Morgunblaðið - 21.03.2013, Side 1
FIMMTUDAGUR 21. MARS 2013
VIÐSKIPTABLAÐ
Gina Rinehart er ein
auðugasta kona heims,
en fjölskyldu-
erjur skyggja á.
Fjölskylda
í járnum
4
Ungt íslenskt leikja-
fyrirtæki fékk góðan
stuðning í
Sílíkondal
Gera það gott
í Hollywood
10
Fær um 40 milljónir
dollara á ári, um 5
milljarða króna,
til rannsókna.
Íslensk erfða-
greining
2
Hin alþjóðlega fjármálakreppa leiddi í ljós að
eiginfjárkröfur banka voru alltof vægar. Bankar
stóðu berskjaldaðir um leið og það gaf á bátinn á
mörkuðum. Kröfur um hærra eigið fé, ekki síst
það sem fellur undir eiginfjárþátt A, minnka ekki
aðeins kerfisáhættu á falli banka heldur gerir
kostnað hins opinbera minni við að forða þeim
frá þroti – og sú stund mun alltaf renna upp.
Eftir fall fjármálakerfisins hafa endurreistu
bankarnir á Íslandi verið skikkaðir til að viðhalda
að lágmarki 16% eigið fé. Á árunum fyrir banka-
hrun var þetta hlutfall aðeins 8%. Væntingar um
að dregið yrði úr þessum kröfum samfara minni
óvissu í fjármálakerfinu munu ekki ganga eftir.
FME hefur gert þá kröfu á Landsbankann að eigið
fé hans verði framvegis að lágmarki 19,5%.
Þessi þróun kallar á aukinn vaxtamun. Svo verð-
ur að vera. Kröfur um aukið eigið fé til að lág-
marka hættu á reglulegu fjármálaáfalli – með
óheyrilegum kostnaði fyrir raunhagkerfið og
skattgreiðendur – þurfa að vega þyngra en sjón-
armið um að slíkt muni leiða til meiri fjármögn-
unarkostnaðar.
Þetta nýja landslag mun auka þrýsting á banka
um að breyta viðskiptalíkani sínu. Fyrirtæki
þurfa samtímis að bregðast við þeirri staðreynd
að miðlun fjármagns í gegnum bankakerfið verð-
ur dýrari. Í dag eru íslensk fyrirtæki nánast ein-
ungis fjármögnuð í gegnum fjármálafyrirtæki –
aðeins 10% fjármögnunar þeirra er á skulda-
bréfamarkaði. Þessi staða mun hins vegar að öll-
um líkindum taka stakkaskiptum á næstu árum.
Skoðun
Bankakerfið
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Nýtt landslag
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Ingólfur Guðmundsson hefur átt í nokkurs konar
varnarbaráttu við Fjármálaeftirlitið í hartnær
þrjú ár og telur sig hafa rétt hlut sinn að nokkru
leyti fyrir dómi og umboðsmanni Alþingis. Hér-
aðsdómur Reykjavíkur dæmdi Ingólfi í vil í jan-
úar í fyrra og umboðsmaður Alþingis úrskurðaði
sömuleiðis í máli Ingólfs í febrúar á þann veg að
FME hefði gerst brotlegt gagnvart Ingólfi „Ég
er í þeirri stöðu að hafa verið brennimerktur og
einhliða rekinn úr starfi af FME. Ég hef orðið
fyrir miklum fjárhagslegum skaða og málið hefur
tekið mikið á alla fjölskylduna … Ég hef fengið
meira en nóg af valdníðslu af hálfu FME. Þegar
ekki einu sinni er beðist afsökunar eða boðnar
fram bætur þegar valdi er misbeitt, þá er ég til-
neyddur til að höfða skaðabótamál,“ segir Ing-
ólfur m.a. í samtali við Viðskiptablað Morg-
unblaðsins í miðopnu blaðsins í dag. » 6-7
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verkfræðinga segir FME hafa valdið sér miklu fjártjóni og
mannorðsmissi Hann undirbýr nú ásamt lögmanni sínum skaðabótamál á hendur Fjármálaeftirlitinu
Morgunblaðið/Kristinn
Reiður Ingólfur Guðmundsson telur FME hafa brotið gróflega á sér, þegar honum var einhliða vikið úr starfi af FME haustið 2010.
Ætlar í mál
við FME
OYSTER PERPETUAL DATEJUST II
1
2
-2
0
7
4
-
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
F INGRAFÖRIN OKKAR
ERU ALLS STAÐAR!