Morgunblaðið - 02.02.2013, Síða 1
LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2013
ÍÞRÓTTIR
Super Bowl Úrslitaleikur San Francisco 49ers og Baltimore Ravens fer fram í New Orleans annað kvöld. Aldrei
áður hafa bræður mæst sem þjálfarar liðanna. Stærsti íþrótta- og sjónvarpsviðburðurinn vestanhafs. 4
Íþróttir
mbl.is
Jón Arnar Ingvarsson, þjálfari ÍR í Dominos-
deildinni í körfubolta, lét af störfum hjá liðinu í
gærkvöldi en þetta kom fram á körfubolta-
vefnum karfan.is.
Á vefnum segir Viðar Friðriksson, formaður
körfuknattleiksdeildar ÍR, að stjórnin og Jón
Arnar skilji „í mesta bróðerni“ en liðið er á botni
deildarinnar.
ÍR tapaði á fimmtudaginn ellefta leiknum í
Dominos-deildinni þegar liðið steinlá fyrir
Njarðvík með 17 stigum á heimavelli, 98:81.
Þetta var sjötti tapleikur ÍR í röð í Dominos-
deildinni en það hefur ekkert gengið hjá liðinu í
vetur.
ÍR-ingar ætluðu sér
stóra hluti enda búnir að fá
sterka menn heim á borð
við Hreggvið Magnússon.
Eftir fjórtán umferðir er
liðið aftur á móti á botni
Dominos-deildarinnar með
sex stig eins og Tindastóll.
Steinar Arason, aðstoð-
arþjálfari ÍR, stýrir æfing-
um hjá liðinu þar til nýr
þjálfari hefur verið ráðinn.
ÍR mætir næst Skallagrími á heimavelli á
fimmtudaginn kemur. tomas@mbl.is
Jón Arnar hætti hjá ÍR
Ekkert gengið hjá ÍR-ingum í vetur
Jón Arnar
Ingvarsson
FRJÁLSAR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Akureyringurinn Kolbeinn Höður Gunn-
arsson úr Ungmennafélagi Akureyrar setti
Íslandsmet í 400 metra hlaupi innanhúss á
Stórmóti ÍR í Laugardalshöllinni. Kolbeinn
er aðeins 17 ára gamall og náði um leið lág-
marki fyrir EM 19 ára og yngri í sumar.
Kolbeinn hljóp á 48,03 sekúndum og
bætti Íslandsmetið um tvö sekúndubrot.
Metið var ekki nema ársgamalt og var í
eigu Trausta Stefánssonar sem nú er við
æfingar í Svíþjóð. Kolbeinn hjó nærri lág-
markinu fyrir EM fullorðinna innanhúss og
segist nú hafa sett stefnuna á að vinna sér
þátttökurétt á því móti en til þess hefur
hann nokkrar vikur.
„Ég er aðeins þremur hundruðustu frá
lágmarkinu og það þarf ekki mikið til að ná
því. Ég trúi ekki öðru en að ég eigi helling
inni og vonast eftir því að komast niður
fyrir 48 sekúndur áður en veturinn er lið-
inn. Það væri bæði frekari bæting á metinu
en einnig lágmark fyrir EM innanhúss.
Vonandi kemur þetta núna um helgina en
ef ekki þá hef ég nokkrar vikur til að ná
lágmarkinu. Nú er stefnan bara að ná
þessu lágmarki og það verður allt gefið í
það,“ sagði Kolbeinn þegar Morgunblaðið
hafði samband við hann í gær en hann
verður á fleygiferð um helgina á Meist-
aramóti Íslands 15-22 ára í Laugardalshöll-
inni. Þar ætlar hann einnig að keppa í 60
metra og 200 metra hlaupi en segist al-
mennt séð leggja mesta áherslu á 400
metra hlaupið.
Bjóst ekki við svo mikilli bætingu
„Ég stefni á að vinna allar greinar sem
ég tek þátt í. MÍ fer fram eftir viku og þar
stefni ég einnig á að vinna allar mínar
greinar,“ sagði Kolbeinn brattur en við-
urkennir að þótt hann sé í bætingarformi
þá hafi hann ekki búist við jafn mikilli bæt-
ingu í janúar og raunin varð á Reykjavík-
urleikunum.
„Ég hef undirbúið mig í allan vetur en
árangurinn var framar björtustu vonum. Ég
bjóst við bætingu en ekki svona mikilli. Enn
sem komið er hef ég verið að bæta mig um
hverja helgi og vonandi heldur það bara
áfram. Ég er í góðu líkamlegu formi og ég
trúi því ekki að ég sé búinn að toppa nú
þegar en það verður náttúrlega bara að
koma í ljós,“ sagði Kolbeinn ennfremur en
margt af efnilegasta frjálsíþróttafólki lands-
ins verður á meðal keppenda í Laugardals-
höllinni um helgina og má þar nefna Stef-
aníu Valdimarsdóttur, Sveinbjörgu
Zophoníasdóttur, Anítu Hinriksdóttur, Örnu
Stefaníu Guðmundsdóttur og Matthildi Ylfu
Þorsteinsdóttur,
Nóg af mótum í sumar
Kolbeinn segir að eins og staðan sé núna
sé útlit fyrir að EM 19 ára og yngri í sumar
verði hápunktur ársins hjá honum á hlaupa-
brautinni en mótið fer fram á Ítalíu. „Það
verður líklega stærsta mót ársins hjá mér
og vonandi geri ég góða hluti þar. Ég kem
einnig til með að fara á mót í Þýskalandi og
á Gautaborgarleikana. Ég mun einnig
keppa fyrir Ísland í Evrópubikarnum. Við
vonumst til að tefla fram sterku liði og
komast upp um deild. Ég mun því væntan-
lega hafa nóg að gera í sumar,“ sagði Kol-
beinn Höður Gunnarsson í samtali við
Morgunblaðið.
Stefnir á EM innanhúss
Sautján ára gamall Akureyringur sló Íslandsmetið í 400 metra hlaupi innanhúss á Stórmóti ÍR
Kolbeinn Höður Gunnarsson stefnir að því að bæta metið enn frekar á næstu vikum
Morgunblaðið/Golli
Methafi Kolbeinn Höður Gunnarsson á sprettinum á Reykjavíkurleikunum.
Kolbeinn Höður Gunnarsson
» Hlaupari frá Akureyri sem verður 18
ára í sumar og er nemandi í MA.
» Setti á dögunum Íslandsmet í 400
metra hlaupi þegar hann hljóp á 48,03
sekúndum á Stórmóti ÍR.
» Náði lágmarki fyrir EM 19 ára og yngri
í sumar og er nálægt lágmarki fyrir EM
fullorðinna innanhúss.
» Keppir á Meistaramóti Íslands fyrir 15-
22 ára um helgina ásamt mörgu öðru
efnilegasta frjálsíþróttafólki landsins.
Sundsvall Dragons tapaði óvænt fyrir nýlið-
um KFUM Nässjö, 81:76, þegar liðin mætt-
ust í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik
í gærkvöld. Nässjö situr á botni deild-
arinnar og komst ekki þaðan þrátt fyrir sig-
urinn en Sundsvall er með fjögurra stiga
forskot í deildinni þrátt fyrir tapið.
Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur
hjá Sundsvall með 21 stig og hann tók jafn-
framt sex fráköst og spilaði í 37 mínútur af
40. Hlynur Bæringsson lék í 30 mínútur og
skoraði aðeins fimm stig, en tók 12 fráköst,
en hann fór af velli með fimm villur fyrir
lokakafla leiksins, ásamt tveimur öðrum
leikmönnum Sundsvall.
Peter Öqvist, þjálfari
Sundsvall og íslenska
landsliðsins, sagði eftir
leikinn að vonandi yrði
hann góð áminning fyrir
sína menn.
Pavel Ermolinskij tók
10 fráköst og skoraði tvö
stig fyrir Norrköping
Dolphins sem lagði Söder-
tälje Kings, 78:71, og er í
5. sæti með 32 stig. Pavel spilaði í 25 mín-
útur. vs@mbl.is
Óvænt tap Sundsvall
Jakob stigahæstur en botnliðið vann toppliðið
Jakob Örn
Sigurðarson