Morgunblaðið - 07.05.2012, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.05.2012, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2012 0:1 31. Hilmar Geir Eiðssonskoraði fyrsta mark Kefla- víkur í sumar eftir góða sendingu frá Jóhanni Birni. Hann stakk bolt- anum inn fyrir varnarlínu Fylkis og þar var Hilmar Geir með varn- armann í bakinu, vinstra megin í teignum. Gott skot hans í fjærhorn- ið hafnaði í netinu án þess að Bjarni Þórður næði að koma vörn- um við. 1:1 61. Ingimundur Níels Ósk-arsson skoraði eftir stungu- sendingu frá Magnúsi Þóri Matt- híassyni. Svipað mark og hjá Keflavík en Ingimundur var einn í miðjum vítateignum gegn Ómari Jóhannssyni. I Gul spjöld:Elebert (Fylki), 66. (brot), Jóhann Birnir (Keflavík) 78. (brot). MMM Enginn. MM Enginn. M Ingimundur N. Óskarsson (Fylki) Árni Freyr Guðnason (Fylki) David Elebert (Fylki) Davíð Þór Ásbjörnsson (Fylki) Ómar Jóhannsson (Keflavík) Jóhann B. Guðmundsson (Keflavík) Hilmar Geir Eiðsson (Keflavík) Arnór Ingvi Traustason (Keflavík)  Ásmundur Arnarsson hjá Fylki og Zoran Daníel Ljubicic hjá Keflavík voru að stýra liðum sínum í fyrsta skipti á Íslandsmótinu.  Gregor Mohar, Grétar Atli Grét- arsson og Jóhann Ragnar Bene- diktsson spiluðu sinn fyrsta leik fyrir Keflavík á Íslandsmóti en þeir komu í vetur.  David Elebert, Magnús Þórir Matthíasson, Árni Freyr Guðnason og Finnur Ólafsson spiluðu sinn fyrsta deildaleik fyrir Fylki. Allir byrjuðu þeir inni á nema Finnur sem kom inn á eftir 80 mínútur. Þetta gerðist í Árbænum Fylkisvöllur, Pepsi-deild karla, 1. um- ferð, sunnudag 6. maí 2012. Skilyrði: Hægur vindur, sól en kalt og þurrt. Völlurinn góður. Skot: Fylkir 17 (11) – Keflavík 9 (4). Horn: Fylkir 3 – Keflavík 5. Lið Fylkis: (4-4-2) Mark: Bjarni Þórður Halldórsson. Vörn: Ásgeir Örn Arnþórsson, Kristján Valdimars- son, David Elebert, Kjartan Ágúst Breiðdal. Miðja: Tómas Þorsteinsson (Finnur Ólafsson 81.), Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Davíð Þór Ásbjörnsson, Ingimundur Níels Óskarsson. Sókn: Magnús Þórir Matthíasson (Jóhann Þórhallsson 71.), Árni Freyr Guðna- son (Rúrik Andri Þorfinnsson (88.). Lið Keflavíkur: (4-5-1) Mark: Ómar Jóhannsson. Vörn: Grétar Atli Grét- arsson, Gregor Mohar, Haraldur Freyr Guðmundsson, Jóhann Ragnar Benediktsson. Miðja: Hilmar Geir Eiðsson, Einar Orri Einarsson, Arnór Ingvi Traustason, Frans Elvarsson (Sigurbergur Elísson 54.), Jóhann Birnir Guðmundsson. Sókn: Guð- mundur Steinarsson (Bojan Stefán Ljubicic 76.). Dómari: Gunnar Jarl Jónsson – 8. Áhorfendur: 1.076. Fylkir – Keflavík 1:1 Í ÁRBÆNUM Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is Bæði Fylki og Keflavík hefur í flestum spám sem gerðar hafa verið fyrir Pepsi-deild karla í knatt- spyrnu verið spáð nokkuð erfiðu sumri. Miðað við fyrri hálfleik hjá Fylki og seinni hálfleik hjá Keflavík gæti það ræst. Ef mið er hinsvegar tekið af fyrri hálfleik hjá Keflavík og þeim seinni hjá Fylki geta liðin gert mun betur en svo. Það er hins- vegar einmitt stöðugleikinn sem gæti verið akkilesarhæll beggja liða. Keflavík spilaði mjög vel í fyrri hálfleik og stjórnaði miðjunni. Þeir uppskáru flott mark og annað sem þó var dæmt af vegna rangstöðu. Það var tæpt en leikmenn sýndu að þeir geta skorað mörk þrátt fyrir efasemdir margra um það. Betra eftir að ísinn var brotinn Fylkir byrjaði leikinn frekar illa og leyfði gestunum að leika sér með boltann. Það var hinsvegar allt ann- að að sjá til liðsins eftir að það braut ísinn með marki eftir um klukkutíma leik. Þá spiluðu þeir af miklu öryggi og sköpuðu sér mörg- færi. Jóhann Þórhallsson kom sprækur inn á og ógnaði marki gestanna í tvígang. Þá vantaði Árna Frey Guðnason lítið upp á að skora. Enn er ótalinn Björgólfur Takefusa sem er meiddur. Varnarleikur Fylkis var hins- vegar vandamál liðsins á síðustu leiktíð. Ef Skotinn David Elebert spilar áfram eins og hann gerði í gær og liðið nær að þétta miðjuna, ætti Fylkir að eiga meiri möguleika á að fá á sig færri mörk en í fyrra. Elebert virtist nýtast liðinu vel og verður því væntanlega afar mik- ilvægur í sumar. Hann og fyrirliði Fylkis, Kristján Valdimarsson, virk- uðu ágætlega saman, sérstaklega eftir því sem líða tók á leikinn. Lykilleikmenn náðu sér ekki á strik í 45 mínútur Keflavík er með marga reynslu- bolta en inn á milli eru ungir strák- ar sem þurfa tíma í sumar. Keflavík gæti því átt í erfiðleikum í byrjun. Liðið þarf þá að treysta á reynslu- bolta eins og Guðmund Steinarsson, sem náði sér reyndar ekki á strik í gær, Jóhann Birni Guðmundsson, Harald Frey Guðmundsson og Óm- ar Jóhannsson. Þeir eins og allt Keflavíkurliðið gáfu eftir í seinni hálfleik ef undan er skilinn Ómar, og þá var liðið ekki spennandi. Það vantaði, hjá þeim leikmönnum sem taldir voru upp hér fyrir ofan, að taka af skarið. Geri þeir það ekki í sumar verður það liðinu erfitt. Bæði lið þurfa að treysta á heimavöll sinn til að safna stigum. Það má því segja að Fylkir hafi komið verr út úr þessari viðureign en Keflavík. Fyrir þá er gott að ná í stig á útivelli í fyrsta leik, sér- staklega þegar mið er tekið af því að lykilleikmenn náðu sér ekki á strik í 45 mínútur.  Myndbandsviðtöl við Ásmund Arnarsson, þjálfara Fylkis, Ingi- mund Níels Óskarsson, markaskor- ara Fylkis, Zoran Daníel Ljubicic, þjálfara Keflavíkur, og Harald Frey Guðmundsson, fyrirliða Keflavíkur, er að finna á mbl.is. Morgunblaðið/Árni Sæberg Mark Hilmar Geir Eiðsson býr sig undir að senda boltann í mark Fylk- ismanna en hann kom Keflvíkingum yfir í Árbænum í gærkvöld. Stöðugleikinn akkilesarhæll?  Keflvíkingar geta skorað mörk Morgunblaðið/Árni Sæberg 1:0 12. Eftir stuttahornspyrnu vinstra megin sendi Óskar Örn Hauksson boltann fyrir mark Stjörnunnar og Emil Atlason skoraði með hörkuskalla úr miðjum vítateig í vinstra hornið. 2:0 68. KjartanHenry Finn- bogason fékk boltann inn í vítateiginn vinstra megin frá Óskari Erni og lyfti honum laglega yfir Ingvar markvörð og í vinstra hornið. 2:1 73. Halldór OrriBjörnsson tók hornspyrnu frá vinstri og renndi boltanum út að vítateigslínu. Hörður Árnason kom á ferðinni og þrumaði glæsilega í þverslána og inn. 2:2 86. Darri SteinnKonráðsson skaut að marki KR frá vítateigslínu hægra meg- in. Atli Jóhannsson var rétt utan markteigs og breytti stefnu boltans framhjá Hannesi og í vinstra hornið. I Gul spjöld:Tryggvi (Stjörn- unni) 9. (brot), Scholz (Stjörnunni) 27. (brot), Jó- hann (Stjörnunni) 34. (brot), Viktor (KR) 45. (brot), Bjarni (KR) 53. (brot). I Rauð spjöld: Engin. MMM Enginn. MM Enginn. M Haukur Heiðar Hauksson (KR) Kjartan Henry Finn- bogason (KR) Emil Atlason (KR) Alexander Scholz (Stjörn- unni) Hörður Árnason (Stjörn- unni) Atli Jóhannsson (Stjörn- unni)  Halldór Orri Björnsson, lykilmaður í sóknarleik Stjörnunnar á síðustu ár- um, byrjaði á vara- mannabekknum en hann þótti tæpur fyrir leikinn vegna meiðsla. Hann var þó ekki búinn að vera inni á nema í liðlega mínútu þegar fyrra mark Garðbæinga kom eftir hornspyrnu Hall- dórs.  Walesverjinn Rhys We- ston, sem KR-ingar fengu til sín á dögunum, fór beint inn í byrjunarliðið hjá Ís- landsmeisturunum og lék við hlið Grétars í hjarta varnarinnar.  Stjarnan tefldi fram tveimur Dönum í byrj- unarliðinu sem komu til liðsins í vetur. Kennie Chopart var á kantinum vinstra megin og Alexand- er Scholz var í miðvarð- arstöðunni við hlið Tryggva. Þetta gerðist í Vesturbænum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.