Morgunblaðið - 02.02.2013, Qupperneq 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2013
Phil Mickel-son púttaði
fyrir 59 höggum á
9. holunni á Scott-
sdale í Arizona
þegar Opna
Phoenix-mótið
hófst á PGA-
mótaröðinni í vik-
unni en Mickel-
son hóf leik á 10. teig. Boltinn vildi
hins vegar ekki fara í holuna í það
skipti og Mickelson skilaði því inn 60
höggum sem er frábær frammistaða.
SA Ásynjur héldu áfram sigur-göngu sinni á Íslandsmóti
kvenna í íshokkí í fyrrakvöld þegar
þær unnu Björninn örugglega, 11:2,
á Akureyri. Ásynjurnar hafa ekki
tapað leik og eru með 34 stig eftir 12
leiki. SA Ynjur eru með 14 stig eftir
8 leiki, Björninn 9 stig eftir 10 leiki
en SR hefur tapað öllum 8 leikjum
sínum. Þær Hrund Thorlacius,
Birna Baldursdóttir og Anna
Ágústsdóttir skoruðu tvö mörk hver
fyrir Ásynjurnar í leiknum.
Úrvalsdeildarlið Selfoss í knatt-spyrnu kvenna hefur fengið
liðsauka fyrir sumarið því Andrea
Ýr Gústavsdóttir, sem lék með ÍBV í
fyrra, er komin til liðs við félagið.
Andrea er uppalin í Val en lék einnig
með Aftureldingu og Breiðabliki í
efstu deild áður en hún gekk til liðs
við ÍBV fyrir síðasta tímabil. Hún er
21 árs og á að baki 56 leiki í efstu
deild, og þá hefur hún spilað 27 leiki
með yngri landsliðum Íslands. Þá er
staðfest að bandaríski leikmaðurinn
Valorie O’Brien spili áfram með Sel-
fyssingum en hún var í stóru hlut-
verki hjá liðinu í fyrra þegar það
kom mjög á óvart og hélt sæti sínu í
deildinni, þar sem það lék í fyrsta
skipti.
Matthías Vil-hjálmsson
hóf undir-
búningstímabilið
með Start, nýlið-
unum í norsku
úrvalsdeildinni í
knattspyrnu, eins
og best verður á
kosið. Start vann
B-deildarlið Bryne, 3:0, í fyrsta æf-
ingaleiknum í gær og Matthías skor-
aði tvö markanna og lagði eitt upp.
Hann gerði 18 mörk í 30 leikjum fyr-
ir liðið í fyrra þegar það vann sann-
færandi sigur í B-deildinni en Guð-
mundur Kristjánsson leikur einnig
með Start.
Knattspyrnumaðurinn HlynurAtli Magnússon er genginn til
liðs við Þórsara á Akureyri og skrif-
ar undir tveggja ára samning við þá
um helgina. Hlynur Atli er 22 ára,
varnar- eða miðjumaður, sem hefur
leikið með Fram allan sinn feril en er
laus allra mála þaðan eftir úrskurð
samninga- og félagaskiptanefndar
KSÍ á dögunum þar sem honum var
heimilað að rifta samningi sínum við
Safamýrarfélagið. Hlynur á að baki
52 leiki með Fram í efstu deild, þar
sem hann hefur skorað tvö mörk, og
hann hefur spilað með U21 og U19
ára landsliðum Íslands.
Enska knatt-spyrnu-
sambandið hefur
staðfest að Eden
Hazard, belgíski
kantmaðurinn hjá
Chelsea, fari í
þriggja leikja
bann vegna rauða
spjaldsins í leikn-
um við Swansea á
dögunum þegar hann sparkaði í
boltastrák sem vildi ekki skila bolt-
anum af sér undir lok leiksins. Bann-
ið verður því ekki þyngt en þriggja
leikja bann er hefðbundinn úrskurð-
ur fyrir að fá beint rautt spjald.
Fólk sport@mbl.is
Líkt og í fyrra hefur Skautafélagið Björninn fengið
liðsstyrk fyrir lokasprettinn á Íslandsmótinu í ís-
hokkí. Gunnar Guðmundsson, fyrrverandi fyrirliði,
og landsliðsmaðurinn Róbert Freyr Pálsson eru
búnir að hafa félagaskipti frá danska félaginu Ama-
ger yfir í Björninn.
Gunnar og Róbert skiptu yfir í Íslendingaliðið
Amager í Kaupmannahöfn úr Birninum haustið
2011 en liðið var þá þjálfað af Olaf Eller, þáverandi
landsliðsþjálfara Íslands. Hann tók síðar við liði
Esbjerg í efstu deild. Gunnar og Róbert komu heim
eftir áramót í fyrra og styrktu lið Bjarnarins tals-
vert á lokaspretti mótsins ásamt Úlfari Jóni Andr-
éssyni. Björninn sigraði þá Skautafélag Reykjavík-
ur 3:1 í úrslitarimmunni og tryggði sér sinn fyrsta
meistaratitil. Þeir fóru aftur út í haust til Amager
og eru nú aftur komnir heim til að taka þátt í tit-
ilvörn Bjarnarins sem reyndar
hefur gengið vel því liðið er í
efsta sæti deildarinnar. Björninn
og Skautafélag Akureyrar koma
til með að berjast um titilinn í úr-
slitarimmunni og ljóst er að
koma Gunnars og Róberts eykur
breiddina hjá liðinu.
Landsliðsmennirnir Jón Bene-
dikt Gíslason og Jónas Breki
Magnússon leika hins vegar
áfram með Amager út keppnis-
tímabilið. Jón hefur verið atkvæðamikill að und-
anförnu en hann var einnig kosinn leikmaður ársins
hjá félaginu í fyrra. Brynjar Þórðarson var einnig
hjá Amager en hefur ekkert getað beitt sér í vetur
vegna meiðsla. kris@mbl.is
Gunnar og Róbert aftur í Björninn
Gunnar
Guðmundsson
markinu. Hann varði 20 skot í leiknum.
Þegar fjórar mínútur voru eftir munaði þremur
mörkum á liðunum en ótímabær skot Stjörnu-
manna undir lokin urðu gestunum endanlega að
falli.
Markahæstir hjá Víkingi voru þeir Jóhann
Gunnlaugsson og Hlynur Matthíasson sem skor-
uðu fimm mörk hvor en Jón Hjálmarsson skoraði
fjögur mörk eins og hornamaðurinn Egill Björg-
vinsson. Víglundur Jarl Jóhannsson, leikstjórn-
andi Stjörnunnar, skoraði sex mörk og var at-
kvæðamestur sinna manna.
Í Grafarvogi vann Selfoss svo auðveldan sigur á
Fjölni, 27:18, en aðeins munaði tveimur mörkum á
liðunum í hálfleik, 13:15. Einar Sverrisson var
markahæstur Selfyssinga en hann skoraði sjö
mörk í leiknum. tomas@mbl.is
s á toppliðinu
Gunn hittir úr sínum fyrsta þristi og
fær víti að auki og síðan er dæmd
tæknivilla á Brynjar og Maggi skorar
sex stig á sömu sekúndunni, staðan
77:85. Strax í kjölfarið setur Maggi
níunda stig sitt í röð og Valur snið-
skot og leiknum í raun lokið þegar
rúmar tvær mínútur voru eftir. Farg-
ið var of þungt fyrir KR-inga að lyfta
og eftirleikur auðveldur fyrir gestina.
Gríðarlega sterkur útisigur hjá
Keflavík; eftir hræðilega byrjun kom
liðið til baka og afgreiddi leikinn á
nánast sömu sekúndunni á lokakafla
leiksins. Liðið var mjög dapurt í upp-
hafi en sóknarbaráttan skilaði því
sigrinum; 19 sóknarfráköst segja sína
sögu. Eftir að hafa verið ósýnilegur
kom Maggi og kláraði leikinn þegar á
reyndi og þakkaði KR-ingum fyrir
kyndinguna sem þeir létu vaða á netið
fyrir leikinn (það er mikilvægt að
þekkja andstæðinginn!). Craion,
Lewis og Babtist voru frábærir (78
stig og 35 fráköst!); þeir smíðuðu
kistuna og Maggi rak síðasta nagl-
ann.
KR í hlutlausum
KR-ingar byrjuðu leikinn í frábær-
um gír en voru svo komnir í hlut-
lausan á lokamínútunum. Fjórði hlut-
inn var algjör martröð; leikmenn í
tómu rugli í sókninni og áttu engin
svör við þríeykinu hinum megin.
Brynjar og Helgi fundu aldrei sókn-
arfjölina sína og í fjórða hluta voru
sóknaraðgerðir oft undarlegar í besta
falli. Erlendir leikmenn liðsins voru
ekki sannfærandi; Richardson var
góður í vörninni í upphafi leiks en það
dró af honum, McClellan var skelfi-
legur í vörninni og frákastaði illa en
var með 100% skotnýtingu! KR gaf
sér gott tækifæri til að vinna leikinn
með góðri baráttu en vitleysisgang-
urinn í lokin gengur ekki upp gegn
svona nautsterku Keflavíkurliði. KR-
ingar voru greinilega tilbúnir að spila
leikinn, eins og upphafið sýndi, en svo
sannarlega ekki tilbúnir að klára
hann og sigra.
Magnús Þór rak síðasta
naglann í vel smíðaða kistu
Frábær endasprettur Keflavíkur tryggði liðinu sigur, 100:85, gegn KR
Morgunblaðið/Kristinn
Barátta Það var hart tekist á í DHL-höllinni í gær en menn komust upp með eitt
og annað. Keflvíkingar voru sterkari á endasprettinum og unnu góðan sigur.
Í VESTURBÆNUM
Kristinn Friðriksson
sport@mbl.is
Einn einn stórleikinn rak á fjörur í
Skerjafirðinum í gær þegar Keflvík-
ingar heimsóttu KR; liðin jöfn að stig-
um, 2.000 augu að góna og undir niðri
kraumaði spenna þeirrar tegundar
sem Hitchcock gerði ódauðlega í
sturtuatriði Janet Leigh. Bæði lið
buðu upp á frábær tilþrif og skemmti-
legan leik sem gestirnir unnu, 85:100,
eftir skelfilegan kafla heimamanna á
lokamínútum leiksins.
Jafnaðarstemning
KR byrjaði vel á meðan gestirnir
virkuðu hálfrænulausir. Hraðinn mik-
ill og baráttan meiri. Sóknarleikur
Keflvíkinga átti erfitt gegn ferskum
fótum KR-inga, sem mættu grjót-
harðir. Vörn Keflavíkur var hræðileg
í upphafi; menn alveg á hælunum og
seinir aftur í vörn. Á vængjum yf-
irburðaferskleika tóku KR-ingar
völdin á vellinum og náðu mest 11
stiga forskoti en með stórbættum
sóknarleik og frákastabaráttu náði
Keflavík að setja leikinn á parið; stað-
an í hálfleik 45:43 í yndislegum bolta-
leik.
Jafnaðarstemningin hélst; fagur-
fræði boltans varð eftir inni í búnings-
herbergjum en baráttan ekki. Kefl-
víkingar náðu undirtökunum um
miðjan hlutann með frábærum sókn-
arleik; KR-ingar voru sem áhorf-
endur í vörn á köflum en náðu hins
vegar að komast yfir með góðum
þristum við lok hlutans og staðan
71:70.
Tæknivilla vendipunkturinn
Upphaf fjórða hluta einkenndist af
baráttunni um veldissprota leiksins;
allt lagt undir og hvert stig rándýrt.
Baráttan bar sóknargæðin ofurliði en
það dró engar tennur úr leikmönnum
sem voru „all in“. Vendipunktur leiks-
ins kom þegar 3:36 lifðu leiks; Maggi
KFÍ vann Tindastól, 92:85, í fallslag
í Dominos-deild karla í körfubolta í
gærkvöldi en þetta var þriðji sigur
Ísfirðinga í röð. Með sigrinum
komst KFÍ upp í 9. sæti deild-
arinnar.
Jafnt var í hálfleik hjá liðunum,
41:41, en KFÍ tók forustuna
snemma í þriðja leikhluta sem liðið
vann með átta stig mun og lagði
þannig grunninn að sigrinum.
KFÍ tapaði níu af ellefu fyrstu
leikjum sínum í deildinni en hefur
nú unnið þrjá í röð.
Bandaríkjamaðurinn Damier
Pitts átti enn einn stórleikinn fyrir
KFÍ en hann skoraði 30 stig, tók
átta fráköst og gaf fimm stoðsend-
ingar. Pitts hefur verið magnaður í
vetur. Kristján Andrésson bætti svo
við 20 stigum fyrir Ísfirðinga.
Tindastóll mætti með nýjan Kana
í Ísafjarðarbæ, Roburt Sallie, en
hann skoraði 24 stig, tók 13 fráköst
og gaf sex stoðsendingar. Þröstur
Leó Jóhannsson var þó stigahæstur
gestanna með 25 stig.
tomas@mbl.is
Þrír í röð hjá KFÍ
DHL-höllin, úrvalsdeild karla, Dom-
inos-deildin, föstudag 1. febrúar
2013.
Gangur leiksins: 9:2, 13:4, 19:12,
24:17, 34:22, 36:31, 38:38, 45:43,
50:49, 53:59, 60:64, 71:68, 73:75,
75:77, 77:90, 85:100.
KR: Darshawn McClellan 21/8 frá-
köst, Brynjar Þór Björnsson 12/7
stoðsendingar, Finnur Atli Magn-
usson 12/4 fráköst, Martin Her-
mannsson 11/6 stoðsendingar, Krist-
ófer Acox 11/5 fráköst, Brandon
Richardson 10/5 fráköst/5 stolnir,
Helgi Már Magnússon 5/4 fráköst,
Emil Þór Jóhannsson 3.
Fráköst: 22 í vörn, 8 í sókn.
Keflavík: Darrel Keith Lewis 30/8
fráköst, Michael Craion 27/13 frá-
köst/4 varin skot, Billy Baptist 21/14
fráköst, Magnús Þór Gunnarsson 11,
Valur Orri Valsson 6/7 stoðsend-
ingar, Snorri Hrafnkelsson 4, Almar
Stefán Guðbrandsson 1/4 fráköst.
Fráköst: 27 í vörn, 19 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herberts-
son, Björgvin Rúnarsson, Jakob Árni
Ísleifsson.
KR – Keflavík 85:100