Morgunblaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 6
Oleg Blokhin, þjálfari Úkra-
ínu, er goðsögn í lifanda lífi
sem einn mesti knatt-
spyrnukappi sem Úkraína
hefur af sér alið, ásamt nú-
verandi fyrirliða, Andriy
Shevchenko. Það er ef til vill
ástæðan fyrir því hversu
heimakær maður hann er
þegar kemur að vali í landsliðið. Nær allir leik-
mennirnir koma frá úkraínskum félagsliðum,
þar af langfestir frá Dynamo Kiev og Shakhtar
Donetsk. Dynamo hefur löngum verið útung-
unarstöð fyrir afburðaknattspyrnumenn og
þaðan komu þrír handhafar nafnbótarinnar
„Knattspyrnumaður Evrópu“; Blokhin sjálfur
1975, Igor Belanov 1986 og Shevchenko 2004.
Nýjasti framherja-krónprinsinn blasir hins veg-
ar ekki við og „Sheva“ þarf því enn að draga
vagninn um sinn, á 36. aldursári. Þó eru tveir
leikmenn í hópnum á EM 2012 sem gætu slegið
í gegn, og báðir eru þeir sókndjarfir miðjumenn
– þeir Yehven Konoplyanka og Andriy Yarmo-
lenko. Allt veltur þó á því að Shevchenko, á sínu
síðasta stórmóti, nái að setja einhver mörk.
Andriy Shevchenko er á sínu síðasta stórmóti.
Úkraína
Sænska liðið mætir í góðum
gír á EM 2012 og er umtal-
að að þjálfarinn Erik Ham-
ren hafi náð að skapa betri
anda í liðinu en verið hafi
um langa hríð. Munar ekki
minnstu að stórstjarnan
Zlatan Ibrahimovich, sem
einatt hefur þótt heldur
forn í skapi, er hinn hress-
asti og spilamennskan eftir
því. Margir bíða því spenntir eftir að sjá
hvernig hann plumar sig því þrátt fyrir fá-
heyrðan árangur með félagsliðum sínum und-
anfarin áratug vill loða við „Ibracadabra“ að
hverfa þegar allt er undir í stærstu leikjunum.
Ef hann er hins vegar til staðar er leitun að
betri framherja; 195 cm, nautsterkur og tekn-
ískur svo undrun sætir. Með þá Johan Elm-
ander og Ola Toivonen sér til fulltingis í
fremstu línu er ljóst að Ibra getur gert usla
gegn hvaða liði sem er. Svíþjóð í stuði er ekki
óskamótherji fyrir nokkurt landslið – spyrjið
bara Hollendinga sem töpuðu tvívegis fyrir
Svíum í undankeppninni.
AFP
„Ibracadabra“ - einn besti framherji heims í dag.
Svíþjóð
Franska landsliðið hef-
ur ekki riðið feitum
hesti frá síðustu stór-
mótum, allt frá því liðið
tapaði í úrslitum fyrir
Ítalíu á HM 2006. Þrátt
fyrir að hafa innan
sinna raða mannval
sem á fáa sína líka hefur stemningin verið
með allra versta móti og náði vitleysan há-
marki á HM 2010 með uppreisn nokkurra
leikmanna, undir forystu fyrirliðans Patrice
Evra. Raymond Domenech er á braut og
brýnið Laurent Blanc kominn í staðinn.
Batamerkin á leik liðsins eru ótvíræð og liðið
mætir til leiks taplaust í síðasta 21 landsleik.
Miðað við mannskapinn og gengi liðsins í að-
dragandanum verða bláliðar Blancs að teljast
sigurstranglegastir í D-riðli og ef allt smellur
geta þeir farið í úrslitaleikinn. Gnægð ungra
hæfileikamanna á borð við Giroud, M’Vila,
Martin og Cabaye er hér að finna í bland við
reynslurefi eins og Ribéry, Malouda og Evra.
Frakkar geta loks hlakkað til að sjá liðið
taka á þeim bestu, í fyrsta sinn í mörg ár.
AFP
Olivier Giroud verður í framlínu Frakka.
Frakkland
Ef einhver fylgist tauga-
trekktur með gengi enska
landsliðsins í fyrstu leikj-
unum þá er það Wayne
nokkur Rooney. Sökum ein-
staklega heimskulegs brots í
leik gegn Svartfjallalandi í
undankeppni EM, sem hann
hlaut verðskuldað rautt
spjald fyrir, er hann í banni í
fyrstu tveimur leikjum liðsins. Það er afleitt fyr-
ir England því Rooney er þeirra öflugasti
markaskorari og rúmlega það. Bjartsýnismenn
vona að þeir Andy Carroll og Alex Oxlade-
Chamberlain grípi tækifærið höndum tveim og
láti til sín taka í fjarveru stjörnunnar og fari svo
er enginn skaði skeður. Mörgum þykir þá taug-
in helst til römm milli þjálfarans Roys Hodg-
sons og klúbbsins sem rak hann úr starfi
snemmárs 2011, Liverpool, en sex leikmenn
liðsins eru í hópnum, fleiri en frá nokkru öðru
liði - og það í kjölfar herfilegrar leiktíðar. Fari
svo að leikur Englands og Úkraínu í 3. umferð
verði úrslitaleikur um 2. sætið í riðlinum mun
nærvera Rooneys aftur hafa sitt að segja.
AFP
Steven Gerrard er fyrirliði Englands á EM.
England
D -RIÐILLEM 2012
6 | MORGUNBLAÐIÐ
Besta landslið undanfar-
inna ára, núverandi heims-
og Evrópumeistarar Spán-
verja, hefur leik í C-riðli.
Ekki einasta hafa leik-
mennirnir leikið saman um
árabil heldur er byrjunarlið
Spánar nærfellt í heild sinni
skipað leikmönnum Barcelona og Real Ma-
drid. Meðal annarra eru David Silva hjá Man-
chester City, Santi Cazorla hjá Malága, Fern-
ando Llorente hjá Athletic de Bilbao og Juan
Mata hjá Chelsea. Að sönnu skuggalegt mann-
val og ekki einu sinni allir upp taldir. Í fjarveru
Davids Villa, helsta sóknartrompsins und-
anfarin ár, munu augu allra beinast að Fern-
ando nokkrum Torres – er hann búinn eða náði
Roberto Di Matteo að vekja hann aftur til lífs-
ins á síðustu vikum tímabilsins hjá Chelsea?
Vopnabúr Spánverjanna er reyndar ríflegt
jafnvel þótt „El Niño“ finni ekki taktinn, og
það segir sitt að hinn frábæri Iker Muniain hjá
Bilbao komst ekki í hópinn. Við blasir að „La
Furia Roja“ kemst langt. Liðið er einfaldlega
alltof gott til annars og gæti vel farið alla leið.
AFP
Torres - smellur eða skellur á EM?
Spánn
Mikið vatn hefur runnið til
sjávar síðan Ítalir urðu
heimsmeistarar árið 2006.
Flestir úr þeim hópi eru
komnir á aldur – aðeins
hinn sígræni markvörður
Gigi Buffon og leikstjórn-
andinn Andrea Pirlo eru
þar enn. Liðinu gekk afleit-
lega á síðasta heimsmeist-
aramóti og til að bæta gráu ofan á svart skekur
nú nýtt hneykslismál ítalska boltann þar sem
grunur leikur á um víðtæka hagræðingu úr-
slita. Afleiðing þess er meðal annars sú að
þjálfarinn Cesare Prandelli ákvað að vísa
fyrsta valkostinum í vinstri bakvörð, Dome-
nico Criscito, úr hópnum þar eð mál hans eru
til rannsóknar. Það má því búast við að stemn-
ingin sé dælduð í ítalska búningsherberginu.
Sóknin er eitt stærsta spurningarmerkið hjá
Ítölum. Enginn efast um hæfileika Marios
Balotellis og Antonios Cassanos, en þeir bera
hins vegar báðir kurteisisheitin „ólíkindatól“
og það er aldrei að vita hvenær þeir fuðra upp í
ruglið. Væntingarnar eru því hóflegar í ár.
AFP
Balotelli - bandbrjálaður snillingur.
Ítalía
Fyrir mót hefur verið talað
um að Króatar eigi óum-
deilda hæfileikamenn innan
sinna raða en megi ekki við
meiðslum. Illu heilli hefur
bölvunin þegar dunið yfir
því Ivica Olic, sókn-
arleikmaður FC Bayern,
dró sig út úr hópnum vegna
meiðsla í læri viku fyrir
upphafsdag EM. Það þýðir að markaskorun
mun mæða á nýja manninum í hópnum, Nikola
Kalinic, sem lék áður með Blackburn, nú með
Dnipro Dnipropetrovsk í Úkraínu. Með honum
frammi eru þeir Nikica Jelavic, leikmaður
Everton, og Eduardo sem er á mála hjá Shakt-
ar Donetsk. Sem fyrr hverfist leikur króatíska
liðsins um töfrabrögð Luka Modric og telst
hann í nokkrum sérflokki í króatíska liðinu um
þessar mundir. Til fulltingis á miðjunni hefur
hann félaga sinn frá Tottenham, Niko Kranjc-
ar, sem farinn er til Dynamo Kiev, og mun lið-
inu ekki veita af hugmyndaríku spili frá þeim
kumpánum ef það á að eiga möguleika gegn
Spánverjum og Ítölum í riðlakeppninni.
AFP
Modric er hjarta og heili króatíska liðsins.
Króatía
Írskur eldmóður og ítölsk
knattspyrnunálgun er kok-
teill sem þjónað hefur
landsliði Íra býsna vel síðan
2008 er núverandi þjálfari
tók við. Undir stjórn hins
reynsluhokna Giovannis
Trapattonis munaði minnstu að liðið kæmist á
HM 2010 í Suður-Afríku – aðeins höndin á
Thierry Henry kom í veg fyrir það – en í þetta
sinn komust þeir í lokakeppni EM, í fyrsta
sinn síðan 1988. Írar eru reyndar ekkert sér-
staklega hrifnir af stíl „Il Trap“, sem er sam-
kvæmt þjóðerninu með báða fætur kirfilega í
catenaccio-hefðinni. Varnarleikurinn er sumsé
í öndvegi enda er „catenaccio“ ítalska orðið yf-
ir slagbrand. Dugnaður, skipulag og skynsemi
eru lykilorðin, í bland við skyndisóknir þar
sem Robbie Keane og Damien Duff eru oftar
en ekki í aðalhlutverki, ásamt því að framherj-
inn Kevin Doyle, sem leikur með Úlfunum á
Englandi, er býsna frár á fæti. Írar eru grjót-
harðir að eðlisfari og gefa ekkert eftir fyrr en í
fulla hnefana, en feiknin öll af fjögurra laufa
smárum þarf til að koma þeim upp úr riðlinum.
AFP
Robbie Keane, markahrókur Íra undanfarin ár.
Írland
C -RIÐILLEM 2012