Morgunblaðið - 12.11.2012, Page 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2012
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang
augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Tómas Þór Þórðarson
tomas@mbl.is
Jón Daði Böðvarsson, 19 ára
knattspyrnumaður frá Selfossi
sem kosinn var efnilegasti leik-
maður Pepsi-deildarinnar í sumar,
var í gærkvöldi kallaður inní
landsliðshóp Íslands sem mætir
Andorra í vináttuleik ytra á mið-
vikudaginn. Þetta er í fyrsta skipti
sem Jón Daði er í landsliðs-
hópnum.
„Tilfinningin er alveg frábær,“
sagði Jón Daði í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi. „Þetta er
eitthvað sem ég bjóst ekki við
núna sem gerir þetta ennþá sæt-
ara.“
Start búið að gera tilboð
En hvar var Jón Daði þegar
hann fékk símtalið? „Ég var bara
úti í búð hérna í Stokkhólmi þegar
ég fékk sms frá Heimi Hallgríms-
syni aðstoðarþjálfara þar sem stóð
að ég ætti að hringja í hann. Ég
fattaði hvað var í gangi strax,“
segir Jón Daði.
Jón Daði er við æfingar hjá
Djurgården í Stokkhólmi þessa
dagana en hann flýgur til Andorra
með stoppum í Osló og Barcelona í
dag. Hann hefur verið að skoða
aðstæður hjá liðum í Danmörku,
Noregi og Svíþjóð eftir að tíma-
bilinu lauk hér heima og líður
brátt að því að hann þurfi að taka
ákvörðun um hvert hann fari.
„Ég er kominn með góða mynd
af þessu. Ég veit ekki alveg hverju
ég hef mestan áhuga á. Ég á eftir
að sjá hvað Viking gerir en ég veit
að það er áhugasamt. Svo er Start
búið að gera tilboð en ég á eftir að
sjá hvað Djurgården vill. Það væri
frábær valkostur að geta bara val-
ið úr liðum en þetta kemur allt í
ljós,“ segir Jón Daði Böðvarsson.
„Tilfinningin er alveg frábær“
Morgunblaðið/Golli
Efnilegur Jón Daði er á leið í atvinnumennsku og kominn í landsliðið en
hann ferðast til Andorra í dag þar sem Ísland spilar vináttuleik.
SKÍÐI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
María Guðmundsdóttir, landsliðskona á skíð-
um, fékk góðar fréttir fyrir helgina. Hún fékk
þá þann úrskurð að hún mætti stíga aftur á
skíði en einungis sex mánuðir eru liðnir frá því
hún fór á skurðarborðið í Noregi vegna kross-
bandsslits síðasta vetur.
Mikið var um meiðsli Maríu fjallað á sínum
tíma en hún varð fyrir því óláni að slíta kross-
band í hné í keppni á Skíðalandsmóti Íslands á
Akureyri. Skíðafólkið keppti þá við erfiðar að-
stæður og var keppni frestað eftir óhapp Mar-
íu. Voru mótshaldarar talsvert gagnrýndir fyr-
ir að hafa ekki frestað keppninni fyrr.
Sex mánuðir liðnir frá aðgerð
„Ég var prófuð í Osló í síðustu viku þar sem
styrkur í lærvöðvunum á báðum fótum er
mældur. Í aðgerðinni var tekin sin úr lærinu
framanverðu, rétt fyrir ofan hnéð, og ég gat til
dæmis ekki lyft fætinum í viku. Sinin myndast
aftur og þá gat ég farið að styrkja þetta en það
tók svolítið langan tíma. Til þess að fá að fara
á skíði þarf styrkurinn að vera nokkuð mikill.
Ég fór í aðgerðina 3. maí og því eru liðnir að-
eins meira en sex mánuðir. Enginn fær að fara
á skíði fyrr en lágmark sex mánuðir eru liðnir
frá aðgerð. Prófið kom vel út og ég má byrja
að fara aðeins á skíði og prófa mig áfram. Ég
má ekki fara í brautir eða slíkt strax og má
einungis skíða frjálst til að byrja með. Það er
bara góð byrjun,“ útskýrði María þegar Morg-
unblaðið sló á þráðinn til hennar og kannaði
stöðuna.
„Rosalega glöð“
María var að vonum alsæl með niðurstöðuna
og gat ekki neitað því að hún hefði verið orðin
leið á því að komast ekki í brekkurnar. „Ég er
náttúrlega búin að vera hrikalega dugleg og
ætlaði mér að standast þetta próf. Ég var mjög
stressuð áður en ég fór í prófið því ég hefði
orðið svo leið yfir því að komast ekki á skíði
þar sem ég var farin að vonast til þess. Ég var
rosalega glöð og fór strax á skíði því ég gat
ekki beðið lengur,“ sagði María sem var skorin
upp í Drammen í Noregi.
Aðgerðina framkvæmdi afar hæfur læknir
sem María segir vera mesta krossbands-
sérfræðing í Noregi. María komst til hans þar
sem hann hefur verið læknir skíðaskólans í
Geilo þar sem hún var nemandi. „Það var frá-
bært. Allir sem ég hef rætt við segja það hafa
verið gott að ég endaði hjá honum. Hann er
með master í krossbandsslitum og vissi alveg
hvað hann var að gera,“ sagði María og hló.
Ný æfingaáætlun
María mun vitaskuld þurfa að vera þolinmóð
á næstu vikum en ekki er óvarlegt að ætla að
hún geti hugsanlega keppt á ný snemma á
næsta ári. „Endurhæfingarferlið breytist að-
eins hjá mér þar sem ég má fara á skíði. Ég er
komin með nýja æfingaáætlun í hendurnar.
Ennþá vantar svolítið upp á styrkinn í fram-
anverðu lærinu og ég á að gera þungar styrkt-
aræfingar annan hvern dag. Ég má sennilega
fara að skíða aftur í braut um miðjan desem-
ber ef allt gengur vel. Ég fer aftur í samskon-
ar próf um miðjan janúar eða í lok janúar. Þá
er ætlast til þess að styrkurinn verði orðinn
jafnmikill í báðum fótum. Þegar það verður
niðurstaðan má ég fara að keppa aftur,“ sagði
María Guðmundsdóttir sem keppir fyrir Skíða-
félag Akureyrar og hefur verið ein fremsta
skíðakona landsins undanfarin ár þrátt fyrir að
vera einungis 18 ára gömul.
María Guðmundsdóttir
fékk góðar fréttir í Osló
Fékk að stíga aftur á skíði Áframhaldandi endurhæfing fram í janúar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á batavegi María á hækjum eftir Skíðalandsmótið í vor ásamt föður sínum Guðmundi Sigurjónssyni.
Þeir AlfreðFinn-
bogason, Gylfi
Þór Sigurðsson
og Ragnar Sig-
urðsson hafa all-
ir orðið að draga
sig út úr íslenska
landsliðshópnum
sem mætir An-
dorra í æfingaleik í knattspyrnu á
miðvikudag vegna meiðsla. Garðar
Jóhannsson hefur verið kallaður
inn sem og Jón Daði Böðvarsson
eins og lesa má neðar á síðunni.
Ólafur Bjarki Ragnarsson skor-aði sjö mörk fyrir Emsdetten
sem er áfram á toppi þýsku B-
deildarinnar í handknattleik eftir
27:27-jafntefli við lærisveina Að-
alsteins Eyjólfssonar í Eisenach
um helgina. Emsdetten er með 19
stig, fjórum stigum á undan Eise-
nach sem er í 3. sæti. Þriðja Ís-
lendingaliðið, Bergischer, er í 2.
sæti eftir 31:28-útisigur á Hildes-
heim þar sem Arnór Þór Gunn-
arsson skoraði fjögur mörk.
Körfubolta-stórveldið
Los Angeles La-
kers hefur stað-
fest að viðræður
standi yfir við
þjálfarann sig-
ursæla Phil
Jackson um að
hann taki aftur
að sér þjálfun liðsins. Lakers sagði
þjálfaranum Mike Brown upp
störfum fyrir helgi vegna slaks
gengis en Lakers hefur aðeins unn-
ið einn af fimm leikjum sínum á
tímabilinu þrátt fyrir að hafa feng-
ið til sín stjörnur á borð við Steve
Nash og Dwight Howard í sumar.
Jackson yfirgaf Lakers sumarið
2011 af heilsufarsástæðum en hann
vann sex NBA-titla sem þjálfari
Chicago Bulls og bætti við fimm
sem þjálfari Lakers.
Eyjamaðurinn Tryggvi Guð-mundsson gengur í raðir
Fylkis á næstu dögum samkvæmt
vefmiðlinum 433.is en Tryggvi hef-
ur æft með og rætt við hin ýmsu
lið síðastliðnar vikur. Tryggvi, sem
varð í sumar markahæsti leik-
maður efstu deildar frá upphafi, er
án félags eftir að samningur hans
við ÍBV rann út eftir leiktíðina.
Hann var einnig í viðræðum við
Breiðablik og nýliða Þórs frá Ak-
ureyri en mun spila í Árbænum
næsta sumar.
Tveir ungir knattspyrnumenn,Adam Örn Arnarson úr
Breiðabliki og Daði Bergsson úr
Þrótti, eru á leið til hollenska liðs-
ins NEC Nijmegen en þeir fóru til
reynslu til liðsins fyrr á árinu. Pilt-
arnir flytja til Hollands í janúar
standist þeir læknisskoðun hjá lið-
inu.
Fólk sport@mbl.is