Morgunblaðið - 20.03.2013, Page 2
FÓTBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Lyon er vafalaust með besta lið í
heiminum í dag. Við erum hinsvegar
vel undir leikinn búnar og lítum á að
pressan sé ekki á okkur heldur á leik-
mönnum Lyon. Við förum í þennan leik
til þess að vinna,“ segir landsliðs-
markvörðurinn Þóra B. Helgadóttir,
sem jafnframt er markvörður sænska
liðsins Malmö.
Þóra og félagar mæta Evrópumeist-
urum Lyon á útivelli í fyrri viðureign
liðanna í 8 liða úrslitum Meist-
aradeildar kvenna í knattspyrnu í
Lyon í kvöld. Auk Þóru leikur Sara
Björk Gunnarsdóttir, landsliðskona,
með Malmö-liðinu sem hafnaði í öðru
sæti í sænsku úrvalsdeildinni á síðustu
leiktíð eftir að hafa unnið meistaratit-
ilinn tvö ár í röð þar á undan.
Þráðurinn er nú tekinn upp á nýjan
leik í Meistaradeildinni en keppni hef-
ur legið niðri síðan í byrjun nóvember
en þá sló Malmö út ítalska liðið Verona
í tveimur leikjum, samtals 3:0.
Lyon er með yfirburði í frönsku 1.
deildinni og er auk þess Evrópumeist-
ari. Rjóminn úr franska landsliðinu
leikur með félaginu auk nokkurra
snjallra knattspyrnukvenna af öðru
þjóðerni en frönsku. Þar á meðal eru
sænska landsliðskonan Lotta Schelin
og bandaríska landsliðskonan Megan
Rapinoe.
Leiktímabilið er ekki hafið hjá Þóru
og Söru í sænsku deildinni. Þóra segist
ekki telja það koma að sök því Malmö-
liðið hefur búi sig vel undir viðureign-
ina.
Erum vel undirbúnar
„Flestir leikmenn Malmö-liðsins
léku með landsliðum á Algarve á dög-
unum og einhverjir voru einnig að leika
á móti á Kýpur. Áður en við fórum til
Algarve höfðum við spilað marga æf-
ingaleiki. Meðal annars lékum við gegn
Frankfurt.
Síðan hefur þjálfarinn og hans menn
unnið mikið með upptökur af leikjum
Lyon-liðsins. Þar af leiðandi vitum við
vel hvernig við ætlum að spila þennan
leik við Frakkana. Það er alltaf gott að
fara í leiki vel undirbúnar. Þar af leið-
andi teljum við að pressan sé á franska
liðinu en ekki okkur,“ segir Þóra.
„Ef við vinnum leikinn þá verða það
frábær úrslit. Ég held hinsvegar að
flestir reikni með að Lyon hafi betur
enda tapar liðið ekki mörgum leikjum á
ári hverju.
Ef við náum að fylgja því leik-
skipulagi sem lagt er upp þá á ég ekki
von á öðru en að allt endi vel fyrir okk-
ur,“ segir Þóra.
Eigum að nýta okkur
hve sókndjarft lið Lyon er
Spurð hver dagskipun Malmö-liðsins
verði segir Þóra. „Lyon-liðið er afar
sókndjarft og fyrir vikið eigum við að
geta nýtt okkur það því þegar liðið
sækir mikið þá koma fram ákveðnir
gallar í varnarleiknum sem við eigum
að gera nýtt. Það er þegar við vinnum
boltann þá ætlum við að sækja í þau
svæði sem standa eftir opin.“
Þjálfari Malmö-liðsins getur stillt
upp sínu sterkasta liði í leikinn fyrir ut-
an tvær sem eru með slitin krossbönd
og hafa verið lengi frá keppni. „Það
eiga allar vera klárar í slaginn, segir
Þóra.
Malmö-liðið hefur ekki leikið æfinga-
leik síðan leikmenn liðsins komu saman
síðasta fimmtudag eftir að hafa tekið
þátt í landsliðsverkefnum í vikunum á
undan. „Margar okkar léku mikið með
landsliðunum. Þjálfarinn vildi þar af
leiðandi ekki taka neina áhættu og því
höfum við aðeins verið við æfingar síð-
ustu daga. betra væri að hvíla okkur og
fá leikmenn ferska í þessa viðureign við
Lyon,“ sagði Þóra B. Helgadóttir,
markvörður sænska knattspyrnuliðs-
ins Malmö.
Síðari leikur Malmö og Lyon fer
fram í Svíþjóð á fimmtudaginn í næstu
viku, skírdag.
Förum í leik-
inn til þess
að vinna
Ljósmynd/Algarvephotopress
Annríki Þóra B. Helgadóttir mætir nokkrum af bestu framherjum heims í
kvöld þegar Malmö sækir Evrópumeistarana í Lyon heim til Frakklands.
Þóra og Sara mæta Evrópumeist-
urum Lyon, besta félagsliði heims,
í Meistaradeildinni í kvöld
Meistaradeildin
» Í 8 liða úrslitunum mætast:
Arsenal – Torres
Wolfsburg – Rossijanka
Lyon – Malmö
Juvisy – Gautaborg
» Lyon vann PK-35 frá Finnlandi
5:0 og 7:0 í 32 liða úrslitum og
Zorkij frá Rússlandi 2:0 og 9:0 í
16 liða úrslitum.
» Malmö vann MTK frá Ungverja-
landi 6:1 og 4:0 í 32ja liða úrslit-
um og Verona frá Ítalíu 1:0 og 2:0
í 16 liða úrslitum. Sara hefur
skorað eitt mark í keppninni.
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2013
Úrslitakeppnin í Dominos-deild karla
í körfuknattleik hefst annað kvöld
með tveimur leikjum í átta liða úrslit-
unum en næstu tveir leikir fara fram
á föstudagskvöld.
Grindavík – Skallagrímur
Þarna mætast liðin sem höfnuðu í 1.
og 8. sæti. Fyrirfram ætti þessi við-
ureign að verða síst spennandi þar
sem mesti munurinn var á árangri
þessara liða af þeim sem komust í úr-
slitakeppnina. Auk þess hefur Skalla-
grímur gefið eftir í síðustu leikjum
eða eftir að Haminn Quantance var
sendur heim. Grindvíkingar eru
ríkjandi meistarar og fylgdu því eftir
með sigri í deildinni. Þeir mæta sínum
gamla samherja Páli Axel Vilbergs-
syni sem hefur skorað mikið fyrir
Skallana í vetur.
Þór Þ. – KR
Helgi Már Magnússon, spilandi
þjálfari KR, mætir sínum gamla þjálf-
ara, Benedikt Guðmundssyni. Þórs-
arar fóru alla leið í úrslit í fyrra og
hafa spilað vel í vetur og höfnuðu í 2.
sæti. Þeir eru þó án Darra Hilm-
arssonar og Baldurs Ragnarssonar og
fyrir vikið spilar liðið ekki eins ógn-
arsterka vörn og það gerði. KR-ingar
hafa á heildina litið valdið von-
brigðum en það gæti verið ágætt fyrir
þá að fara inn í úrslitakeppnina með
litlar væntingar eftir að hafa hafnað í
7. sæti.
Snæfell – Njarðvík
Snæfell hefur leikið vel í vetur og
liðið er til alls líklegt í úrslitakeppn-
inni. Sigurður Þorvaldsson hefur
reynst góð viðbót við leikmannahóp-
inn og hafnaði liðið í 3. sæti. Hólmarar
fá þó erfitt verkefni í átta liða úrslit-
unum því Njarðvík hefur leikið afar
vel eftir áramót og náði 6. sæti. Al-
mennt er ekki reiknað með miklu af
Njarðvík og liðið er líklega svolítið
vanmetið en þar er að finna mjög
hæfileikaríka leikmenn.
Stjarnan – Keflavík
Af rimmunum fjórum ætti að vera
erfiðast að spá um rimmu Stjörn-
unnar og Keflavíkur en liðin höfnuðu
í 4. og 5. sæti. Stjarnan varð bikar-
meistari í síðasta mánuði og liðið er
illviðráðanlegt um þessar mundir. Lið
Keflavíkur verður þó ekki lagt auð-
veldlega að velli og erlendu leikmenn-
irnir þrír hafa allir skilað sínu. Marvin
Valdimarsson ætti að vera orðinn
leikfær hjá Stjörnunni. kris@mbl.is
Úrslitakeppnin hefst annað kvöld
Pia Sundhage, landsliðsþjálfari Svía í knattspyrnu kvenna,
hefur bætt tveimur reyndum leikmönnum í sinn hóp fyrir
vináttulandsleikinn gegn Íslandi sem fram fer í Växjö 6. apr-
íl. Það eru Josefine Öqvist, leikmaður Kristianstad, sem er
komin á fulla ferð á ný eftir barnsburð, og Charlotte Rohlin
frá Linköping sem er búin að jafna sig eftir að hafa slitið
krossband í hné í fyrra.
Sundhage kvaðst hafa fengið góð meðmæli um formið á
Öqvist frá Elísabetu Gunnarsdóttur, þjálfara Kristianstad.
Hún á von á mun erfiðari leik gegn Íslandi en í Algarve-
bikarnum um daginn þegar Svíar unnu stórsigur, 6:1. „Ísland
vantaði þrjá leikmenn í þann leik og saknaði sérstaklega
Söru Bjarkar Gunnarsdóttur sem er liðinu afar mikilvæg. Ég reikna með þeim
kröftugum og erfiðum, og þær verða örugglega í hefndarhug og staðráðnar í að
gera betur en þær sýndu á Algarve,“ sagði Sundhage við vef sænska knatt-
spyrnusambandsins í gær. vs@mbl.is
Reiknar með erfiðari leik
Pia
Sundhage
Franska tímaritið France Football birti í gær árlegan
lista yfir þá knattspyrnumenn sem munu þéna mest á
árinu 2013. Englendingurinn David Beckham, leikmaður
Paris SG, trónir á toppi listans en hann mun vinna sér inn
36 milljónir evra á árinu sem jafngildir tæpum 5,9 millj-
örðum íslenskra króna. Aðeins 5% af tekjum Beckhams
eru tekjur af fótbolta, megnið er af auglýsingasamn-
ingum.
Næstur á tekjulistanum er Argentínumaðurinn Lionel
Messi, Barcelona, en hann mun þéna 35 milljónir evra og
þar af eru 13 milljónir evra laun og bónusgreiðslur. Í
þriðja sæti á listanum er Portúgalinn Cristiano Ronaldo,
Real Madrid, með 30 milljónir evra en það jafngildir 4,9 milljörðum ís-
lenskra króna.
Þar á eftir koma svo Samuel Eto’o, Neymar, Sergio Aguero, Wayne Roo-
ney, Zlatan Ibrahimovic, Yaya Toure og Fernando Torres. gummih@mbl.is
David Beckham þénar mest
David
Beckham
Lengjubikar karla
A-DEILD, 1. riðill:
Grindavík – Tindastóll............................ 4:0
Stefán Þór Pálsson, Daníel Leó Grétarsson
(víti), Magnús Björgvinsson, Jóhann
Helgason.
Staðan:
Víkingur Ó 4 4 0 0 13:2 12
FH 5 4 0 1 15:8 12
Fylkir 5 4 0 1 11:7 12
Grindavík 5 2 1 2 13:8 7
ÍBV 4 0 3 1 10:11 3
Fjölnir 4 0 2 2 5:9 2
BÍ/Bolungarvík 4 0 1 3 0:10 1
Tindastóll 5 0 1 4 2:14 1
KNATTSPYRNA
Svíþjóð
Drott – Guif .......................................... 29:28
Hvorki Heimir Óli Heimsson né Haukur
Andrésson voru í leikmannahópi Guif.
Kristján Andrésson þjálfar liðið.
Lugi – Hammarby ............................... 37:24
Elvar Friðriksson skoraði þrjú mörk
fyrir Hammarby.
VästeråsIrsta – Kristianstad ............. 18:33
Ólafur Guðmundsson skoraði þrjú mörk
fyrir Kristianstad.
Lokastaðan: Lugi 44, Sävehof 42, Kristi-
anstad 41, Drott 41, Alingsås 40, Guif 37,
Ystad 36, Hammarby 34, Redbergslid 33,
Skövde 30, Malmö 22, Aranäs 19, Skånela
17, VästeråsIrsta 12.
Í 8-liða úrslitum mætast:
Lugi – Hammarby
Sävehof – Guif
Kristianstad – Alingsås
Drott – Ystads
Þýskaland
B-DEILD:
Nordhorn – Bittenfeld ......................... 34:27
Staðan: Emsdetten 40, Bergischer 36,
Eisenach 34, Nordhorn 31, Bietigheim 29,
Hüttenberg 28, Bittenfeld 26, Erlangen 25,
Empor Rostock 23, Friesenheim 22, Bad
Schwartau 21, Saarlouis 21, ASV Hamm 21,
Aue 20, Lipzig 19, Henstedt 18, Ferndorf
16, Leuterhausen 12.
Þrjú efstu liðin tryggja sér sæti í A-deild-
inni á næstu leiktíð.
Þrjú efstu liðin eru með Íslendinga inn-
anborðs. Ólafur Bjarki Ragnarsson og
Ernir Hrafn Arnarsson leika með Ems-
detten. Arnór Þór Gunnarsson leikur með
Bergischer og Hannes Jón Jónsson spilar
með Eisenach en liðið þjálfar Aðalsteinn
Eyjólfsson.
HANDBOLTI
Meistaradeild kvenna
8-liða úrslit í Rússlandi:
Ekaterinburg – Good Angels............. 72:41
Helena Sverrisdóttir skoraði fimm stig
fyrir Good Angels, tók þrjú fráköst og átti
eina stoðsendingu. Hún lék í 18 mínútur.
Good Angels mætir Polkowice frá Pól-
landi í dag í hreinum úrslitaleik um sæti í
fjögurra liða úrslitunum.
Svíþjóð
8-liða úrslit, 2. leikur:
08 Stockholm – Sundsvall .................. 90:98
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 26 stig
fyrir Sundsvall, tók fimm fráköst og átti
tvær stoðsendingar. Hlynur Bæringsson
skoraði 17 stig, tók 13 fráöst og átti átta
stoðsendingar.
Staðan er 2:0 fyrir Sundsvall.
Borås – Norrköping.......................... 104:80
Pavel Ermolinskij skoraði 10 stig fyrir
Norrköping og tók níu fráköst
Staðan er 1:1.
NBA-deildin
Philadelphia – Portland ................... 101:100
Charlotte – Washington................... 119:114
Cleveland – Indiana ........................... 90:111
Atlanta – Dallas ................................ 113:127
Detroit – Brooklyn 82:119
Boston – Miami 103:105
Chicago – Denver ............................. 118:119
Eftir framlengingu.
Memphis – Minnesota.......................... 92:77
New Orleans – Golden State ............... 72:93
Phoenix – LA Lakers ........................... 99:76
Utah – New York.................................. 83:90
KÖRFUBOLTI
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominosdeildin:
Dalhús: Fjölnir – Grindavík ................ 19.15
Vodafonehöll: Valur – Keflavík ........... 19.15
Stykkishólmur: Snæfell – Njarðvík.... 19.15
Schenkerhöllin: Haukar – KR............. 19.15
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Laugardalur: Þróttur R. – Haukar.......... 18
Akraneshöllin: ÍA – Breiðablik ................ 20
Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn:
Boginn: Þór/KA – Stjarnan ................. 16.15
Í KVÖLD!