Morgunblaðið - 12.11.2012, Page 7
ÍÞRÓTTIR 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2012
Lionel Messi skoraði tvö mörk fyrir Barcelona
þegar liðið vann 4:2-útisigur á Mallorca í gær-
kvöldi í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu. Bör-
sungar eru því enn ósigraðir með 31 stig á toppi
deildarinnar eftir aðeins ellefu leiki.
Xavi og Cristian Tello skoruðu einnig fyrir
Börsunga, sem voru 3:0 yfir í hálfleik, en heima-
menn náðu að minnka muninn í 3:2 áður en
Messi skoraði sitt seinna mark.
Messi hefur nú skorað heil 76 mörk í 59 leikj-
um á árinu og þar með gert fleiri mörk á einu
almanaksári en sjálfur Pelé sem skoraði mest
75 mörk á einu ári á sínum ferli.
Metið á Þjóðverjinn Gerd Müller sem skoraði
85 sinnum í 60 leikjum árið 1972, en Messi getur
vitaskuld enn bætt það met.
Atlético Madrid vann Get-
afe 2:0 og er í 2. sæti deild-
arinnar með 28 stig en Real
Madrid er í 3. sæti með 23
stig eftir dramatískan 2:1-
útisigur á Levante. Hinn tví-
tugi Álvaro Morata skoraði
sigurmarkið þar með skalla
skömmu fyrir leikslok eftir
að hafa verið inni á vellinum
í eina mínútu. Cristiano Ro-
naldo skoraði fyrra mark Real en heimamenn
höfðu jafnað hálftíma fyrir leikslok.
sindris@mbl.is
Ung hetja Real og Messi náði Pelé
Álvaro
Morata
Molde, sem þjálfað er af fyrrverandi Man.
United-hetjunni Ole Gunnar Solskjær, fagnaði
í gærkvöldi sigri í norsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu annað árið í röð eftir sigur á Ís-
lendingaliðinu Hønefoss á heimavelli, 1:0.
Strømsgodset var eina liðið sem gat gert
Molde skráveifu í lokaumferðinni færi svo að
strákarnir hans Oles Gunnars myndu leggja
Arnór Svein Aðalsteinsson og Kristján Örn
Sigurðsson og félaga að velli en Strømsgodset
tapaði fyrir öðru Íslendingaliði, Sandnes Ulf.
„Þetta er frábært. Strákarnir voru stað-
ráðnir í að klára þetta í kvöld. Nú erum við
búnir að sýna að það er hægt að vinna deildina
tvö ár í röð,“ sagði Ole Gunnar kampakátur í
viðtali við TV2 í Noregi eft-
ir leikinn.
Ole Gunnar hefur verið
orðaður við stjórastöður á
Englandi vegna árangurs
síns með Molde en hann
hefur nú unnið tvo meist-
aratitla á fyrstu tveimur ár-
um sínum sem þjálfari í
meistaraflokki. Þá er Molde
komið með fleiri stig en það
fékk í fyrra.
„Það er nokkuð sterkt. Það eru bara fjögur
lið sem hafa fengið svona mörg stig,“ sagði Ole
Gunnar Solskjær. tomas@mbl.is
Tveir Noregstitlar í röð hjá Solskjær
Ole Gunnar
Solskjær
FÓTBOLTI
Tómas Þór Þórðarson
tomas@mbl.is
Javier Hernández Balcázar, betur
þekktur sem Chicharito eða litla
baunin, getur ekki hætt að skora
þessa dagana fyrir Manchester
United en hann var hetja liðsins í
enn einni endurkomunni um
helgina.
Eftir að hafa spilað illa gegn
Aston Villa og lent undir, 2:0, eftir
50 mínútur tók Mexíkóinn knái til
sinna ráða. Hann hafði komið inná
sem varamaður í byrjun seinni hálf-
leiks og kom United á bragðið á 58.
mínútu. Fimm mínútum síðar var
hann réttur maður á réttum stað en
fékk hjálp frá Ron Vlaar, miðverði,
Villa sem skaut boltanum í eigið net.
Endurkoman og frammistaða Hern-
ández var svo fullkomnuð á 88. mín-
útu þegar hann skallaði aukaspyrnu
Robins van Persie í netið. Þrjú stig í
hús, Man. United áfram á toppnum
og ekkert lát á velgengni Mexíkó-
ans.
Sjö mörk í fimm leikjum
Chicharito hafði legið í dvala í
nokkurn tíma en stuðningsmenn
Man. United voru orðnir langeygir
eftir góðri spilamennsku og mörkum
framherjans unga sem sló í gegn á
sínu fyrsta tímabili.
Hann bauð svo góðan daginn þeg-
ar hann skoraði einnig tvö mörk í
annarri endurkomu gegn Braga í
Meistaradeildinni þar sem Man.
United lenti einnig tveimur mörkum
undir. Hernández hélt upp á þá
frammistöðu með sigurmarki gegn
Chelsea í eftirminnilegum leik eftir
að hafa komið inná sem varamaður.
Áfram hélt Hernández að skora
en hann setti eitt í deildabik-
arleiknum gegn Chelsea og svo eitt
skrautlegt mark gegn Braga í vik-
unni. Chelsea og Braga eru greini-
lega lið sem Mexíkóanum líkar vel
að spila á móti.
„Hann verður í byrjunarliðinu í
næsta leik,“ sagði Sir Alex Fergu-
son, knattspyrnustjóri Man. United,
eftir frammistöðu Hernández gegn
Aston Villa. Þegar þú skorar þrennu
ertu að velja þig sjálfur í liðið í
næsta leik. Hann hefur verið fersk-
ur á tímabilinu eftir gott sumarfrí.
Það skipti hann miklu máli. Hann er
að gera hlutina sem við sáum þegar
hann kom til okkar fyrst,“ sagði Sir
Alex.
Sæti Hughes orðið sjóðheitt
Þegar ellefu, já ellefu!, leikjum er
lokið í ensku úrvalsdeildinni eru enn
tvö lið sem hafa ekki unnið leik. Það
eru QPR, fékk ekki til sín nema
þrettán nýja leikmenn, og nýliðar
Reading, sem voru ekki jafnöflugir á
leikmannamarkaðnum.
Ellefu leikir eru 990 mínútur af
fótbolta fyrir þá sem ekki eru með
vasareikni við höndina. Á ein-
hverjum tímapunkti hljóta lið að
grísa á einn sigur en það verður ekki
sagt um þessi lið. Reading virðist al-
veg ófært um að vinna leik og þegar
QPR er í góðri stöðu fær vanalega
einhver í liðinu rautt spjald.
Nú síðast tapaði QPR fyrir Stoke
og vilja margir sparkspekingar
meina að Mark Hughes, knatt-
spyrnustjóri liðsins, fái að taka pok-
ann sinni vinni liðið ekki nýliða
Southampton í næstu umferð. Þá
geti Tony Fernandes, eigandi og
stjórnarformaður QPR, einfaldlega
ekki gefið Walesverjanum fleiri
stuðningsyfirlýsingar.
„Þetta hefur verið erfitt fyrir alla
hjá félaginu. En við verðum bara að
vera sterkir og reyna komast í gegn-
um þennan erfiða kafla,“ sagði Mark
Hughes niðurlútur eftir tapið gegn
Stoke um helgina.
„Önnur lið munu líka ganga í
gegnum svona erfiða tíma þannig að
þetta snýst bara um að halda haus
og reyna að komast að því hvað er í
gangi,“ sagði Mark Hughes enn-
fremur.
„Litla baunin“ vöknuð
Javier „Chicharito“ Hernández kominn úr dvala og hættir ekki að skora
QPR og Reading hafa ekki enn unnið leik í ensku úrvalsdeildinni
AFP
Markheppinn Javier Hernández er markheppinn með eindæmum en hann er búinn að skora 7 mörk í 5 leikjum.
Steinþór FreyrÞor-
steinsson lék
fram í uppbót-
artíma Sandnes
Ulf sem lyfti sér
upp úr fallsæti í
norsku úrvals-
deildinni í knatt-
spyrnu í gær-
kvöldi með sigri á Strømsgodset, 2:1.
Arnór Ingvi Traustason kom inná
sem varamaður fyrir Sandnes en
Óskar Örn Hauksson sat allan tím-
ann á varamannabekknum.
Hønefoss tapaði fyrir Molde, 1:0,þar sem Arnór Sveinn Að-
alsteinsson og Kristján Örn Sig-
urðsson spiluðu allan leikinn. Høne-
foss og Sandnes eru bæði í fallhættu
fyrir lokaumferðina en bæði eru í
hættu á að fara beint niður um deild
eða lenda í þriðja neðsta sæti og
þurfa að spila umspilsleiki um
áframhaldandi veru í efstu deild.
Þökk sér Sta-bæk er
Sogndal nú í um-
spilssætinu en
Bjarni Ólafur Ei-
ríksson lagði upp
annað mark Sta-
bæk í 2:1-sigri
gegn Sogndal í
gærkvöldi. Veig-
ar Páll Gunnarsson var í byrj-
unarliðinu en var tekinn af velli und-
ir lok leiksins. Elfar Freyr Helgason
sat allan tímann á varamannabekkn-
um en Stabæk er fyrir löngu fallið í
B-deildina.
Pálmi Rafn Pálmason skoraði fyr-ir Lilleström sem vann Våle-
renga, 2:1, í norsku úrvalsdeildinni í
gærkvöldi. Sigurmarkið skoraði
Pálmi Rafn á 68. mínútu en Lille-
ström siglir lygnan sæ um miðja
deild.
GuðmundurKrist-
jánsson skoraði
mark Start sem
tapaði fyrir No-
todden, 2:1, í
lokaumferð
norsku B-
deildarinnar í fót-
bolta í gær en
Guðmundur kom Start yfir í leikn-
um. Start var fyrir umferðina búið
að vinna deildina og leikur á meðal
þeirra bestu á næsta ári. Matthías
Vilhjálmsson missti af markakóngs-
titlinum til Martins Wiig sem skor-
aði tvö mörk í sigri Sarpsborg. Matt-
hías endaði tímabilið samt sem áður
með 18 mörk.
Gylfi Þór Sigurðsson ónotaðurvaramaður annan leikinn í röð
hjá Tottenham sem tapaði fyrir
Englandsmeisturum Man. City, 2:1,
í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Gylfi hefur aðeins byrjað inná í ein-
um af síðustu sex leikjum Totten-
ham eftir að vera fastamaður í byrj-
unarliðinu í upphafi tímabilsins.
Fólk sport@mbl.is
Tómas Þór Þórðarson
tomas@mbl.is
Tveir menn sem þekkja það báðir að vera í
umræðunni fyrir allt annað en fótbolta, John
Terry og Luis Suárez, létu verkin tala þegar
lið þeirra Chelsea og Liverpool skildu jöfn,
1:1, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær-
kvöldi.
Terry var að snúa aftur úr fjögurra leikja
banni fyrir að beita Anton Ferdinand kyn-
þáttaníði og hann mætti aftur til starfa með
látum. Fyrirliðinn kom Chelsea yfir með
skallamarki eftir hornspyrnu á 20. mínútu.
Terry náði þó ekki að
klára hálfleikinn því hann
var borinn af velli vegna
meiðsla á 39. mínútu.
Ramires, liðsfélagi Terrys,
felldi Suárez með þeim af-
leiðingum að hann féll með
allan þungann ofan á löpp
Terrys sem lá sárþjáður eft-
ir og gat ekki haldið áfram
keppni.
„Terry er enn hér á Stam-
ford Bridge,“ sagði Roberto Di Matteo, knatt-
spyrnustjóri Chelsea, eftir leikinn en fyrirlið-
anum var ekki ekið rakleiðis á sjúkrahús.
„Þetta er mikil synd fyrir Terry sem var
bara að koma aftur eftir leikbann. Ég vona að
meiðslin séu ekki alvarleg,“ sagði Ítalinn en
Terry mun fara í myndatöku á hnénu í dag
og þá kemur væntanlega í ljós hversu lengi
hann verður frá.
Luis Suárez jafnaði metin fyrir Liverpool í
seinni hálfleik með skallamarki eftir stoð-
sendingu frá Jamie Carragher. Úrúgvæinn er
búinn að skora átta mörk í ensku úrvalsdeild-
inni og er markahæstur ásamt Hollend-
ingnum Robin van Persie hjá Manchester
United.
Terry sneri aftur, skoraði og meiddist
Suárez óvart skaðvaldur Terrys og er orðinn markahæstur ásamt Robin van Persie
John
Terry