Morgunblaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 1
FÓTBOLTI Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Það styttist óðum í endurkomu Kolbeins Sigþórssonar inn á fót- boltavöllinn en landsliðsmiðherjinn hóf í vikunni æfingar á nýjan leik með liði Ajax í Hollandi. Kolbeinn hefur verið frá keppni síðan í byrj- un október vegna álagsbrots í ökkla. „Það er virkilega ánægjulegt að vera kominn af stað með liðinu og það lítur allt út fyrir það að ég nái að spila nokkra leiki áður en tíma- bilinu lýkur. Endurhæfingin hefur gengið vel síðustu vikurnar og ég hef ekki fundið fyrir neinum verkj- um á þessum æfingum í vikunni. Þetta lítur vel út,“ sagði Kolbeinn við Morgunblaðið í gær en áður en hann meiddist átti hann frábæru gengi að fagna og skoraði 5 mörk í átta leikjum með liðinu í deildinni. Kolbeinn segir að ef allt gangi að óskum muni hann spila leik með varaliðinu annan mánudag og eftir það muni svo þjálfarinn meta það hvenær hann muni tefla honum fram í aðalliðinu. Búinn að vera frá allt of lengi „Það er níu leikir eftir í deild- inni og ég hef sett mér það mark- mið að verða tilbúinn að spila í kringum mánaðamótin svo ég ætti að geta náð sex til sjö leikjum. Ég get ekki beðið eftir því að byrja að spila aftur og beita mér á fullu. Ég er búinn að vera frá allt of lengi en ég verð að passa mig að vera ekki oft æstur heldur koma mér hægt og bítandi inn í þetta,“ sagði Kolbeinn. Gríðarleg spenna er í toppbar- áttu deildarinnar en það stefnir í sex liða baráttu um meistaratit- ilinn. Ajax er eitt þeirra en liðið er í öðru sæti, þremur stigum á eftir AZ Alkmaar, sem Jóhann Berg Guðmundsson leikur með og Kol- beinn var á mála hjá þar til síðasta sumar þegar Ajax keypti hann. „Það er rosaleg barátta fram undan. Deildin hefur spilast ótrú- lega. Toppliðin hafa tapað á víxl og það stefnir í æsilega baráttu. Ég held að úrslitin ráðist ekki fyrr en í síðustu umferð. Okkar liði hefur gengið vel síðustu vikurnar og það hefur náðst að púsla liðinu vel saman miðað við hvað eru margir meiddir hjá okkur. Mér finnst það bara gott að vera ennþá í baráttunni um titilinn mið- að við þær hremmingar sem við höfum lent í á tímabilinu,“ sagði Kolbeinn en Ajax á titil að verja og stefnir að því að landa honum í 31. sinn. Reuters Fjarvera Kolbeinn Sigþórsson hefur verið frá keppni síðan í október. Get ekki beðið eftir að byrja  Kolbeinn af stað á ný með Ajax  Vonast til að spila síðustu 5-6 leikina FIMMTUDAGUR 15. MARS 2012 íþróttir Íshokkí Birkir Árnason, fyrirliði nýrra Íslandsmeistara úr Birninum, kom heim frá Danmörku og vann titil með ungu strákunum. Góð blanda af eldri og yngri leikmönnum, segir Birkir 2 Íþróttir mbl.is Englendingar eiga eftir allt saman lið í átta liða úrslitum Meist- aradeildar Evrópu í fótbolta. Chelsea sá til þess með fræknum sigri á Napoli í framlengdum leik, 4:1, á Stamford Bridge í gærkvöld. Serbneski varnarjaxlinn Branislav Ivanovic skoraði markið sem skildi liðin að með þrumuskoti í lok fyrri hálfleiks framlengingarinnar – 5:4 samanlagt. Það voru jaxlarnir þrautreyndu Didier Drogba, John Terry og Frank Lampard sem skoruðu mörk Chelsea í venjulegum leiktíma. Gok- han Inler skoraði fyrir Napoli og minnkaði þá muninn í 2:1, sem hefði nægt ítalska liðinu til að komast áfram. Sjö lönd eiga lið í keppninni Þetta þýðir að sjö lönd eiga lið í 8 liða úrslitunum, sem er óvenjumikil dreifing. Spánn (Real Madrid og Barcelona), England (Chelsea), Þýskaland (Bayern München), Frakkland (Marseille), Ítalía (AC Milan), Kýpur (APOEL Nicosia) og Portúgal (Benfica). Dregið er til 8 liða úrslitanna á morgun. „Þetta er ein stærsta stund okkar í langan tíma og við sýndum fyrir hvað Chelsea stendur. Við vorum traustir og seigir, og börðumst til síðustu mínútu. Í kvöld sýndum við og sönnuðum að við erum samstillt lið,“ sagði fyrirliðinn John Terry sem kom Chelsea í 2:0 með skalla- marki í byrjun síðari hálfleiks. Real Madrid vann CSKA frá Moskvu sannfærandi, 4:1, á San- tiago Bernabéu þar sem Cristiano Ronaldo skoraði tvívegis. Real vann þar með samanlagt 5:2 en liðin gerðu áður jafntefli í Moskvu. vs@mbl.is Englendingar enn með  Frækinn sigur Chelsea á Napoli eftir framlengingu  Jaxlarnir í liðinu skoruðu  Ronaldo með tvö fyrir Real AP Skoraði Frank Lampard gerði þriðja mark Chelsea úr vítaspyrnu og sá til þess að leikurinn á Stamford Bridge færi í framlengingu. Framarar héldu upp á fyrsta opinbera leik sinn á nýja félagssvæðinu í Úlfarsárdal í gærkvöld með því að sigra Hauka, 5:1, í deildabikar karla í knatt- spyrnu. Það voru þó Haukarnir sem komust yfir og fyrsta markið á vellinum skoraði Magnús Páll Gunnarsson eftir hálftíma leik. Staðan var 1:0 fyrir lærisveina Ólafs Jóhannessonar þar til hálftími var eftir. Þá jafnaði Steven Lennon og Ásgeir Gunnar Ásgeirsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Fram í kjölfarið, 2:1. Á lokakaflanum bættu síðan Kristinn Ingi Hall- dórsson, Almarr Ormarsson og Steven Lennon við mörkum en tveimur leikmönnum Hauka var vikið af velli á síðustu 20 mínútunum eftir að hafa feng- ið tvívegis gula spjaldið hvor. Fram hefur þar með unnið alla fimm leiki sína í 1. riðli keppninnar og er með 15 stig á toppnum. Staðan er á bls. 2. vs@mbl.is Morgunblaðið/Golli Nýr Ásgeir G. Ásgeirsson úr Fram og Guðmundur Mete úr Haukum eigast við í Úlfarsárdal. Fimm mörk í fyrsta leik Framara í Úlfarsárdalnum Sigurbergur Sveinsson sneri sig illa á ökkla þegar 15 mínútur voru liðnar af landsleik Þjóðverja og Íslendinga í Mannheim í gærkvöldi. Hann kom ekkert meira við sögu í leiknum en hafði fram að því leikið vel og skorað eitt mark að sögn Guðmundar Þórð- ar Guðmundssonar landsliðsþjálf- ara. Ekki er nema mánuður síðan Sig- urbergur fór að spila á ný eftir að hafa verið í þrjá mánuði frá keppni vegna meiðsla í hné. Af þeim sökum var hann ekki í íslenska landsliðinu sem tók þátt í Evrópumeist- aramótinu í Serbíu í janúar. Íslenska landsliðið tapaði leiknum í Mannheim í gærkvöldi, 33:22, eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik, 16:13. iben@mbl.is »3 Sigurbergur meiddist í Mannheim

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.