Morgunblaðið - 04.01.2013, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.01.2013, Blaðsíða 1
FÓTBOLTI Víðir Sigurðsson vs@mbl.is „Ég get ekki séð fyrir mér að ég verði ennþá hérna hjá Wolves þegar þessi janúarmánuður er á enda. Ég vil fara að spila fótbolta reglulega enda er leið- inlegt að vakna á laugardagsmorgnum og eiga eng- an leik fyrir höndum þann daginn,“ sagði Eggert Gunnþór Jónsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, við Morgunblaðið í gær. „Ég og umboðsmaðurinn minn erum að vinna í því að losna héðan og miðað við fyrstu viðbrögð for- ráðamanna Wolves þá sýna þeir minni stöðu skiln- ing og verða vonandi ekki of erfiðir þegar á reynir.“ Eggert, sem er 24 ára gamall miðjumaður frá Eskifirði, kom til enska félagsins Wolves um síð- ustu áramót, frá Hearts í Skotlandi, og er samn- ingsbundinn þar til vorsins 2014. Eggert lék aðeins þrjá leiki með Úlfunum í úrvalsdeildinni til vorsins, og undir stjórn nýs stjóra, Norðmannsins Ståle Sol- bakken, hefur hann verið úti í kuldanum og aðeins komið við sögu í einum leik í B-deildinni á tíma- bilinu. Eggert var lánaður til Charlton í sömu deild í nóvember og spilaði tvo leiki, þannig að allt árið 2012 lék hann aðeins sex deildaleiki. Það voru mikil viðbrigði eftir að hafa verið fastamaður í liði Hearts í hálft fimmta ár. Eggert spilaði fleiri landsleiki en deildaleiki á árinu 2013 því hann kom við sögu í sjö af tíu A- landsleikjum Íslands á nýliðnu ári. Fyrsta alvöru mótlætið á ferlinum „Þetta var mjög svekkjandi ár í heildina, hrein- lega leiðinlegt, en nú er komið nýtt ár og ég vonast til þess að geta rifið ferilinn aftur í gang með því að skipta um lið. Þetta er fyrsta alvöru mótlætið sem ég hef lent í á ferlinum og eflaust nýtist þessi reynsla mér síðar meir,“ sagði Eggert en hjá Úlf- unum hefur allt gengið á afturfótunum. „Þetta hefur gengið hrikalega illa. Miðað við mannskapinn, og að liðið féll úr úrvalsdeildinni, ætti það að vera í miklu betri stöðu í þessari deild. En hún er reyndar geysilega jöfn, við erum sex stigum frá fallsæti en um leið aðeins níu stigum frá umspilssæti, þannig að með einum góðum mánuði er hægt að snúa blaðinu við. En liðið hefur tapað þremur síðustu leikjum illa, spilamennskan er ekki góð og mórallinn frekar slæmur,“ sagði Eggert, sem hefur setið á varamannabekknum leik og leik að undanförnu. „Það hefur svo sem engu máli skipt. Þó hann hafi stöku sinnum valið mig í hópinn þá sé ég engar lík- ur á að hann setji mig inná, sama hvað ég geri.“ Möguleiki hjá Charlton? Eggert var hjá Charlton í einn mánuð, eins og áður sagði, og þar líkaði honum lífið. „Það var góð- ur tími, ég var reyndar óheppinn því ég meiddist strax og var frá í eina til tvær vikur. Svo þegar ég náði mér var félagið líka búið að fá Emmanuel Frimpong lánaðan frá Arsenal. En það var gaman hjá Charlton, sem er mjög flottur klúbbur, og ég býst við því að eiga jafnvel möguleika á samningi þar. Stjórinn Chris Powell er úrvalsmaður og hann sagði við mig þegar ég fór að hann ætlaði að athuga með mig í janúar. En ég veit ekkert hvort eitthvað verður af því eða hvert ég fer. En ég geri fastlega ráð fyrir því að verða kominn í annað lið um næstu mánaðamót,“ sagði Eggert Gunnþór Jónsson. Leiðinlegt að vakna á laugardagsmorgni án leiks  Eggert Gunnþór Jónsson lék fleiri leiki með landsliði Íslands en með félagslið- um á árinu 2012  Vonast til að vera farinn frá Wolves fyrir næstu mánaðamót Morgunblaðið/Ómar Leiðindaár Eggert Gunnþór Jónsson í baráttu við svissneska miðjumanninn Gökhan Inler í landsleik þjóðanna í haust. Eggert segir að leiðinlegt ár sé að baki og hann vonist eftir öðru og betra ári 2013. FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2013 ÍÞRÓTTIR Körfubolti Íslandsmótið hefst á ný í kvöld eftir jólafríið. Þórsarar frá Þorlákshöfn eru á toppnum og taka á móti Skallagrími. Guðmundur Jónsson segir að liðið sé betra en í fyrra þegar það lék óvænt til úrslita. 4 Íþróttir mbl.is Rory McIlroy, besti kylfingur heims um þess- ar mundir, segir að svo geti farið að hann sleppi því að fara á Ól- ympíuleikana í Río de Janeiro árið 2016, en þá verður keppt í golfi á leikunum á ný, í fyrsta sinn í 112 ár. McIlroy sagði við BBC í gær að hann væri kominn í klípu því hann yrði að velja á milli þess að keppa fyrir Bretland eða Írland. Hann er frá Norður-Írlandi, sem er ekki sjálfstæð þjóð og því ekki með keppnisrétt sem slík á Ól- ympíuleikum, og því getur McIlroy hvort sem er keppt fyrir Breta eða Íra. Hef þrjá kosti í stöðunni „Ég er í afar erfiðri stöðu. Mér finnst ég vera norðurírskur, og þar með er ég tengdur Írlandi, en um leið tengdur Bretlandi. Ég vildi að það væri hægt að senda norðurírskt lið á leikana, þá myndi ég keppa fyrir það. Ég hef þrjá kosti til að velja á milli, keppa fyrir aðra hvora þjóðina eða sleppa því að fara svo ég valdi ekki of mörgum hugar- angri. Nú þarf ég að skoða alla þessa möguleika mjög vel,“ sagði McIlroy sem er efstur á heimslist- anum og vann það einstaka afrek á árinu 2012 að verða efstur á peningalistum íþróttarinnar, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Á síðasta ári varð talsvert upp- nám vegna fréttar í ensku dag- blaði þar sem fullyrt var að McIlroy myndi helst vilja spila fyrir hönd Breta á Ólympíu- leikunum í Ríó. vs@mbl.is Sleppir Rory McIlroy ÓL í Ríó 2016? Rory McIlroy Þjóðverjar sigr- uðu Svía, 26:20, í vináttulandsleik karla í hand- knattleik sem fram fór í Växjö í Svíþjóð í gær- kvöld. Staðan í hálfleik var 10:10. Þjóðverjar búa sig undir úr- slitakeppni HM á Spáni en þar eru þeir í hópi mögulegra andstæðinga Íslendinga í 16 liða úrslitum, ef bæði liðin komast þangað. Svíar eru hinsvegar ekki að fara neitt því þeir voru slegnir út af Svartfell- ingum í umspilinu síðasta sumar. Markverðirnir Silvio Heinevetter hjá Þjóðverjum og Andreas Palicka hjá Svíum voru útnefndir bestu menn sinna liða í leikslok. vs@mbl.is Þýskur sigur gegn Svíum Silvio Heinevetter Handknattleiksmaðurinn Kristinn Björgúlfsson, færði sig í gær frá Hollandi til Þýskalands. Krist- inn fékk sig lausan frá hollenska liðinu Hurry Up og mun spila fram á vorið með þýska liðinu VFL Fredenbeck í norðurriðli 3. deildar. Kristinn sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær hafa lent upp á kant við þjálfara Hurry Up sem tók við liðinu fyrir þetta tímabil af bróður sín- um. „Leikmenn fengu að tjá sig á fundi og þar sagði ég mínar skoðanir á þjálfun liðsins. Ég var tekinn í blaðaviðtal skömmu síðar og sagði þá það sama og ég sagði á fundinum. Það varð til þess að ég var settur upp í stúku. Ef ég hefði lýst slíkum skoðunum við íslenskan þjálfara hefði slíkt aldrei orðið stórmál,“ sagði Kristinn sem verður annar Íslendingurinn til að spila Fredenbeck en stór- skyttan Héðinn Gilsson spilaði með liðinu í 2. deild tímabilið 1996-1997. „Eftir að hafa byrjað tímabilið mjög vel lenti liðið í miklum vandræðum meðal annars vegna meiðsla. Fredenbeck er núna í 13. sæti af sextán liðum og er því í fallbaráttu eins og er,“ sagði Kristinn. Spurður um hvort hann fari heim í ÍR og sláist í hópinn með gömlu samherjunum útilokar hann það ekki. „Planið er að koma heim í ÍR og það gerist einn daginn. Spurningin verður bara hvort rétti tíminn til þess verði í vor.“ kris@mbl.is Kristinn fetar í fótspor Héðins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.