Samningur hans
við Lundúnaliðið gildir út tímabilið
með möguleika á framlengingu um
eitt ár. Diarra, sem er 30 ára gamall,
hefur leikið 74 landsleiki fyrir Malí
og hefur í þeim skorað 11 mörk.
Hann leikur í stöðu varnartengiliðs.
Diarra hóf feril sinn með gríska lið-
inu OFI. Hann hefur síðan leikið
með Vitesse í Hollandi, Lyon og
Mónakó í Frakklandi og Real Ma-
drid, sem hann lék með í fjögur ár.
Kyle Walkerbakvörður
úr liði Tottenham
hefur dregið sig
út úr enska lands-
liðshópnum í
knattspyrnu fyrir
vináttuleikinn
gegn Hollend-
ingum annað
kvöld. Walker varð fyrir hnjaski í
tapleik Tottenham gegn Arsenal á
sunnudag og er ekki leikfær. Þar
með hafa fjórir leikmenn helst úr
lestinni en þeir Wayne Rooney,
Tom Cleverley og Darren Bent boð-
uðu allir forföll um helgina.
Grétar Ólafur Hjartarson,markaskorarinn reyndi frá
Sandgerði, er kominn aftur á heima-
slóðir og leikur með Reyni í 2. deild-
inni í knattspyrnu í sumar. Grétar,
sem er 34 ára, lék með Keflavík á
síðasta ári en missti af stórum hluta
tímabilsins vegna meiðsla. Hann
hefur skorað 66 mörk í efstu deild,
fyrir Keflavík, Grindavík og KR, og
er sá 19. markahæsti í deildinni frá
upphafi. Grétar lék síðast með Reyni
fyrir 15 árum.
Þýski landsliðsmaðurinn í hand-knattleik, Oliver Roggisch,
segist gjarnan vilja framlengja
samning sinn við Rhein-Neckar Lö-
wen. Núverandi samningur hans við
félagið rennur út í vor. Roggisch er
32 ára gamall og harður í horn að
taka sem varnarmaður. Þrátt fyrir
mikla uppstokkun hjá liðinu upp á
síðkastið segist Roggisch hafa
tröllatrú á liðinu og þjálfara þess,
Guðmundi Þórði Guðmundssyni.
Arnór ÞórGunn-
arsson, leik-
maður hjá TV
Bittenfeld, er
fjórði marka-
hæsti leikmaður
þýsku 2. deild-
arinnar í hand-
knattleik um
þessar mundir.
Arnór Þór, sem er á sínu öðru
keppnistímabili með liðinu, hefur
skorað 141 mark í 21 leik, þar af 65
mörk úr vítakasti. Hann er eini Ís-
lendingurinn á lista yfir fimmtán
markahæstu leikmenn deildarinnar.
Ole Rahmel hjá Tusem Essen er
markahæstur með 170 mörk.
Fólk sport@mbl.is