Morgunblaðið - 20.03.2013, Side 3
KÖRFUBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Keflvíkingar voru ekki sviknir af því
að fá bandaríska leikmanninn Michael
Craion til sín í vetur. Þótt Craion sé á
fyrsta ári í atvinnumennsku hefur
hann spilað eins og herforingi eins og
tölurnar bera með sér. Hefur hann
skorað 22,6 stig að meðaltali í leik og
tekið 14 fráköst fyrir Keflavík sem
hafnaði í 5. sæti í Dominos-deildinni.
Craion er 24 ára gamall og kemur
frá Kansas City í Missouri. Hann spil-
aði með Oral Roberts University í há-
skólaboltanum en skólinn er í Tulsa í
Oklahoma. „Ég spilaði þar stöðu
framherja í þrjú ár og gekk nokkuð
vel. Við vorum góðir miðað við okkar
riðil og unnum hann á síðasta árinu
mínu. Þetta var góð reynsla en ég
missti úr eitt ár í körfuboltanum í há-
skólanum vegna fótbrots,“ sagði Crai-
on þegar Morgunblaðið ræddi við
hann á blaðamannafundi í gær þar
sem tilkynnt var að hann hefði verið
kjörinn leikmaður umferða 12-22 í
Dominos-deildinni.
Fín deild til að byrja ferilinn
Craion vissi ekkert um Ísland áður
en hann kom hingað sem skiljanlegt
er. „Umboðsmaðurinn hringdi í mig á
síðustu stundu og sagðist vera með
þetta starf fyrir mig. Ég var ánægður
með að fá eitthvað að gera en ég vissi
ekki neitt um Ísland. Ég varð bara
ánægður þegar ég áttaði mig á því að
hér talar fólk ensku. Það er plús,“
sagði Craion og hló. Hann segir ís-
lensku deildina vera heppilega fyrir
sig til að byrja atvinnumannsferilinn.
„Þetta er fín deild fyrir mig á mínu
fyrsta ári. Ég hef náttúrlega ekki
samanburð við neinar aðrar atvinnu-
mannadeildir. Í Keflavíkurliðinu erum
við með Darrel Lewis sem er mjög
góður leikmaður og bættum Billy
Baptist við okkur. Vonandi erum við
komnir með síðasta púslið í púslu-
spilið til þess að vinna titilinn. Við eig-
um virkilega góða möguleika á því ef
okkur tekst að sýna okkar bestu hlið-
ar. Við getum unnið hvaða lið sem er í
deildinni og þess vegna tel ég okkur
eiga möguleika á titlinum,“ sagði
Michael Craion í samtali við Morg-
unblaðið í gær en hans bíður það verk-
efni að mæta bikarmeisturum Stjörn-
unnar í átta liða úrslitum.
Úrvalsliðið:
Justin Shouse Stjörnunni
Elvar Már Friðriksson Njarðvík
Guðmundur Jónsson Þór Þ.
Kristófer Acox KR
Michael Craion Keflavík
Dugnaðarforkurinn:
Þorleifur Ólafsson Grindavík
Besti þjálfarinn:
Sverrir Þór Sverrisson Grindavík
Umboðsmaðurinn
hringdi á síðustu stundu
Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson
Sterkur Michael Craion freistar þess að skora framhjá Sigurði Þorsteinssyni í leik með Keflavík gegn Grindavík.
Keflvíkingurinn Michael Craion valinn bestur í seinni hluta deildarinnar
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2013
Jóhann Jó-hannsson,
markahæsti leik-
maður Aftureld-
ingar í N1-deild
karla, var í gær
úrskurðaður í
eins leik bann á
fundi aganefndar
Handknattleiks-
sambands Íslands en hann fékk
rautt spjald með skýrslu fyrir leik-
brot á síðustu sekúndum við-
ureignar Aftureldingar og ÍR í 19.
umferð deildarinnar á Varmá síð-
asta fimmtudag.
Jóhann verður þar með ekki í leik-mannahópi Aftureldingar þegar
liðið sækir Akureyri heim í 20. um-
ferð N1-deildarinnar á morgun. Aft-
ureldingarliðið er í harðri baráttu
um að forðast fall úr deildinni nú
þegar tvær umferðir eru eftir. Mos-
fellingar sitja í sjöunda sæti af átta
liðum með 12 stig, einu fleira en
Valsmenn sem reka lestina.
Sergio Ramos leikmaður RealMadrid nær þeim áfanga á
föstudaginn að spila sinn 100. lands-
leik fyrir Spán þegar Spánverjar
etja kappi við Finna í undankeppni
heimsmeistaramótsins. Ramos bæt-
ist í hóp samherja sinna hjá Real
Madrid þeirra Iker Casillas og Xabi
Alonso sem báðir hafa náð að spila
100 leiki sem og Barcelona-
leikmennirnir Xavi Hernandez og
Carles Puyol ásamt Fernando Tor-
res, sem leikur með Chelsea.
Þýski landsliðsmaðurinn í hand-knattleik Michael Kraus mun
yfirgefa þýska liðið Hamburg eftir
tímabilið og ganga til liðs við félagið
sem hann hóf ferilinn með, Göpp-
ingen. Kraus, sem er 29 ára gamall
leikstjórnandi, hefur leikið með
Hamburg síðustu þrjú árin og varð
meistari með liðinu 2011 en þar áður
var hann í herbúðum Lemgo þar
sem hann lék með Loga Geirssyni.
Kraus gerði þriggja ára samning við
Göppingen.
Óheppninheldur
áfram að elta
þýska liðið
Rhein-Neckar
Löwen sem Guð-
mundur Guð-
mundsson þjálf-
ar og þeir
Alexander Pet-
ersson og Stefán Rafn Sigurmanns-
son leika með. Hornamaðurinn Mar-
ius Steinhauser meiddist illa á hné á
lokamínútunum í leik Löwen og
Tatran Presov í Evrópukeppninni á
sunnudaginn og nú hefur komið í
ljós að krossband í hné leikmannsins
gaf sig sem þýðir að hann verður frá
keppni í 6-8 mánuði. Hann er fjórði
leikmaður liðsins sem meiðist illa á
leiktíðinni en hinir voru Uwe Gens-
heimer, Kim Ekdahl og Denni Djo-
zic. Enginn þeirra leikur meira með
á tímabilinu.
Fólk folk@mbl.is
Helena Sverrisdóttir og samherjar í Good
Angels Kosice frá Slóvakíu steinlágu gegn
Ekaterinburg frá Rússlandi, 41:72, í átta liða
úrslitum Meistaradeildar kvenna í körfuknatt-
leik í gær.
Staðan í hálfleik var 43:19 fyrir rússneska
liðið en úrslitakeppnin fer fram á þeirra
heimavelli.
Helena skoraði 5 stig í leiknum, tók 3 frá-
köst og eina stoðsendingu. Hún lék í 18 mín-
útur.
Good Angels er með einn sigur eftir tvo leiki
en Ekaterinburg hefur unnið báða sína. Tvö lið fara úr riðlinum í
undanúrslit og vinni Helena og samherjar pólska liðið Polkowice
á morgun komast þær þangað. Polkowice hafði betur á móti tyrk-
neska liðinu Galatasaray í gær, 58:51. vs@mbl.is
Stórt tap hjá Helenu
Helena
Sverrisdóttir
Landsliðsmaðurinn Rúrik Gíslason, leik-
maður danska úrvalsdeildarliðsins FC Köb-
enhavn, hefur mátt sætta sig við að verma
varamannabekkinn töluvert hjá Kaupmanna-
hafnarliðinu á sinni fyrstu leiktíð með liðinu.
Rúrik hefur komið við sögu í níu leikjum með
liðinu í deildinni og í þremur þeirra hefur
hann verið í byrjunarliðinu. Meiðsli hafa
einnig sett strik í reikninginn hjá Rúrik en
hann hefur nú jafnað sig af þeim.
„Það er auðvitað hundfúlt að vera meiddur
en það er nokkuð sem maður getur ekki ráðið
við. Ég er núna kominn í gott form en það er líka klárt að ef liðið
vinnur alla leiki er erfitt fyrir þjálfarann að breyta liðinu. En ég
er tilbúinn og hungrar í að fá að spila,“ sagði Rúrik á vef KC Kö-
benhavn. gummih@mbl.is
Rúrik hungrar í að spila
Rúrik
Gíslason
Evrópumeistaramót U19 ára í badminton hefst í
Ankara í Tyrklandi á föstudaginn og í dag halda
átta íslensk ungmenni áleiðis til Tyrklands til
þáttöku á mótinu. Þau eru: Daníel Jóhannesson,
Kristófer Darri Finnsson, Stefán Ás Ingvarsson,
Thomas Þór Thomsen, Margrét Finnbogadóttir,
Margrét Jóhannsdóttir, Sara Högnadóttir og
Sigríður Árnadóttir. Þau eru öll frá TBR. Evr-
ópumótið er bæði liðakeppni og einstaklings-
keppni og verður byrjað á liðakeppninni. Í liða-
keppninni eru löndunum skipt niður í 7 riðla og
sigurvegari hvers riðils fer í átta liða úrslit. Ís-
land er í riðli með Englandi, Króatíu og Svíþjóð. Liðakeppnin
stendur til 26. mars og þá hefst einstaklingskeppnin. Í einliðaleik
karla er Matthias Almer frá Danmörku raðað númer eitt en Thom-
as Thomsen mætir honum í fyrstu umferð. gummih@mbl.is
8 frá TBR keppa á EM
Sara
Högnadóttir