Morgunblaðið - 02.02.2013, Side 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2013
veggskreytingar
sandblástursfilmur
prentun
Smiðjuvegur 42 Rauð gata 200 Kópavogur Sími:544 4545 www.signa.is signa@signa.is
skilti
Bolir sem slá í gegn
signa.is
Með hvaða liði heldur þú
báðar útgáfur í svörtu og hvítu S-XXL
2300-2300-
Opið 8-17 alla virka daga
Enska úrvalsdeildarfélagið Reading
reyndi á fimmtudaginn að kaupa
Gylfa Þór Sigurðsson af Tottenham
Hotspur fyrir 10 milljónir punda,
eða um 2 milljarða íslenskra króna.
Brian McDermott, knattspyrnustjóri
félagsins, staðfesti það við netmið-
ilinn getreading.co.uk í gær.
Reading seldi Gylfa til Hoffen-
heim í Þýskalandi fyrir 7,5 milljónir
punda árið 2010. Á fimmtudag stað-
festu forráðamenn félagsins að
reynt væri af fullum krafti að kaupa
mjög öflugan leikmann áður en lok-
að yrði fyrir félagaskiptin seint í um
kvöldið.
„Við reyndum að ná í hann aftur.
Við ræddum við Spurs og gerðum
þrjú tilboð. Ég hélt á tímabili að við
ættum góða möguleika á að fá þetta
í gegn en því miður tókst okkur það
ekki. Gylfi er leikmaður Tottenham
en við höfum þekkt hann frá 13 ára
aldri og það hefði verið frábært að
fá hann aftur,“ sagði McDermott.
Talið er líklegt að ef Reading
tekst að halda sæti sínu í úrvals-
deildinni geri félagið aðra atlögu að
því að endurheimta Gylfa í sumar.
vs@mbl.is
Reading
reyndi að
kaupa Gylfa
Elfar Freyr Helgason hefur skrifað
undir samning til 30. júní við
danska knattspyrnufélagið Rand-
ers en hann lék með Stabæk í Nor-
egi seinni hluta síðasta árs. Rand-
ers staðfesti þetta í gærmorgun.
Elfar er 23 ára og lék áður með
Breiðabliki og AEK Aþenu.
„Vegna meiðsla erum við veikir
fyrir í miðvarðastöðunum. Þar
þurftum við meiri breidd og Elfar
færir okkur hana. Lengd samnings-
ins þýðir ekki endilega að hann
leiki bara með okkur fram á sumar,
en með honum fá báðir aðilar tíma
til að skoða hvor annan betur, og
við förum betur yfir stöðuna þegar
tímabilinu lýkur,“ sagði Jacob Han-
sen, stjórnarformaður Randers, á
vef félagsins í gær. vs@mbl.is
Meiri breidd
með Elfari
NFL
Tómas Þór Þórðarson
tomas@mbl.is
Annað kvöld verða yfir hundrað
milljónir Bandaríkjamanna límdar
við skjáinn þegar stærsti íþrótta-
og sjónvarpsviðburður ársins fer
fram, Super Bowl, úrslitaleikur
NFL-deildarinnar í amerískum
fótbolta.
Leikurinn í ár fer fram í Merce-
des Benz-ofurhöllinni í New Or-
leans en þetta er í tíunda skipti
sem sú ágæta borg hýsir leikinn
um ofurskálina.
Í ár mætast San Francisco
49ers, sigurvegarar Þjóðardeildar,
og Baltimore Ravens, sigurveg-
arar Ameríkudeildar. San Franc-
isco er stórveldi í NFL og á að
baki fimm sigra í Super Bowl en
það hefur aldrei tapað í úrslita-
leiknum. Baltimore Ravens var
stofnað 1996 og vann Super Bowl
2000 og er langeygt eftir öðrum
titli.
Ótrúlegar vinsældir
Til að gefa lesendum einhver
dæmi um hversu vinsæll þessi
leikur er vestanhafs eru hér
nokkrar tölur sem gefa ágæta
mynd af því.
Sjónvarpsþættir og/eða við-
burðir í Bandaríkjunum glíma við
það árlega að missa áhorfendur
því úrvalið er orðið svo mikið. Það
gerist ekki þegar kemur að Super
Bowl.
Áhorf hefur jafnt og þétt aukist
síðan 2005 en aukningin á síðustu
sjö árum er 25 milljónir áhorf-
enda. Ný met hafa verið sett und-
anfarin þrjú ár en í fyrra horfðu
111,3 milljónir Bandaríkjamanna á
leikinn sem gerði hann að stærsta
sjónvarpsviðburði sögunnar þar í
landi.
Meðaláhorfið er 40 prósent sem
þýðir að 40 prósent heimila í
Bandaríkjunum horfa á Super
Bowl, samkvæmt Nielsen-tölunum.
Síðast þegar 40 prósent heimila
voru öll stillt inn á sömu stöðina
sátu fjórmenningarnir Jerry Sein-
feld, George Costanza, Elaine
Bennes og Cosmo Kramer fyrir
rétti í lokaþætti Seinfeld árið 1998.
Fyrsti bræðraslagurinn
Bæði San Francisco og Balti-
more hafa upplifað mikið á tíma-
bilinu og sögurnar í kringum leið
þeirra í Super Bowl eru margar.
Sú stærsta er sú að í leiknum
mætast bræður sem aðalþjálfarar
en það hefur aldrei áður gerst.
Báðir eru að þjálfa í Super Bowl í
fyrsta skipti.
John Harbaugh, þjálfari Balti-
more, tók við liðinu 2008 en Jim
Harbaugh, þjálfari San Francisco,
er á sínu öðru ári sínu í NFL-
deildinni.
John er 50 ára, árinu eldri en
Jim. Hann spilaði aldrei sjálfur
heldur fetaði í fótspör föður síns,
Jacks, sem þjálfaði í áratugi í
menntaskóla- og háskólaboltanum.
Jim var öflugur leikstjórnandi sem
spilaði í NFL, meira að segja eitt
tímabil fyrir Baltimore árið 1998.
Þeir bera ómælda virðingu hvor
fyrir öðrum og hafa alla vikuna
reynt að komast hjá spurningum
blaðamanna um samband sitt. En
aðspurður á blaðamannafundi í
vikunni hversu mikið álit hann
hefði á litla bróður sínum svaraði
John:
„Hann er besti þjálfarinn í
NFL-deildinni. Mér er alvara. Þið
finnið ekki betri þjálfara í heim-
inum,“ sagði John, brosti, leit á
pabba sinn úti í sal og bætti við:
„Reyndar er Jack Harbaug nokk-
uð góður líka.“
Bræðurnir mættust í fyrsta
skipti í deildarkeppninni í fyrra og
þá hafði John sigur með Baltimore
en 49ers er sigurstranglegra á
sunnudaginn.
Með Guð í sínu liði
Ray Lewis, hinn 37 ára gamli
varnarmaður Baltimore, er einn
áhugaverðasti íþróttamaður
Bandaríkjanna og einn besti varn-
armaður í sögu deildarinnar. Hann
kom inn í deildina sama ár og
Baltimore var stofnað, 1996, og
hefur spilað með liðinu síðan.
Lewis er á sínu síðasta ári í
deildinni og er kominn alla leið í
úrslit. Hann meiddist fyrr í vetur
og þá átti ferillinn að vera búinn.
En Lewis var ekki á þeim bux-
unum og hefur verið frábær í úr-
slitakeppninni.
Hann er mikill jaxl en grætur
eins og smábarn þegar tilfinning-
arnar bera hann ofurliði, sem er
ansi oft. Lewis er mjög trúaðar
maður og trúir því að Guð sé með
Baltimore í liði og almættið ætli
sínum mönnum titilinn í ár.
Eftir ótrúlegan sigur Baltimore
gegn Denver í fyrstu umferð úr-
slitakeppninnar sem fór í fram-
lengingu sagði hann í viðtali eftir
leik: „Maðurinn stjórnar ekki því
sem Guð hefur ákveðið.“
Það þýðir því lítið fyrir menn að
biðja Guð að blessa San Francisco.
Hann heldur með Baltimore á
sunnudaginn.
AFP
Bræður John Harbaugh, t.v, þjálfari Baltimore Ravens, mætir litla bróður
sínum, Jim, í Super Bowl á sunnudaginn.
Bræður munu berjast
Super Bowl, stærsti íþrótta- og sjónvarpsviðburður Bandaríkjanna, fer fram á
sunnudaginn Þjálfarar liðanna þekkjast vel Varnarmaður á guðs vegum
Markvörðurinn Íris Björk Sím-
onardóttir veltir nú fyrir sér að hella
sér út í handboltann á nýjan leik eft-
ir nokkurt hlé. Íris býr í Stokkhólmi
en hefur brugðið sér í markið hjá
Gróttu í undanförnum leikjum á
meðan hún dvelur hér í starfsnámi.
Íris mun leika tvo leiki til viðbótar
með Gróttu áður en hún fer aftur til
Svíþjóðar þar sem hún er að ljúka
námi í hjúkrunarfræði.
Þar hyggst hún skoða aðstæður
hjá úrvalsdeildarliðinu Skuru IK og
æfa tímabundið með liðinu. Íris tjáði
Morgunblaðinu í gær að hún hefði
ekki tekið neina ákvörðun um fram-
haldið en sagði þátttöku sína í leikj-
um Gróttu að undanförnu hafa
kveikt hjá sér áhuga á nýjan leik.
Með næsta tímabil í huga
Ef vel gengur segir Íris það mun
líklegra að hún muni ganga í raðir
Skuru fyrir næsta keppnistímabil
enda sé liðið nú með tvo markmenn
og í ágætum málum í sænsku deild-
inni. Það er í öðru sæti, fimm stigum
á eftir toppliði Sävehof en fjórum
stigum á undan næstu liðum.
Íris var um tíma á meðal bestu
markvarða landsins og lék með
Gróttu og Fram. Hún varði mark Ís-
lands ásamt Berglindi Írisi Hans-
dóttur í fyrstu stórkeppni kvenna-
landsliðsins á EM í Danmörku í lok
árs 2010. Sumarið eftir tóku þær sér
báðar hvíld frá handknattleiksiðkun.
kris@mbl.is
Íris skoðar að-
stæður hjá Skuru
Áhuginn kviknaði á ný eftir nokkra
leiki með Gróttu Spilar tvo í viðbót
Morgunblaðið/Ernir
Svíþjóð Íris Björk Símonardóttir
gæti leikið með Skuru næsta vetur.