Morgunblaðið - 21.03.2013, Side 12

Morgunblaðið - 21.03.2013, Side 12
Réttarríkið Þóroddur Bjarnason Fátt kemur lengur á óvart þegar horft er til þróunar mála á evrusvæð- inu. Stefnusmiðir myntbandalagsins voru reiðubúnir að þvinga ráðamenn á Kýpur til aðgerða sem hefðu grafið undan trausti almennings gagnvart evrópska innstæðutryggingakerfinu og aukið líkurnar á bankaáhlaupi í jaðarríkjunum. Þótt mikil óvissa ríki um hvernig ríkisstjórn Kýpur muni fara að því að afla bankakerfi lands- ins lánsfjár til að forða fjármálahruni landsins þá virðist skaðinn skeður. Þing Kýpur felldi í fyrradag með miklum meirihluta stjórnarfrumvarp um gjaldtöku af sparireikningum í kýpverskum bönkum. Með skatt- lagningu á allar innstæður í kýp- verskum bönkum – 6,75% á inn- stæður undir 100.000 evrur og 9,9% á innstæður yfir þeirri upphæð – átti að afla 5,8 milljarða evra. AGS og ESB myndu að auki veita ríkinu yfir 10 milljarða evra neyðarlán. Stjórnvöld á Kýpur leita nú allra leiða að mögulegri lausn til að afstýra hruni bankakerfisins og í kjölfarið ríkisgjaldþroti. Rætt hefur verið um að leita í smiðju íslenskra stefnu- smiða frá því haustið 2008 og kynna til sögunnar fjármagnshöft til að aftra gríðarlegu fjármagnsútflæði þegar bankar landsins munu opna á ný. Jafnframt eru uppi hugmyndir um að endurskoða fyrri hugmynd um skatt á bankainnstæður með það að markmiði að ekki verði lagður skatt- ur á innstæður undir 20.000 evrum. Náin tengsl eru á milli Rússlands og Kýpur og talið er að Rússar eigi um 20 milljarða evra á sparireikn- ingum í kýpverskum bönkum. Ekki kemur því á óvart að fjármálaráð- herra Kýpur hafi í gær farið til við- ræðna við ráðamenn í Kreml um mögulega fjárhagsaðstoð Rússlands. Hins vegar er ólíklegt að lán frá Rússum, að andvirði tæplega 6 millj- arðar evra, myndi duga til að tryggja ríflega tíu milljarða evra neyðarlán frá þríeykinu svonefnda – ESB, AGS og Evrópska seðlabankanum. Slík lántaka, samtals hátt í sautján millj- arðar evra, þýddi að skuldir kýp- verska ríkisins myndu aukast um 70 prósentur sem hlutfall af landsfram- leiðslu – og nema um 160%. Engar líkur eru á því að slík skuldabyrði væri sjálfbær. Aðstoð frá Rússum þyrfti því fremur að koma í formi frekari fjárfestingar; annaðhvort í kýpverskum bönkum eða með því að kaupa skuldabréf kýpverska ríkisins. Fyrsta ríkið til að kasta evrunni? Náist samkomulag milli rússneskra og kýpverskra stjórnvalda um aðstoð – hvort sem hún verður í formi lán- töku eða fjárfestingar – þá er líklegt að það þyrfti að njóta samþykkis þríeykisins áður en Kýpur yrði veitt neyðaraðstoð. Frekari efnahagsleg og pólitísk ítök Rússlands á eyjunni myndi án efa ekki njóta vinsælda á meðal margra Evrópuríkja. Hinir valkostirnir væru þó ekki mikið betri: frekari fjárhagsaðstoð frá evruríkj- unum eða upplausn í Kýpur. Þau skilaboð sem berast frá leið- togum kjarnaríkja myntbandalags- ins, sem gegna hlutverki lánveitanda til þrautavara gagnvart verst stöddu evruríkjunum, benda hins vegar ekki til þess að þau muni gefa eftir í kröf- um sínum gagnvart Kýpur. Pólitísk- ar ástæður og slæmt fordæmi fyrir viðræður við önnur ríki um neyð- araðstoð í framtíðinni ráða mestu. Með slíku pólitísku stöðumati er þó hætt við því að minni hagsmunir yrðu teknir fram yfir meiri. Verði Kýp- verjum settur stóllinn fyrir dyrnar og þeim synjað um neyðarlán, sem myndi hrinda af stað bankahruni og ríkisgjaldþroti, þá gæti slík atburða- rás að lokum haft skaðlegri afleið- ingar fyrir evrusvæðiðið í heild en að veita Kýpur meiri fjárhagsstuðning. Hver sem niðurstaðan að lokum verður þá hafa atburðir síðustu daga skaðað trúverðugleika stefnusmiða á evrusvæðinu – og ekki í fyrsta sinn. Sú staðreynd að evrópskir ráðamenn hafi verið tilbúnir að taka áhættu sem hefði getað magnað skulda- kreppu bandalagsins vegna neyð- araðstoðar til minnsta evruríkisins – hagkerfi Kýpur nemur aðeins 0,2% af landsframleiðslu evruríkjanna – verður að teljast með ólíkindum. Lík- ur á því að Kýpur verði fyrsta ríkið til að segja skilið við evruna hafa stór- aukist. Kýpur í klemmu Of stórir til að falla Stærð bankakerfisins í ESB-ríkjunum (% af landsframleiðslu) Heimild: Financial Times 800% 600% 400% 200% 0% Ma lta Írl an d Ký pu r Br etl an d Da nm ör k Fra kk lan d Ho lla nd Me ða lta l E SB Sp án n Po rtú ga l Fin nla nd Þý sk ala nd Au stu rrí ki Sv íþj óð Be lgí a Íta lía Gr ikk lan d Sokkinn kostnaður Hörður Ægisson hordur@mbl.is Það virðist sem svo að Eimskipsmenn séu að blása nýju lífi í kauprétti til sinna manna og með möguleika á að þeir fái lán til kaupanna frá félaginu. En rétt fyrir skráningu fyrirtækisins á markað fyrir ekki margt löngu urðu aðalstjórnendur fyrirtækisins að fórna kaupréttarsamningum sem blasti við að þeir myndu hagnast vel á vegna óánægjuradda í samfélaginu. Í upphafi næsta mánaðar mun Eim- skip halda aðalfund. Meðal tillagna fyrir fundinn er að gera skuli ráðning- arsamning við forstjóra fyrirtækisins, en það er ekki óeðlilegt að semja skuli aftur við manninn eftir kauprétt- armissinn, og verður heimilt að semja um „afkomutengdar greiðslur og/eða hlutabréfatengd réttindi“. Útherji er hlynntur afkomutengdum greiðslum. Lagt er til að félagsstjórn verði heimilt að veita starfsmönnum lán til hluta- bréfakaupa í tengslum við fjármögnun á kaupum þeirra á hlutum í félaginu. Þrátt fyrir að Eimskip sé með fulla vasa fjár þykir Útherja að fjármunum hluthafa fyrirtækisins væri betur varið með öðrum hætti en að lána þá til starfsmanna eða eiga eigin bréf til að þjónusta kauprétti. Fyrirtækið á eigin bréf fyrir 1,7 milljarða króna. Almennt eru kaupréttarsamningar ekki nógu góður mælikvarði á frammi- stöðu stjórnenda. Það er margt annað sem hefur áhrif á hlutabréfaverð en undirliggjandi rekstur. Vegna gjaldeyr- ishafta og allt að sársaukafullum skorti á fjárfestingarkostum rýkur allt upp í Kauphöllinni um þessar mundir. Því eru kaupréttir enn óskynsamlegri en ella og segja ekkert til um hæfni stjórnenda í viðskiptum. Betra væri að miða við bónusgreiðslur með fyr- irfram skilgreindum markmiðum.  Útherji Lífi blásið í kauprétti Vökvadælur Vökvamótorar Stjórnbúnaður Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf Vökvakerfislausnir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.