Morgunblaðið - 05.10.2012, Page 11
Ljósmyndir/Benedikt Hermannsson
Flott Finnbogi leikur hest, Elísabet leikur kú, Sigríður leikur kött, Kristín
Harpa leikur barn, Maggi leikur hund, Álfheiður konuna og Simbi karlinn.
2007 og tók þá strax um haustið
þátt í uppsetningu hjá Litla leik-
klúbbnum. „Ég lenti eiginlega alveg
óvart inni í sýningunni Skugga-
Sveini sem þá var sett á fjalirnar og
ég hef verið með í nánast öllum
sýningum síðan þá. Leiklistarlífið
hér á Ísafirði er mjög öflugt og það
skiptir miklu máli fyrir samfélagið
hérna. Litli leikklúbburinn er oftast
með tvær sýningar á ári og líka
söngskemmtanir um jólin sem eru
gjarnan teknar aftur upp fyrir
þorrablótin. Elvar Logi Hannesson
heldur líka úti Kómedíuleikhúsinu
hér og hann er mikil driffjöður og
hefur stundum leikstýrt okkur.“
Margar barnasýningar
Litli leikklúbburinn hefur sett
upp fjölmennar og metnaðarfullar
sýningar í Edinborgarhúsinu í
gegnum tíðina. „Við í stjórninni
reynum að velja leikrit þar sem
börn og ungmenni hafa hlutverk, til
dæmis settum við upp Emil í Katt-
holti í fyrra og þar fengu margir
krakkar hlutverk. Við reynum að
hafa barnasýningu annað hvert ár.
Við höfum fengið marga færa leik-
stjóra til að leikstýra okkur og
núna er það leikkonan Halldóra
Björnsdóttir sem heldur um stjórn-
artaumana í uppfærslunni á Kett-
inum sem fer sínar eigin leiðir. Hún
flutti hingað fyrir tveimur árum og
er mikill fengur fyrir okkur. Hún
hefur leikstýrt krökkunum í
Menntaskólanum en þau setja ár-
lega upp leikrit. Halldóra ætlar líka
að vera með leiklistarnámskeið fyr-
ir grunnskólakrakkana í vetur.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2012
Tæknin er skemmtileg og þægileg
en líka stundum flókin og vand-
ræðaleg. Þetta á vel við þegar sím-
tækin taka af okkur völdin og
breyta orðum okkar í hvað það sem
þeim sýnist. Skemmtilegt orða-
brengl má skoða á erlendum vefsíð-
um og hlæja sig máttlausan. Enda
nokkuð öruggt að það hefur valdið
bæði vandræðagangi og misskiln-
ingi.
„Þú getur aldrei lært á þetta,“
voru viðkvæði bróður míns þegar
móðir mín stríddi honum á því að
ætla að fá sér Iphone á dögunum.
Trúði hann ekki meira en svo á
tæknihæfileika móður sinnar sem
þóttist taka þessu sem móðgun.
Hún veit jafn vel og hann að þriggja
orða sms er hennar hámark.
Tæknilegur snertiskjár gæti því
orðið henni til trafala. Ég skil það
bara mjög vel því síminn minn er
oft með uppsteyt. Hann breytir orð-
um svo maður taki ekki eftir og
sendir sms á einhvern allt annan en
skilaboðin áttu að fara til. Ég sendi
vinkonu minni eitt sinn sms og tjáði
henni að ég væri sveitt í leikhúsi.
Þennan prakkaraskap símans lag-
færði ég örskömmu síðar og sann-
færði hana um að ég væri alls ekk-
ert sveitt og illa lyktandi.
Þetta var þó ekkert miðað við það
sem síminn minn gerði hér á einni
sunnudagsvaktinni. Ég held hann
hljóti að hafa verið timbraður svei
mér þá. Í það minnsta ákvað hann
að senda sms sem ætlað var mínum
heittelskaða frekar til samstarfs-
manns míns. Sam-
starfsmaður minn var
frekar undrandi á því
að ég hlakkaði til að
komast heim og knúsa
hann. Þess utan tók
hann skilaboðunum
bara nokkuð létt og fyr-
irskipaði ekki nálg-
unarbann á hendur
mér. Enda skil ég ekki
enn hvernig síminn
minn gat fært sig úr
einni skilaboðasögu yfir
í aðra án þess að ég
tæki eftir. Það er greinilega betra
að hafa varann á við slíka tækni-
notkun. Kannski væri bara best að
færa sig aftur í símskeytin og bréf-
dúfurnar?
Í það minnsta sýndist veröldin
oft dálítið einfaldari
þegar maður hringdi í
heimasíma vinkvenna
sinna í gamla daga.
Ef þær voru ekki
heima var ekkert að
gera nema að skilja
eftir skilaboð. Nú er
hægt að ná í fólk dag-
inn út og inn sama
hvað það er að gera.
Um daginn varð sím-
inn minn batteríislaus
og hleðslutækið hafði
orðið eftir heima. Því-
líkt frelsi sem þessu fylgdi. En auð-
vitað var hægt að ná í mig í gegnum
tölvupóst í neyðartilviki...
Bréfdúfan liggur í valnum
AFP
Símamyndir Með nýjustu tækni þarf ekki að missa af neinu.
Samstarfs-
maður minn
var frekar
undrandi á því
að ég hlakkaði
til að komast
heim og knúsa
hann.
Mæja
masar
maria@mbl.is
Til afhendingar strax
Til viðbótar við ríkulegan staðalbúnað A3 er Sport & Mobile útfærslan
búin 17” álfelgum, fjarlægðarskynjurum að aftan, krómuðum þakbogum,
Bluetooth-tengingu fyrir farsíma ásamt fjarstýringum í stýri fyrir
síma og útvarp. Allt þetta ásamt einstaklega sparneytinni dísilvél sem
eyðir einungis 4,3 lítrum á hverja hundrað kílómetra, og þú leggur
að auki frítt í stæði í 90 mínútur í Reykjavík.
Audi A3 Sport & Mobile 1.6TDI sjálfskiptur
Tilboðsverð: 4.750.000,-
(Fullt verð: 5.530.000,-)
Audi A3
Sport & Mobile